Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Blaðsíða 36
36 Fólk Hjólagarpur Lóa Pind segist ekki vera sterkasti liðsmaðurinn. Vikublað 24.–26. júní 2014 Björk steig sólstöðudans n Frægir flykktust á Secret Solstice í Laugardalnum um helgina n Björk Guðmundsdóttir steig dans n Bleikt tré hátíðarinnar sló í gegn T ónlistarhátíðin Secret Sol- stice var haldin um síðustu helgi við mikinn fögnuð gesta. Tæplega tíu þúsund manns mættu á hátíðina og var mikil stemning eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Margir frægir létu sjá sig og höfðu gaman af tónlistinni og andrúmsloftinu sem fylgir slíkum hátíðum. n Jón Ólafsson Einn af bakhjörlum og skipuleggjendum hátíðarinnar. Harkan sex Óli Hjörtur, rekstrarstjóri Dolly, og eig- andinn, Dóra Takefusa, röltu grafalvarleg um svæðið. Þótt eflaust hafi verið stutt í næsta bros. Högni Egilsson og Snæfríður Ingvarsdóttir Högni ásamt kærustu sinni en hann kom fram með Hjaltalín á hátíðinni. Sólstöðu-Björk Nýlega var tilkynnt að Björk verði við- fangsefnið í stórri sýningu í Museum of Modern Art, MoMA, í New York á næsta ári. Björk Guðmundsdóttir Steig dans og skemmti sér vel á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem fram fór í Laugardalnum um helgina. Jakob Frímann Stuð- maðurinn fastreimar skóna fyrir átökin en mikið líf og fjör var í Laugardalnum. Stoltur bróðir BAFTA-verðlaunahafinn Ólaf- ur Arnalds fagnaði með systur sinni, Fríðu Ósk Arnalds, þegar hún gekk í það heilaga með unnusta sínum, Sindra Guð- mundssyni. Ólafur birti mynd af sér á samfélagsmiðlinum Instagram og óskaði systur sinni til hamingju með áfang- ann. Ólafur hefur verið mikið á ferðalagi undanfarnar vikur en eins og fram kom vann hann til hinna virtu bresku BAFTA-verð- launa fyrr á árinu. Verðlaunin hlaut Ólafur fyrir að semja tón- listina fyrir sjónvarpsþættina Broadchurch. Bæjarins bestu sameinaðir Rappsveitin Bæjarins bestu var sameinuð á ný á sunnudag en hana skipuðu Halldór Halldórs- son, Daníel Ólafsson og Kjartan Atli Kjartansson. Þeir eru betur þekktir undir nöfnunum Dóri DNA, Danni Deluxe og K.J. Fé- lagarnir voru þó ekki komn- ir saman á ný til þess að semja rapptónlist heldur til þess að hlýða á rappgoðsögnina School- boy Q sem kom fram á Secret Solstice. Eftir að Bæjarins bestu lögðu upp laupana stofnuðu Dóri og Danni sveitina 1985! en þeir hættu fyrir nokkrum árum. Sjónvarpsfólk hjólar hringinn Lóa Pind hafði ekki stigið á hjól í tvö ár É g er mjög spennt og aðallega spennt fyrir því að komast lif- andi í mark,“ segir sjónvarps- konan Lóa Pind Aldísardóttir sem ásamt tíu manna liði Stöðvar 2 tekur þátt í hjólreiðakeppninni Wow Cyclothon sem hófst í dag, þriðju- dag, en hjólað er til styrktar bæklunar- skurðdeild Landspítalans. Auk Lóu taka þátt meðal annarra fréttamennirnir Birta Björnsdótt- ir og Þorbjörn Þórðarson, fréttalesar- inn Telma Tómasson, sjónvarpskon- urnar Rikka og Kolbrún Björnsdóttir og veðurfræðingurinn Elísabet Mar- geirsdóttir en hópurinn mun hjóla í kringum Ísland. „Við tökum þátt í boðhjólakeppninni en þá skiptumst við á að hjóla í tíu til 15 mínútur. Við verðum að fara hringinn innan 72 tíma, annars dettum við úr keppni,“ segir Lóa Pind sem segist langt frá því að vera besti liðsmaðurinn. „Ég var varamaður í þessu liði enda hafði ég ekki stigið á hjól í tvö ár. Núna hef ég æft sæmilega stíft í 21 dag en það er alveg ljóst að ég er ekki sterkasti hlekkurinn í liðinu. Ég reikna með því að Elísabet sé afreks- manneskja liðsins en þarna leynast ýmsir góðir hjólarar. Stór hluti liðsins er býsna góður en við erum nokkur þarna sem erum ekki eins góð. Við fengum til okkar konu um daginn sem hjólaði þetta fyrir tveimur árum. Samkvæmt henni er afar mikilvægt að velja besta fólkið í brekkurnar. Ég var ákaflega fegin að heyra það því þá slepp ég við þær.“ Lóa Pind segist hafa gaman af því að hjóla hratt. „En ég er ekki kolfallin fyrir þessu sporti og hef til dæmis ekki keypt mér reiðhjól, eins og sumir. Enda töluverð fjárfesting.“ Aðspurð segist hún ekki búast við að það verði mikið sofið á leiðinni. „Við verðum á húsbíl en þar sem við þurfum að fara út á 90–120 mínútna fresti til að hjóla verður örugglega lítið um svefn enda held ég að það verði allir svo æstir og spenntir að það verð- ur lítið hægt að lúra. Ég reikna svo með að sofa í 20 tíma þegar ég kem heim. Maður verður líklega alveg úr- vinda.“ Hægt er að lesa meira um hjól- reiðakeppnina á wowcyclothon.is n Lið Stöðvar 2 Í liðinu eru meðal annars Rikka, Kolbrún Björnsdóttir, Elísabet Margeirsdóttir og fréttamaðurinn Þorbjörn Þórðarson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.