Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Qupperneq 30
Vikublað 8.–10. apríl 201430 Sport
n PSG og Real Madrid í vænlegri stöðu fyrir síðari leikina n Hvað gerir United í Þýskalandi?
S
íðari leikirnir í 8-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar verða
háðir á þriðju- og miðviku-
dag og verður hart barist um
sæti í undanúrslitunum. Fyrri
leikirnir buðu upp á mikla skemmtun
og glæsileg mörk, en þeir voru leiknir
í síðustu viku.
PSG ber að taka alvarlega
Dortmund er nánast úr leik eftir að
hafa tapað 3–0 á móti firnasterku liði
Real Madrid. Að minnsta kosti eiga
sparkspekingar afar erfitt með að sjá
það fyrir sér að lærisveinar Carlos
Ancelotti hleypi inn þremur mörkum
hjá sér í Þýskalandi á þriðjudaginn.
Öfluga tvíeykið, Bale og Ronaldo,
skoraði sitt hvort markið og hinn ungi
Isco kom knettinum einnig í netið.
Parísarmenn sendu Evrópu-
búum ákveðin skilaboð með góð-
um heimasigri, 3–1, á Chelsea. Paris
Saint-Germain er lið sem ber að
taka alvarlega í baráttunni um sigur í
Meistaradeildinni. Lavezzi kom PSG
yfir snemma leiks en Hazard, sem
er að góðu kunnur úr franska bolt-
anum, jafnaði metin úr vítaspyrnu.
David Luiz, leikmaður Chelsea, skor-
aði sjálfsmark í síðari hálfleik og á
lokamínútunum gulltryggði Pastore
sigurinn fyrir heimamenn. Chelsea-
menn geta þó huggað sig við það að
ef einhver ætti að kunna svör við leik
PSG er það José Mourinho, þjálfari
þeirra.
United stóð í þýsku meisturunum
Mörgum kom á óvart þegar Eng-
landsmeistararnir í Manchest-
er United, sem hafa leikið illa í
vetur, stríddu þýsku meisturun-
um í Bayern München á heima-
velli sínum. Eftir að United-liðið
hafði spilað firnasterka vörn í
tæpa klukkustund kom fyrirliðinn,
Nemjana Vidic, heimaliðinu yfir
með laglegu skallamarki. Bastian
Schweinsteiger jafnaði metin
skömmu síðar með frábæru marki
og þannig stóðu leikar þegar Carlos
Velasco, spænskur dómari leiks-
ins, flautaði leikinn af. Ljóst er að
Manchester United þarf að koma
knettinum í netið á miðvikudaginn
á Allianz Arena, heimavelli Bayern
München, ætli liðið sér að komast
áfram í undanúrslitin.
Spænsku liðin Barcelona og
Atlético Madrid skildu jöfn, 1–1, á
Nou Camp, heimavelli Barcelona.
Diego kom gestunum yfir með bylm-
ingsskoti utan af kanti þegar rúmar
tíu mínútur voru liðnar að síðari
hálfleik. Neymar jafnaði metin fyrir
Barcelona, eftir listilega sendingu frá
Andrés Iniesta, á 71. mínútu leiks-
ins. Það má því búast við rafmögnuðu
andrúmslofti á heimavelli Atlético á
miðvikudaginn. n
Chelsea – PSG
þriðjudagur
kl. 18:45
Sindri Snær
Jensson, nýr
markmaður KR,
spáir í spilin fyrir
8-liða úrslit Meist-
aradeildarinnar. Hann segir PSG
ógnarsterkt lið og nefnir í því sam-
bandi að „ef þú getur sett Pastore,
Lucas Moura og Cabaye inn á
sem varamenn ertu með gríðar-
lega sterkan hóp.“ Hann spáir því
að Chelsea muni liggja á Parísar-
mönnum á heimavelli sínum.
„Ég held að Chelsea vinni 2–1
og verði mjög tæpir á því að skora
þriðja markið,“ segir Sindri. „Þeir
munu setja stífa pressu á þá í lok
leiks.“
Mourinho hefur ekki farið leynt
með það í fjölmiðlum að Chelsea-
liðið sé sem stendur ekki nógu
sterkt til þess að vinna titla. „Hann
er búinn að tala liðið markvisst nið-
ur og ég held að það sé vegna þess
að hann meini það. Þau gæði sem
PSG hefur fram á við, þó Zlatan
verði ekki með, eru slík að liðið
mun fara áfram að lokum.“
Dortmund
– Real Madrid
þriðjudagur
kl. 18:45
„Tilfinningin
mín fyrir þessum
leik er sú að Dort-
mund-liðið muni leggja sig allt í
verkefnið,“ segir Sindri. „Ég held að
Dortmund geti jafnvel unnið þenn-
an leik, 2–1.“
Real Madrid er skipað frábærum
leikmönnum á borð við Cristiano
Ronaldo og Gareth Bale en það
kæmi Sindra ekki á óvart að þeir
hvítklæddu myndu slaka örlítið
á í ljósi úrslita fyrri leiksins. „Mér
finnst stundum eins og súper-
stjörnur eigi það til og þess utan er
ekkert grín að fara til Þýskalands
og spila við Dortmund. Ég held að
Dortmund vilji líka sýna úr hverju
þeir eru gerðir fyrir fullum velli og
brjálaðri stemningu.“
Sindri segir varnarleikinn hjá
Real töluvert frá því að vera í hæsta
gæðaflokki og að framherjar Dort-
mund geti nýtt sér það. „Það býr
mikið í þessu Dortmund-liði.“
Atletico Madrid
– FC Barcelona
miðvikudagur
kl. 18:45
„Mér líst mjög vel
á þetta lið Atletico
Madrid,“ segir Sindri.
„Þeir spila mjög fast og af hörku.
Maður sá það þó í lok fyrri leiks-
ins hversu þreyttir þeir voru orðn-
ir á léttleikandi spili Barcelona-
manna.“
Sindri efast ekki um að Barcelona
muni skora á útivelli og segir að nú
sé lag fyrir þá katalónsku að þjappa
sér saman í ljósi neikvæðra frétta af
félaginu. „Atletico náði ekki alveg að
halda í við tempóið hjá Barcelona.
Ég hef trú á því að Barcelona klári
þetta einvígi, þó liðið sé ekki með
jafn mikla yfirburði og undanfar-
in ár.“
Sindri spáir því að leikurinn fari
2–2 og að Messi skori bæði mörkin
fyrir Barcelona.
Bayern München
– Manchester United
miðvikudagur kl. 18:45
„Fyrri leikurinn var
sennilega einn
besti leikur sem
ég hef séð með
Manchester
United á þessu
tímabili,“ útskýrir
Sindri. Hann seg-
ir mikla baráttu hafi
einkennt United-liðið og að það
hafi leikið afar þétta vörn. Að sama
skapi hafi virst sem einbeitingu
skorti hjá liði Bayern München.
„Ég veit að Pep Guardiola hefur
legið yfir þessum leik og greint
hann,“ segir Sindri. „Hann er full-
komnunarsinni og sættir sig ekki
við neitt annað en sigur. Ég held að
Bayern vinni 2–0.“
Moyes hefur sætt mikilli gagn-
rýni fyrir störf sín og Sindri hefur
ekki mikla trú á honum. „Hann á þó
skilið sitt tækifæri. Ég held að hann
muni samt sem áður ekki ráða við
þennan slag. Það þarf virkilega
mikið til að Manchester United fari
áfram.“ n
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Í háloftunum Nemanja
Vidic stýrir knettinum í
netið í fyrri leik Manchester
United og Bayern München.
Í bakgrunni má sjá
athyglisverðan munnsvip
Phil Jones, eins og honum
einum er lagið. MynD ReUteRS
Ensku stórliðin kveðja
Spáir í spilin Sindri Snær er ekki aðeins
liðtækur markmaður en hann starfaði
sem verslunarstjóri hjá Sautján og þá
hefur bloggsíða hans um tísku notið
mikilla vinsælda.
Slegist um sæti
í undanúrslitum