Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 8.–10. apríl 2014 Sport 31
Sektaðir fyrir
of lítinn svefn
H
ver hefði trúað því í fyrra
sumar að Everton yrði í
harðri baráttu í vor um að
tryggja sér sæti í Meistara
deild Evrópu? Ef einhver
hefði trúað því þá er það Roberto
Martinez en hann tók við stjórnar
taumunum á Goodison Park í byrj
un júní í fyrra. Martinez upplifði tím
ana tvenna sem þjálfari Wigan en
þar hafði hann stýrt skútunni frá ár
inu 2009. Á síðasta tímabili varð Wig
an bikarmeistari undir hans stjórn,
eftir glæstan sigur á Manchester City
á Wembley, en aðeins þremur dög
um síðar féll liðið úr ensku úrvals
deildinni eftir tapleik gegn Arsenal.
Þrátt fyrir magurt ár í deildinni
efaðist þó enginn um hæfileika
Martinez sem knattspyrnustjóri –
hann hafði gjörbreytt spilamennsku
liðsins og naut virðingar í starfi. Þess
vegna vildu stjórnarmenn Everton
ólmir fá hann til þess að setja fingra
för sín á bláa liðið úr Bítlaborginni.
Sem hann hefur sannarlega gert.
Vill svefnherbergi á æfingasvæðið
Hinn fertugi Martinez tók með
sér fjóra úr þjálfarateymi sínu hjá
Wigan til Everton og hóf að leggja
drög að leikmannahópnum. Belginn
Marouane Fellaini, sem hafði verið
lykilmaður hjá þeim bláklæddu,
gekk í raðir Englandsmeistaranna
í Manchester United fyrir stórfé.
Alls hefur Martinez selt leikmenn
frá Everton fyrir 40 milljónir punda
og fengið leikmenn til félagsins fyr
ir 13 milljónir punda. Í sumar verð
ur þó breyting á. „Það er ljóst að við
munum eyða peningi í sumar,“ sagði
Martinez nýlega í samtali við Daily
Mail.
Martinez, sem kemur frá Spáni,
vill styrkja liðið með leikmönnum
fyrir 20 milljónir punda og þá vill
hann bæta æfingaaðstöðu félags
ins enn frekar, með athyglisverðum
hætti. „Við viljum gera sér svefn
herbergi fyrir leikmenn félagsins og
bæta við grasvöllum. Æfingaaðstað
an er stórkostleg nú þegar, en það er
alltaf svigrúm til þess að gera betur,“
sagði Martinez sem vill að yngri leik
menn liðsins gisti endrum og eins á
æfingasvæðinu. „Það hjálpar þeim
að einbeita sér að vinnunni. Ungir
leikmenn, 24 ára og yngri, þurfa að
hafa hið fullkomna jafnvægi á milli
æfinga og hvíldar til þess að taka
framförum. Knattspyrnumenn verða
til að mynda að sofa átta klukku
stundir á nóttu,“ útskýrir Martinez
og bætir því við að hann hiki ekki við
sekta leikmenn sína komi í ljós að
þeir hafi ekki sofið nóg fyrir æfingar
eða leiki.
Hægt að koma í veg fyrir meiðsli
Samhliða atvinnumannaferli sínum
í knattspyrnu stundaði Martinez há
skólanám af kappi. Hann lærði með
al annars sjúkraþjálfun sem hefur
nýst honum vel í þjálfun. „Námið
hjálpaði mér til þess að skilja manns
líkamann betur þegar ég var sjálf
ur að spila og einnig til þess að vera
meðvitaðri um meiðsli og hvernig
líkaminn nær bata,“ sagði Martinez
en á 16 ára atvinnumannsferli sín
um var hann aldrei meiddur lengur
en í níu vikur í senn. Námið hefur
augljóslega gagnast Martinez að ein
hverju leyti en lið hans hafa jafnan
verið með fæst meiðsli á ársgrund
velli.
„Ég trúi því að hægt sé að koma í
veg fyrir hvers konar vöðvameiðsli,“
útskýrir Martinez en hann leggur
ríka áherslu á að leikmenn sinni
forvarnaræfingum. Að sama skapi
passar hann upp á álagið á leik
mönnum og að þeir æfi ekki of mik
ið. Sé ekki haldið rétt á spöðunum
aukast líkurnar á ofþjálfun. „Þú
lendir vissulega í átökum á vellin
um sem geta orðið þess valdandi
að þú meiðist. En ef þú sérð vel um
þig og líkamann þinn muntu ná fyrr
bata.“ n
„Það er alltaf
svigrúm til
þess að gera betur
n Everton nálgast Meistaradeildina n Martinez lærður sjúkraþjálfari
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Hugsuður Martinez
þykir þenkjandi maður
sem hugsar til framtíðar
í starfi sínu. Mynd ReuteRS
Kolbeinn
óánægður
Kolbeinn Sigþórsson, framherj
inn knái sem leikur með stórliði
Ajax í hollensku deildinni, segist
vera óánægður með frammistöðu
sína á tímabilinu. Kolbeinn hefur
skorað tíu mörk en segir, í samtali
við vefinn ajax1.nl, að hann hafi
ekki átt sitt besta tímabil. „Ég ætti
að vera kominn með að minnsta
kosti 20 mörk.“ Í greininni er þó
bent á að Kolbeinn hafi skorað
flest mörkin í þýðingarmiklum
leikjum, til dæmis báðum leikj
unum gegn Feyenoord auk þess
sem hann hafi skorað gegn PSV,
Twente og Vitesse, en þessi lið
eru helstu keppinautar Ajax á
toppi deildarinnar.
Wilbek hættur
Ulrik Wilbek, fráfarandi lands
liðsþjálfari Dana í hand
knattleik, hefur stýrt liðinu í síð
asta sinn. Það gerði hann um
helgina þegar liðið tapaði með
tveggja marka mun fyrir Frökk
um á fjögurra landa æfingamóti
í Danmörku. Wilbek hefur stýrt
liðinu í 13 ár. Liðið hefur undir
hans stjórn unnið til sjö gull
verðlauna á stórmótum.
Heiðursmaðurinn Claude
Onesta, landsliðsþjálfari Frakka,
hrósaði Wilbek í hástert eftir
leikinn og sagði hann fremsta
landsliðsþjálfara sögunnar.
Sjálfur hefur hann unnið allt
sem hægt er að vinna með
landslið – og það oftsinnis.
Eftir yfirstandandi leiktíð í
Þýskalandi tekur Guðmund
ur Guðmundsson við danska
liðinu.
Bale spilar ekki
Gareth Bale, stórstjarnan í liði
Real Madrid, verður fjarri góðu
gamni í síðari viðureign Real
við Dortmund í átta liða úr
slitum Meistaradeildarinnar.
Bale meiddist í leik á Spáni um
helgina og fékk skurð á hné.
Fjarvera Bale ætti ekki að koma
að sök þar sem Real hefur af
gerandi þriggja marka forystu
fyrir seinni leikinn. Ekki liggur
fyrir hvort Bale missir af fleiri
leikjum vegna þessa.
Brons Liðið hafnaði í þriðja sæti
á Algarve Cup í mars. Mynd KSÍ
Formsatriði á Möltu
Stelpurnar okkar mæta botnliði riðilsins í undankeppni HM
K
vennalandsliðið í knatt
spyrnu lenti á Möltu á
sunnudag eftir næturferða
lag frá Tel Aviv. Liðið leikur
gegn Möltu í hádeginu á fimmtu
dag í mikilvægum leik. Þær malt
nesku hafa ekki riðið feitum hesti
frá leikjum sínum í undankeppn
inni til þessa. Liðið hefur spilað
fjóra leiki og tapað þeim öllum.
Liðið hefur fengið á sig 21 mark en
ekki tekist að skora.
Íslenska liðið hefur aftur á móti
verið á miklu skriði undanfarið.
Stúlkurnar náðu frábærum árangri
á Algarve Cup í mars þar sem liðið
krækti í bronsverðlaun eftir að
hafa lagt Svía að velli. Áður hafði
liðið lagt Kína og Noreg, en tapað
fyrir ógnarsterku liði Þýskalands.
Íslenska liðið ætti fyrir leikinn
að teljast mun sigurstranglegra.
Á heimasíðu KSÍ kemur fram að
ferðalagið frá Tel Aviv hafi gengið
ágætlega en liðið lagði af stað til
Möltu klukkan tvö að nóttu til, eftir
að hafa lagt Ísrael með einu marki
gegn engu á laugardag. Stúlkurn
ar hafa því verið þreyttar, en sælar
eftir sigurinn, þegar þær komu til
Valetta á Möltu.
Leikurinn á fimmtudag fer fram
á gervigrasi en fram kemur á vef
síðu KSÍ að aðstæður á Möltu virð
ist vera góðar. Stúlkurnar munu
æfa ýmist á grasi eða gervigrasi í
aðdraganda leiksins. n
baldur@dv.is