Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2014, Page 38
Vikublað 8.–10. apríl 201438 Fólk
„Ég er í Eurovision-sætinu“
Magni Ásgeirsson kominn út í pólitík
É
g var boðaður á fund með
skemmtilegu fólki sem hefur
svipaða sýn á lífið og ég og
ákvað að slá til og fá að vera
með,“ segir tónlistarmaðurinn
Magni Ásgeirsson sem situr í 16. sæti
á framboðslista Bjartrar framtíðar á
Akureyri.
„Ég er í Eurovision-sætinu,“ segir
Magni brosandi og bætir við að það
sé aldrei að vita nema hann skelli sér
á fullt í pólitík. „Kannski maður leggi
þetta fyrir sig og verði framar á lista
næst. Ég loka engum dyrum hvað
það varðar. Ég er að þessu núna til að
styðja þá sem eru ofar á listanum og
veita þeim móralskan og andlegan
stuðning. En svo er aldrei að vita
nema maður verði bara stjórnmála-
maður þegar maður verður stór.“
Magni hefur aldrei áður tekið
virkan þátt í pólitík en segist hafa
fengið áhuga á stjórnmálum nýlega.
„Ef þú ert virkur meðlimur í þjóðfé-
lagi ertu þá ekki alltaf í pólitík? Þetta
snýst bara um að vera með og láta
sig málin varða. Þegar þú ert kominn
með þrjú börn og heimili verður þú
að gera það.
Ég, eins og svo margir, fór að fylgj-
ast með stjórnmálum og hafa áhuga
á þjóðmálunum þegar Gnarr og hans
vinir sýndu fram á að venjulegt fólk
gæti orðið stjórnmálamenn. Fram að
því hélt ég að fólk sem ég þekkti og
ég sjálfur gæti ekki tekið þátt í þessu.
Í dag veit ég að stjórnmál snúast
einmitt um venjulegt fólk og okkar
hag og persónulega vil ég að „venju-
lega fólkið“ stjórni,“ segir Magni sem
ætlar að láta sig bæjarmálin á Akur-
eyri varða.
„Ég er bara svo nýfluttur í bæinn
og er því ekki kominn með heimt-
ingu á bæjarstjórastólnum strax.
Fyrst þarf ég aðeins að læra á bæinn
en svo er aldrei að vita.“ n
indiana@dv.is
Pólitískur Magni
Magni segist ekki
eiga heimtingu á
bæjarstjórastólnum
þar sem hann sé
nýfluttur í bæinn.
Ætlar að verða
einkaþjálfari
Segir þáttinn hafa breytt lífi hennar og ætlar að halda áfram á sömu braut
É
g er náttúrlega bara ennþá
að reyna að lenda á jörðinni,“
svarar Jóhanna Elísa Engel-
hartsdóttir, sigurvegari Biggest
Loser Ísland, aðspurð hvern-
ig lífið eftir keppnina sé. „En ég held
bara áfram mínu striki, maður hætt-
ir ekkert þó þetta sé búið,“ bætir hún
við.
Jóhanna segist ætla að halda
ótrauð áfram í ræktinni. „Ég ætla nú
samt ekki að mæta þrettán sinnum í
viku, ég ætla nú bara að fara svona
sex sinnum eins og venjulegt fólk,“
segir hún hlæjandi en í keppninni
æfði hún stíft og uppskar samkvæmt
því. Jóhanna missti samtals 52 kíló í
keppninni, sem tryggði henni sigur
að lokum.
Var ekki að fela sig
Aðspurð hvort það hafi ekki verið
erfitt að fela hvað hún hafði lést mik-
ið meðan á keppninni stóð segir Jó-
hanna svo ekki vera. „Fólkið í World
Class í Mosó vissi alveg hvernig mér
gekk, þannig að ég fór ekkert með
það í felur þar. En ég klæddi mig
heldur ekkert þannig að ég væri að
sýna mig. Ég var alltaf bara í dúnúlp-
unni, maður var ekkert að auglýsa
þetta. Enda sökuðu vinkonur mín-
ar mig um að ég væri að fela þetta,“
segir Jóhanna létt í lund.
„Vá, mamma,
ég næ utan um þig!“
Jóhanna segir að fjölskyldan hafi
tekið þátttöku hennar í keppninni
og úrslitunum vel. „Maðurinn minn
er náttúrlega himinlifandi,“ seg-
ir Jóhanna en bætir þó við: „hann
var alveg mjög sáttur við mig eins
og ég var, hann er nú ekkert mikið
að pæla í útliti á fólki. En hann er
bara mjög stoltur af mér.“ Jóhanna
segir að börnin hafi ekki síður ver-
ið sátt með árangur móður sinn-
ar. „Eins og strákurinn minn sagði
þegar þau komu og heimsóttu mig:
„vá, mamma, ég næ utan um þig!“
Þetta er kannski svona hlutur sem
þau föttuðu ekkert fyrr en núna
þegar maður er kominn í eðlilega
líkamsstærð.“
En Jóhanna segist ætla að fara
rólega í nammiátið og páska-
eggin. „Ég ætla að fá mér páska-
egg. Maður þarf bara að finna sér
sinn meðalveg. Maður á ekkert að
meina sér um alla hluti, bara fá sér
þegar maður vill en samt halda því
í hófi. Það er það sem fólk gleym-
ir, það „dettur í það“ eins og mað-
ur segir, svo nær það sér aldrei upp
aftur.“
Stendur á tímamótum
og vill hjálpa öðrum
Aðspurð segir hún þáttinn tvímæla-
laust hafa breytt lífi hennar. „Það er
vægt til orða tekið. Þetta var bara ná-
kvæmlega það sem ég þurfti til að
koma mér úr þessum vítahring sem
ég er búin að vera föst í í mörg ár.“
DV spurði Jóhönnu hvaða ráð hún
vildi gefa fólki sem er í sömu spor-
um og hún var í. „Númer eitt, tvö og
þrjú er: gefðu þér tíma til að hugsa um
sjálfan þig, það er það sem ég gleymdi.
Ég þóttist aldrei hafa tíma til að gera
neitt fyrir sjálfa mig og lét börnin mín
alltaf ganga fyrir í öllu sem ég gerði.“
Aðspurð hvað sé fram undan svar-
ar Jóhanna að hún hafi náttúrlega
bara „mætt í vinnuna eins og ekk-
ert hafi í skorist,“ og bætir við að hún
sé núna að vinna í því að sækja um
einkaþjálfaranám hjá Keili. „Það er
bara næsta stóra markmiðið, að klára
það, þannig að ég geti farið að hjálpa
fólki.“ n
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is „Ég þóttist aldrei
hafa tíma til að
gera neitt fyrir sjálfa mig.
Gísli ánægður
með Akureyri
Sem kunnugt hélt Gísli Mar-
teinn norður til Akureyrar um
helgina þar sem hann stýrði
þætti sínum, Sunnudagsmorgni,
í beinni útsendingu frá menn-
ingarhúsinu Hofi. Reykvíkingur-
inn var greinilega ánægður með
þann bæ ef marka má ummæli
hans á Twitter á laugardag.
„Mættur til Akureyrar. Ólgandi
stemning, yndislegt veður og
bærinn skartar sínu fegursta.
Væri ok að #sunnudagur byrji
uppúr kl.14 á morgun?“
Eins og ný Jóhanna náði
glæsilegum árangri í Biggest
Loser og segist ætla að halda
sínu striki. Mynd Sigtryggur ari
Ásdís Rán
prófar
súludans
Fyrirsætan og frumkvöðullinn
Ásdís Rán Gunnarsdóttir setti inn
mynd á Instagram í vikunni þar
sem sjá má strippsúlu, en
myndin er tekin í æfingastöð fyrir
súlufitness. Á myndinni fylgir svo
textinn „finally we meet.“
Ásdís Rán, eða Ísdrottningin
eins og hún kallar sig stundum,
segir í ummælum við myndina
að tilefnið sé upptökur fyrir
nýjan þátt hennar sem nefn-
ist Heimur Ísdrottningarinnar.
Spennandi verður að sjá hvernig
Ásdísi tekst til á súlunni.
Rikka hélt
fyrirpartí
Árshátíð fjölmiðlafyrirtækis-
ins 365 var haldin með pomp og
prakt á Nordica hóteli á laugar-
dagskvöld. Þar var margt um
manninn eins og sjá mátti á um
300 myndum sem birtust á Vísi
eftir hátíðina. Stjörnukokkurinn
Friðrika Hjördís Geirsdóttir hélt
fyrirpartí fyrir árshátíðina þar
sem hún bauð nokkrum vel völd-
um gestum. Meðal gesta voru
þær Kolbrún Björnsdóttir, Ellý
Ármanns, Hödd Vilhjálmsdóttir,
Freyr Einarsson og Sindri Sindra-
son, sem stýrir Íslandi í dag. Mik-
ið fjör var á árshátíðinni en Rikka
mætti með kærastann, Skúla
Mogensen, en fyrrverandi eigin-
maður hennar, Stefán Hilmars-
son, dansaði við Ásdísi Rán undir
tónum stuðsveitarinnar Buffs.