Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Page 40
40 Skrýtið Helgarblað 2.–5. maí 2014
Þetta er besti
matur í heimi
n Danski veitingastaðurinn Noma valinn sá besti í heimi n Réttirnir hver öðrum frumlegri
N
oma, veitingastaður í Kaup-
mannahöfn, var á dögunum
útnefndur sá besti í heimi af
Restaurant Magazine. Stað-
urinn hampaði titlinum í
fimmta sinn á sex árum, sem er eftir-
tektarverður árangur. René Redzepi
er yfirkokkurinn á þessum magnaða
veitingastað sem býður upp á afar
frumlega rétti úr norrænu hráefni;
úr sjó og af landi.
Staðurinn varð í öðru sæti í fyrra
eftir að hafa unnið fjögur árin þar á
undan. Óhætt er að segja að staður-
inn, sem státar af tveimur Michelin-
stjörnum, fari óhefðbundnar leið-
ir þegar kemur að mat; bæði hvað
varðar hráefni og framsetningu.
Máltíð á staðnum samanstendur af
um 20 litlum réttum, sem fæstir líta
út eins og „venjulegir“ réttir á öðrum
veitingahúsum. Þessi 20 rétta veisla
kostar um 33 þúsund krónur en með
víni um 54 þúsund krónur.
Jose Moran Moya bloggar um
mat á vefsíðu sinni Spanish Hipster
og sérhæfir sig í fallegum myndum
af réttunum. Hann snæddi á Noma
árið 2012.
Hér gefur að líta fimm forrétti,
fimm aðalrétti og þrjá eftirrétti, af
þessum 20 rétta seðli. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Hreindýramosi Fyrsti forrétturinn samanstóð af möltuðu flatbrauði og
eini. Hér gefur að líta hreindýramosa og sveppi.
Fallegt Á þessum diski eru tveir munnbitar af mat, sem samanstanda af
kartöflum og kjúklingalifur.
Hænan og eggið
Þetta er einn af aðalréttum staðarins.
Súrsuð og reykt egg undan kornhænu. Eins
og sjá má er framsetningin frumleg.
Girnilegt
Hér er um að ræða
ferskt salat og reykt
þorskhrogn.
Óvenjulegur
Þessi óvenjulegi réttur saman
stendur af einum hvítfiski og
epli, sem búið er að steikja og
vefja um fiskinn.
Fyrsti aðalrétturinn Þetta lítur
ekki beinlínis út eins og matur. En hér er um að ræða
þyrniplómu og hvít rifsber bragðbætt með furunálum.
Ostrur Ostrur úr Limafirði voru á matseðlinum. Með þeim var boðið upp á þang, garðaber og súrmjólk. Allt
þetta var borið fram á steinabeði.
Litadýrð Þessi fallegi réttur samanstendur
af súrsuðu grænmeti, beinmerg, bræddu smjöri og
steinselju. Moya ber að þetta hafi verið besti réttur
kvöldsins.
Önd Þetta er ansi óvenjuleg samsetning.
Grunnhráefnið er villt önd en með því er boðið upp á
rófur, beyki og malt, auk salatblaða.
Einfaldleiki
Þessi réttur er einfaldur. Sellerí og truffla.
Fyrsti
eftirrétturinn
Þessi réttur inniheldur
Gammel Dansk, agúrku,
hvítt súkkulaði og sellerí.
Hann smakkaðist frábær
lega, að mati bloggarans.
Gulrætur og sandþyrnir
„Gulrótarfroðan, með dilli og sólþurrkuðum tómötum, var
afar áhugaverð samsetning á eftirrétti,“ skrifaði Moya.
Fjórir smáir
Að lokum voru á borð bornir
fjórir litlir eftirréttir. Þar á
meðal var karamella og
beinmergur, borið fram í
beini – auðvitað. Sjá vinstra
megin á myndinni.