Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Qupperneq 26
Vikublað 8.–10. apríl 201426 Lífsstíll
Heilsunammi
á kvöldin
Á kvöldin, þegar sykurlöngunin
hellist yfir mann, er hægt að fá
sér dýrindis snarl sem er einnig
þeim kostum gætt að vera afar
hollt. Vínber þykja góð en frosin
bragðast þau jafnvel enn betur.
Þá er hægt að smyrja hnetu-
smjöri á niðurskorna eplabita
en það þykir afar ljúffengt. Hollt
snarlið slær á sykurlöngunina
og súkkulaðistykkið liggur enn-
þá í umbúðunum í eldhúsinu.
Þegar lagst er til hvílu, með bros
á vör, er því algjör óþarfi að vera
með samviskubit.
10 hollir og bragðgóðir þeytingar og næringargildi þeirra
E
rtu orðin/n þreytt/ur á sama
gamla þeytingnum alla
morgna? Prófaðu eitthvað
nýtt og spennandi. Af nógu er
að taka. Á lífsstílsvefsíðunni
prevention.com er að finna fjöld-
ann allan af hollustudrykkjum og
nákvæmar lýsingar á næringargildi
þeirra. Hér eru nokkrir drykkir sem
vert er að prófa. n
Appelsínudraumur
Fyrir einn
n 1 blóðappelsína, afhýdd
n ¼ ds fitulaus jógúrt
n 2 tsk. frosið appelsínuþykkni
n ¼ tsk. vanilludropar
n 4 ísmolar
Aðferð: Blanda öllu saman í blandara.
Áhrif: Góður til að kæla sig niður eftir erfiða
æfingu eða heitan dag á ströndinni.
Næring (í einum skammti): 160 kcal, 3 gr
prótein, 36 gr kolvetni, 3 gr trefjar, 28 gr sykur,
1 gr fita, 0,5 gr mettuð fita og 60 mg natrón.
Banana- og engi-
fersþeytingur
Fyrir tvo
n 1 banani, niðurskorinn
n ¾ dós vanillujógúrt
n 1 tsk. hunang
n ½ tsk. rifinn ferskur engifer
Aðferð: Blanda öllu saman í blandara.
Áhrif: Róar meltinguna, hefur jákvæð
áhrif á brjóstsviða og ógleði.
Næring (í einum skammti): 175 kcal, 1
gr fita, 0,8 gr mettuð fita, 75 mg natrón,
34 gr kolvetni, 28 gr sykur, 1,5 gr trefjar
og 5 gr prótein.
Berjaárroði
Fyrir tvo
n 1 bolli frosin, ósykruð hindber
n ¾ bolli kæld möndlu- eða hrísgrjónamjólk
n ¼ bolli frosin, ósykruð kirsuber
n 1½ tsk. hunang
n 2 tsk. saxaður ferskur engifer
n 1 tsk. mulin hörfræ
n 2 tsk. ferskur sítrónusafi
Aðferð: Allt sett saman í blandara. Smakk-
aðu til með sítrónusafa.
Áhrif: Byrjaðu daginn með hvelli með
þessum ávaxtaríka þeytingi.
Næring (í einum skammti): 112 kcal, 1,5 gr
fita, 0 gr mettuð fita, 56 mg natrón, 25,5 kol-
vetni, 20 gr sykur, 3 gr trefjar og 1 gr prótein.
Heimsins besti
Fyrir einn
n 1 dós fitulaus jógúrt
n 1 banani
n ½ bolli appelsínusafi
n 6 frosin jarðarber
Aðferð: Skelltu jógúrt, banana, safa
og berjum í blandarann í 20 sekúndur.
Skafðu niður af hliðunum og kveiktu aftur
á blandaranum í 15 sekúndur til viðbótar.
Áhrif: Skelltu honum í þig eldsnemma
morguns og þú ert saddur til hádegis.
Næring (í einum skammti): 300 kcal,
14 gr prótein, 63 gr kolvetni, 5 gr trefjar,
45 gr sykur, 0,5 gr fita, 0 gr mettuð fita,
180 mg natrón.
Andagift
ananassins
Fyrir einn
n 1 dós vanillujógúrt
n 6 ískubbar
n 1 dós ananas
Aðferð: Blandið öllu saman í blandara.
Áhrif: Þessi gómsæti drykkur getur jafnvel
mettað löngun í ís.
Næring (í einum skammti): 283 kcal, 3,5 gr
fita, 2 gr mettuð fita, 167 mg natrón, 53,5 kol-
vetni, 48 gr sykur, 2 gr trefjar og 13 gr prótein.
Fyrir fjóra
n 1¼ bolli kaldur eplasafi
n 1 þroskaður niðurskorinn banani
n 1 niðurskorið kíví
n 5 frosin jarðarber
n 1½ tsk. hunang
Aðferð: Blanda öllu saman í blandara.
Áhrif: Mettir og er vörn gegn sjúkdómum.
Næring (í einum skammti): 87 kcal,
0,3 gr fita, 0 gr mettuð fita, 3,5 mg natrón,
22 gr kolvetni, 16,5 gr sykur, 1,5 gr trefjar
og 0,5 gr prótein.
Banana-,
bláberja- og
sojaþeytingur
Fyrir tvo
n 1¼ bolli létt sojamjólk
n ½ bolli lausfryst bláber
n ½ banani
n 2 tsk. sykur eða sætuefni
n 1 tsk. vanilludropar
Aðferð: Blandið einum bolla af
mjólkinni, bláberjum, banana, sykri og
vanilludropunum í blandara í 20–30
sekúndur. Hellið svo afganginum af
mjólkinni út í eftir því hversu þykkan þið
viljið hafa drykkinn.
Áhrif: Bragðgóður og sumarlegur drykk-
ur. Slepptu sykrinum og gerðu hann
ennþá hollari.
Næring (í einum skammti): 125 kcal,
1,5 gr fita, 0,1 gr mettuð fita, 60 mg
natrón, 25 gr kolvetni, 11 gr sykur, 2 gr
trefjar, 3 gr prótein.
Apríkósu- og
mangótryllingur
Fyrir tvo
n 6 afhýddar og niðurskornar apríkósur
n 2 þroskuð mangó, afhýdd og niðurskorin
n 1 bolli létt, hrein jógúrt
n 4 tsk. ferskur sítrónusafi
n ¼ tsk. vanilludropar
n 8 ísmolar
n Sítrónubörkur til skrauts
Aðferð: Blandið apríkósum, mangó, jógúrt,
sítrónusafa og vanilludropum í blandarann
og blandið vel saman. Bætið svo ísnum
saman við og blandið áfram. Hellið í há glös
og skreytið með sítrónuberki. Drekkið strax.
Áhrif: Ferskur drykkur sem gírar þig upp
fyrir daginn.
Næring (í einum skammti): 252 kcal, 3,5
gr fita, 1,5 gr mettuð fita, 57 mg natrón, 53 gr
kolvetni, 45,5 sykur, 6 gr trefjar, 7 gr prótein.
Vatnsmelónu-
undur
Fyrir tvo
n 2 bollar af niðurskorinni vatnsmelónu
n ¼ léttmjólk
n 2 bollar ís
Aðferð: Hentu öllu í blandarann en
ísnum síðast.
Áhrif: Breyttu sjálfu sumrinu í holl-
ustudrykk. Mundu bara að fjarlægja
fræin áður en þú skellir melónunni í
blandarann.
Næring (í einum skammti): 56 kcal,
0,3 gr fita, 0 gr mettuð fita, 19,5 mg
natrón, 13 gr kolvetni, 11 gr sykur, 0,5 gr
trefjar og 2 gr prótein.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Jarðarberja- og kívíþeytingur
Grænt te, bláber og bananar
Fyrir einn
n 3 tsk. vatn
n 1 poki grænt te
n 2 tsk. hunang
n 1½ bolli frosin bláber
n ½ banani
n ¾ bolli sojamjólk
Aðferð: Hitið vatnið í örbylgjuofni
í lítilli skál. Bætið teinu í og látið
bíða í þrjár mínútur. Fjarlægið
tepokann og hrærið hunangið
saman við. Setjið ber, banana
og mjólk í blandarann og hrærið
saman. Bætið teinu saman við.
Sumir blandarar þurfa smá auka
vatn til að ráða við þessa blöndu.
Áhrif: Ríkur af andoxunar-
efnum. Algjör hollustubomba!
Næring (í einum skammti):
269 kcal, 2,5 gr fita,
0,2 mettuð fita,
52 mg natrón,
63 gr kolvetni.
38,5 gr sykur, 8 gr trefjar
og 3,5 gr prótein.
Hver finnst þér bestur?
Fjögur ókeypis
smáforrit
Skipuleggðu uppskriftirnar
með smáforritum
ChefTap
Með ChefTap getur þú flutt
hvaða uppskrift sem er af
hvaða bloggi eða vefsíðu sem
er, til að mynda Pinterest, í
heildstætt kerfi með aðeins
þremur aðgerðum. Forritið
virkar vel í Android-stýrikerfi,
jafnt í símum og spjaldtölvum
sem og í tölvu.
Pepperplate
Forritið gerir þér kleift að
skipuleggja máltíð frá upp-
hafi til enda. Í því er hægt að
leita að uppskriftum, taka tíma
og búa til innkaupalista út frá
mataráformum eða uppskrift-
um sem þú vilt fara eftir hverju
sinni. Einnig getur þú skipulagt
máltíðir fram í tímann. For-
ritið er frítt og virkar vel í öllum
helstu stýrikerfum.
Evernote Food
Með forritinu getur þú tekið
myndir og sett upp þínar eigin
uppskriftir í þína persónulegu
„uppskriftabók.“ Þú getur fund-
ið veitingastaði í nágrenni við
þig, hvar sem þú ert í heimin-
um, og skrifað glósur og tekið
myndir af reynslu og upplifun
af mat. Þú getur einnig notað
þetta til þess að skoða nýjar
uppskriftir frá öðrum notend-
um.
Allthecooks Recipes
Þú getur bæði sett upp þínar
eigin uppskriftir í forritinu og
af vefsíðum. Einnig getur þú
fylgt öðrum notendum eftir og
notendur geta fylgt þér. Með
því að segja forritinu hvaða
hráefni þú átt, finnur það fjöl-
margar uppskriftir fyrir þig sem
þú getur skimað yfir. Þá getur
þú spurt spurninga um mat á
spjallsvæði og fengið svar inn-
an fárra mínútna frá öðrum
notanda.