Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 21
Umræða 21Vikublað 8.–10. apríl 2014
Það er verið að ljúka málum
þannig að þeir geti vel við unað
Kristín Einarsdóttir, leikstjóri Borgarleikhússins, um uppsagnir þar á bæ. – mbl.is
Hvar er lögreglan?
„Samkvæmt nátt-
úruverndarlögum
má ekki tálma för ferða-
fólks að náttúru landsins.
Guðjón Jensson
bókasafnfræðingur og leiðsögumaður
erlendra ferðamanna.
Aðsent
U
ndanfarnar vikur hafa
gróðapungar halað inn
hundruð þúsundir, ef ekki
milljónir, og haft af ferða-
mönnum sem inna þessa
greiðslu af hendi af ókunnugleika
en kannski meira af kurteisi. En
heimildin til gjaldtöku fyrir að-
gang að ferðamannastöðum er
ekki byggð á neinum lagalegum
forsendum. Samkvæmt náttúru-
verndarlögum má ekki tálma för
ferðafólks að náttúru landsins. Eigi
er vikið sérstaklega að gjaldtöku í
þessum lögum en ef slíkt hefði
komið til tals á þeim tíma sem
þessi lagabálkur var til meðferðar
á Alþingi, hefði því sjálfsagt verið
komið við.
Svo fjarri er að taka greiðslu
fyrir aðstoð björgunarsveita að
það ætti að ganga enn lengra að
krefja ferðafólk um aðgang að ís-
lenskum náttúruperlum sem eru
sannarlega í opinberri eigu.
Þessi ríkisstjórn sem nú situr
í Stjórnarráðinu krafðist fyrir
nokkru að sýslumaðurinn í Árnes-
sýslu legði lögbann við þessa geð-
þóttaákvörðun gjaldtökumanna.
Sýslumaðurinn neitaði og hefði
verið tilefni fyrir innanríkisráðu-
neytið að grípa fram fyrir hendurn-
ar á sýslumanninum hvað varð-
aði þessa ákvörðun og krefja hann
að minnsta kosti skýringa á hvers
vegna hann sinnti ekki umbeðinni
beiðni því gjaldtakan byggist ekki
á einni einustu réttarheimild.
Mörgum þykir einkennilegt að
lögreglunni hafi ekki verið sig-
að gegn ólögmætri gjaldtöku að
nýjum skatti sem viðkomandi aðili
stingur sjálfsagt í eigin vasa enda
ekki séð að hann hafi gert neitt í
þágu ferðaþjónustu.
Gjaldtöku fylgja ekki aðeins
réttindi heldur einnig skyldur.
Gamli göngustígurinn frá bíla-
stæðunum og upp að hverasvæð-
inu er víða úr sér genginn og víða
misfellur þar sem einkum eldra
ferðafólk er í hættu. Eru inn-
heimtubraskararnir við Geysi til-
búnir að axla ábyrgð vegna hugs-
anlegra slysa og málaferla? Hvergi
eru neinar upplýsingar eða þjón-
usta af neinu tagi, eins og snyrting
eða annað, sem nauðsynlegt er að
hafa þegar um freka gjaldtöku er
að ræða.
Benda má á 186. gr. almennra
hegningarlaga nr.19/1940: „Nú
vinnur maður í heimildarleysi
starf, sem opinbert leyfi eða viður-
kenningu þarf til að gegna, og skal
hann þá sæta sektum eða fangelsi
allt að 1 ári, ef ekki er ákveðin sér-
stök refsing við brotinu í öðrum
lögum.“ Augljóst er að skattur eða
gjald verði ekki lagt á nema með
stoð í lögum. Innheimtugjaldið
ber því í sérstöku refsimáli að vera
gert upptækt sýni þessi ríkisstjórn
smá viðleitni að brjóta af sér hug-
leysi og verkkvíða. Þessi ríkisstjórn
Sigmundar Davíðs hefur ekkert
gert í þágu ferðaþjónustu en hugar
meir að hagsmunum stóriðju- og
útgerðarauðvaldsins.
Í haust sem leið var lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu kölluð til
vegna mótmæla náttúruverndar-
fólks í Garðahrauni/Gálgahrauni.
Það var einkennilegt að þetta mál
mætti ekki fyrst vera kljáð fyr-
ir dómstólum, heldur tók fram-
kvæmdarvaldið fram fyrir hend-
urnar á dómstólunum. Í augum
margra var augljóst að við Ís-
lendingar stóðum ansi nálægt
frammi fyrir fasisma en fasismi
er skilgreindur þannig að þegar
lögreglu er sigað á pólitíska and-
stæðinga og opinbert vald þannig
misnotað, þá er það ákvörðun sem
bersýnilega er angi af fasisma. Nú
hafa 9 manns verið ákærðir fyrir að
hindra störf lögreglu, með öðrum
orðum leyfði hópurinn sér ásamt
Ómari Ragnarssyni og fleirum að
mótmæla þarflausri vegafram-
kvæmd sem fyrst og fremst er til
þess fallin að auka hagsmuni lóða-
braskara í Garðabæ.
Hvernig er hægt að réttlæta
það inngrip margra tuga lögreglu-
þjóna að handtaka friðsama borg-
ara á sama tíma og ekki er unnt að
senda einn einasta lögreglumann
að stoppa þá lögleysu sem nú fer
fram við Geysi? Er von að mörgum
finnist umburðarlyndi ríkisstjórn-
arinnar vera töluvert mikið gagn-
vart gróðapungum þessa lands? n
Mynd RöGnvalduR MáR
Í blíðunni Milt veður hefur verið á landinu undanfarna daga og hafa margir notið veðurblíðunnar, jafnvel þótt endrum og sinnum hafi brostið á með rigningu.
Mynd SiGtRyGGuR aRi
Myndin
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
„Það er sagt að
andlegur þroski
mannsins mælist eftir því
hvort hann sjái aðeins velferð
sinnar nánustu fjölskyldu,
landsmanna sinna eða allra
jarðarbúa. Ég er hrædd um
að forsætisráðherra fái
falleinkun.“
ingibjörg Friðbertsdóttir
um ummæli Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar um nýútkomna
skýrslu Loftslagsnefndar Sameinuðu
þjóðanna. Sigmundur sagði tækifæri fyrir
Ísland felast í hlýnun jarðar.
11
„Vonandi verður
hann endurráðinn.
Hann er svo frábær.“
Hildigunnur Þórðardóttir um
það að Jóhannes Kr. Kristjáns-
son sé farinn að taka að sér
verkefni fyrir Kastljós.
11
„Sammála nöfnu
minni. Siðlaus
maður, sem ætti enn að
sitja inni, eins og Madoff o.fl.
af hans sauðahúsi gera þó
enn. Flakkar þess í stað um
heimsbyggðina og heldur
rándýra fyrirlestra þar
sem hann kennir fólki að
pranga kúlupennum hvoru
inn á annað ! Viðurnefnið
„The Wolf of Wall Street“
er móðgun við úlfa. Hyena
væri nærri lagi …“
Hildur Helga Sigurðardóttir
segist sammála Hildi Eir
Bolladóttur sem gagnrýndi
komu Jordans Belfort til Íslands. Belfort
var stórtækur fjárfestir á Wall Street
áður en hann var dæmdur fyrir fjársvik
og peningaþvætti.
23
„Vandamál SDG
er að hann talar
alltaf með hroka og talar
niður til allra, bæði talar
hann niður til þigsins og
þjóðarinnar. “
Guðmundur Kristján Guð-
mundsson um þau ummæli
Davíðs Oddssonar og Björns
Inga Hrafnssonar að málfrelsið sé í
hættu þegar valdhafi sé gagnrýndur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra hefur einmitt verið gagn-
rýndur harðlega undanfarin misseri.
13
„Ég bregst bara
harðar við þegar
svona aðför er gerð að mér
og segi bara líkt og Mel
Gibson þegar aðför var gerð
að dóttur hans í einhverri
bíómynd. „Mun einsetja
mér fyrir lífstíð að uppræta
svona starfsemi“.“
árni Stefán árnason,
sérfræðingur í dýrarétti, við
frétt DV þar sem greint er frá
lögsókn Ástu Sigurðardóttur, sem kennd
er við Dalsmynni, á hendur Árna.
34
Þegar fólk stendur á lagaréttinum
vita aðilarnir upp á sig skömmina
ögmundur Jónasson fór að Geysi og neitaði að borga. – mbl.is
Karlar fundu
Stígamót
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, um mikla fjölgun mála þar – DV.is