Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 4
Helgarblað 19.–22. september 20144 Fréttir
„Það er bara ekkert til í því“
Gullberg áfram í sömu höndum
A
dolf Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar
Gullbergs á Seyðisfirði, hafn-
ar því alfarið að til standi að
selja fyrirtækið. Gullberg er í 29. sæti
yfir kvótahæstu útgerðir landsins
með tæplega 2.800 þorskígildistonn.
Sögusagnir hafa gengið um að
Síldarvinnslan í Neskaupstað hafi
rennt hýru augu til Gullbergs. Ad-
olf, sem einna þekktastur er fyrir að
vera formaður LÍÚ, segir hins vegar
ekkert hæft í þeim sögusögnum.
„Það er bara ekkert til í því. Ekkert
svoleiðis í gangi.“
Adolf, og aðrir eigendur og stjórn-
endur Gullbergs, hafa viljað halda út-
gerðinni á Seyðisfirði og eru þekktir
fyrir að hafa látið þau sjónarmið í ljós
í gegnum tíðina. Sala á útgerðinni
gæti þýtt að starfsemin yrði flutt
annað með tilheyrandi afleiðingum
fyrir fólk og atvinnulíf á Seyðisfirði.
Slíkar sögur úr íslenskum sjávar-
byggðum eru orðnar mýmargar á Ís-
landi síðastliðna áratugi.
Miðað við orð Adolfs þá stendur
ekkert til að breyta eignarhaldinu
á útgerðinni: „Það hafa auðvitað
komið mörg tilboð í fyrirtækið gegn-
um árin en þeim hefur öllum verið
hafnað.“ Hann segir þvert „nei“
þegar spurt er hvort hluthafarnir í
seyðfirsku útgerðinni séu á „sölu-
buxunum“. n
ingi@dv.is
Öllum hafnað Adolf segir
að í gegnum árin hafi öllum
tilboðum í seyðfirsku útgerðina
Gullberg verið hafnað.
Ölvaður
í faðmi
lögreglu
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu handtók karlmann aðfara-
nótt fimmtudags vegna gruns
um ölvun við akstur. Segja
má að ökumaðurinn hafi ver-
ið nokkuð kokhraustur enda
hafði hann komið akandi á bif-
reið inn í port lögreglustöðvar-
innar við Hverfisgötu. Tilgang-
ur heimsóknar hans í portið
var að sækja vin sinn sem hafði
verið handtekinn skömmu
áður vegna líkamsárásar í mið-
borginni. Auk þess að vera ölv-
aður undir stýri var maðurinn
án ökuréttinda. Að upplýsinga-
og sýnatöku lokinni var mað-
urinn látinn laus og hélt hann
leiðar sinnar. Bifreið hans varð
hins vegar eftir í porti lögreglu-
stöðvarinnar.
Spá óbreyttum
stýrivöxtum
Greining Íslandsbanka ger-
ir ráð fyrir því að peninga-
stefnunefnd Seðlabankans
muni ákveða að halda stýri-
vöxtum bankans óbreyttum á
næsta vaxtaákvörðunarfundi,
sem verður 1. október næst-
komandi. „Rökin fyrir óbreytt-
um vöxtum verða þau að okkar
mati að verðbólgan er við verð-
bólgumarkmiðið, krónan stöð-
ug og verðbólguhorfur nokk-
uð góðar en bankinn spáir því
í sinni nýjustu verðbólguspá
að verðbólgan verði við verð-
bólgumarkmiðið út spátím-
ann, sem nær til ársins 2017,“
segir í umfjöllun um málið á
vef Greiningar. Telur deildin
að peningastefnunefnd bank-
ans muni halda stýrivöxtunum
óbreyttum fram á seinni hluta
næsta árs.
U
nga konan sem lést í
borginni Algeciras á Spáni
á þriðjudag var rúmlega
tvítug. Hún hafði nýlega
flutt til Spánar og ætlaði
að setjast að í borginni. Málið er
mikill harmleikur og fjölmargir
vinir og ættingjar hennar hafa sagt
frá sorg sinni á samfélagsmiðlum.
Utanríkisráðuneytið vinnur að því
að aðstoða fjölskyldu konunnar og
er ræðismaður Íslands að vinna að
málinu.
Börðust við kerfið
Unga konan hafði glímt við fíkni-
efnavanda og hafði reynt að snúa
við blaðinu margoft. Sonur henn-
ar, sem er um tveggja ára, er í um-
sjá foreldra hennar.
Sem áður sagði hafa vinir og
fjölskylda konunnar lýst harmi
sínum á samfélagsmiðlum. Þar er
ættingjum hennar sendar fallegar
samúðarkveðjur á erfiðum tímum.
Í viðtali við DV fyrir þremur
árum greindi móðir konunnar frá
þeim erfiðleikum sem þau for-
eldrarnir höfðu þurft að takast á
við vegna dóttur sinnar og baráttu
við kerfi sem engu skilaði. Þegar
viðtalið var tekið hafði unga konan
verið týnd í nokkuð langan tíma og
foreldrar hennar voru úrkula von-
ar.
Fjölskylda konunnar baðst
undan viðtali, en benti á samtök-
in Olnbogabörn. Samtökin voru
stofnuð fyrir aðstandendur barna
með áhættuhegðun. Samtök-
in hafa opinberlega gagnrýnt úr-
ræðaleysi stjórnvalda þegar kem-
ur að hópi barna sem sýna af sér
áhættuhegðun og eru jafnvel í
neyslu. Fyrir þau skorti raunsæ úr-
ræði og staði sem eru í stakk bún-
ir til þess að takast á við mál barna
og ungmenna.
Ekki rannsakað sem
grunsamlegt dauðsfall
Ræðismaður Íslands á Malaga,
Per Dover Petersen, sagði í sam-
tali við DV að konan hafi verið
stödd í hafnarborginni Algeciras
á Suður-Spáni. Lögreglan í Al-
geciras gefur engar upplýsingar
um andlát íslensku konunnar.
Þegar DV hafði samband við lög-
regluna á Spáni var málið á borði
rannsóknarlögreglunnar. Þar
fengust þau svör að málið væri í
rannsókn og nánari upplýsingar
fengjust á föstudag.
„Við vitum ekki til þess að þetta
sé rannsakað sem grunsamlegt
dauðsfall,“ segir Urður Gunnars-
dóttir, upplýsingafulltrúi utan-
ríkisráðuneytisins en dánarorsök
ungu konunnar liggur ekki fyrir.
„Við erum að aðstoða fjöl-
skyldu hennar,“ segir hún.
Borgara þjónusta utanríkisráðu-
neytisins leiðbeinir einstakling-
um og fjölskyldum í aðstæðum
sem þessum. Hlutverk þeirra er
að aðstoða við tengsl við málsað-
ila erlendis svo sem lögreglu og
að aðstoða við hagsmunagæslu
fyrir fjölskyldu hins látna.
Andlát á Spáni
Þetta er í annað sinn í sumar sem
Íslendingur deyr á Spáni. Ungur
piltur, Andri Freyr Sveinsson, lést
af slysförum í skemmtigarðinum
Terra Mitica í byrjun júli. n
Var nýflutt til Spánar
n Sviplegt fráfall ungrar móður n Vinir og fjölskylda harmi slegin
Flutti til Algeciras
Lögreglan í Algeciras gefur
engar upplýsingar um
andlát íslensku konunnar
að svo stöddu. Mynd REutERS
Mikill harmur
Fjölskylda og vinir
hafa lýst harmi sín-
um á samfélags-
miðlum í dag.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Atli Már Gylfason
astasigrun@dv.is / atli@dv.is
„Við vitum ekki til
þess að þetta sé
rannsakað sem grunsam-
legt dauðsfall.
urður Gunnarsdóttir