Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Qupperneq 8
8 Fréttir Helgarblað 19.–22. september 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Félag Bjarna græddi
rúmar 164 milljónir
n Á rúmlega þriggja milljarða eignir n Hlutabréfaeignin tvöfaldaðist
F
járfestingarfélag Bjarna Ár
mannssonar, Sjávarsýn ehf.,
hagnaðist um rúmlega 164
milljónir króna í fyrra. Þetta
kemur fram í ársreikningi fé
lagsins fyrir 2013 sem skilað var til
ársreikningaskrár ríkisskattstjóra.
Í ársreikningnum kemur vel fram
hversu sterkefnaður Bjarni er en
eigin fjárstaða félagsins – eignir mín
us skuldir – er jákvæð um nærri 2,4
milljarða króna.
Sjávarsýn ehf. er sennilega þekkt
ast fyrir að vera félagið sem hélt
utan um hlutabréfaeign Bjarna Ár
mannssonar í Glitni á árunum fyrir
hrunið. Bjarni hætti sem kunnugt er
sem bankastjóri Glitnis í apríl 2007 –
þegar hlutabréfaverð á Íslandi var í
hæstu hæðum – og seldi þá hlutabréf
sín í bankanum með milljarða hagn
aði. Bréfin voru keypt af Bjarna á yfir
verði og var það hluti af samkomu
lagi hans við nýja stjórn Glitnis um
starfslok en fjárfestingafélagið FL
Group hafði þá yfirtekið bankann
ásamt meðfjárfestum. Bjarni endur
greiddi skilanefnd Glitnis síðar yfir
verðið sem hann fékk fyrir hluta
bréfin og fékk hann því einungis
markaðsverð fyrir þau.
Í dag er Sjávarsýn það félag
Bjarna sem heldur utan um fjár
festingar hans í íslenskum fyrirtækj
um eins og Gasfélaginu, Kælitækni,
tölvufyrirtækinu Securstore á Akra
nesi og eignarhaldsfélaginu Actuar
sem það á ásamt Keili, Íslenskum
aðalverktökum og Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar.
Á 700 milljónir í félögum
Félag Bjarna á eignir upp á nærri 3,3
milljarða króna en á móti eru skuld
ir upp á nærri 936 milljónir króna.
Af eignunum mynda skuldabréf og
aðrar langtímakröfur nærri 2,3 millj
arða króna en eignarhlutir í fyrir
tækjum eru tæplega 700 milljónir.
Hlutabréfaeign fyrirtækisins nærri
tvöfaldaðist á milli áranna 2012 og
2013, fór úr rúmlega 360 milljónum
upp í tæplega 700 milljónir. Bjarni
hefur aukið nokkuð umsvif sín í ís
lensku atvinnulífi á liðnum árum eft
ir að hafa haldið frekar að sér hönd
um strax í kjölfar hrunsins. Bjarni bjó
meðal annars í Noregi um tíma en
hann flutti þangað eftir að hafa hætt
hjá Glitni og eftir að REIverkefnið
rann út í sandinn síðla árs 2007.
Rann inn í Sjávarsýn
Eitt af félögum Bjarna sem komst í
fréttirnar eftir hrunið, Imagine In
vestments, rann inn í Sjávarsýn árið
2011. DV greindi frá því árið 2009
að Imagine Investments hefði kom
ist að samkomulagi við skilanefnd
Glitnis um afskrift á rúmlega 800
milljóna króna skuld við bankann.
Bjarni greiddi nokkra tugi milljóna
– hann vildi ekki segja nákvæmlega
hversu mikið – upp í skuldina en fékk
eftirstöðvarnar afskrifaðar. Imagine
Investments hafði fjárfest í norska
fasteignafélaginu Glitnir Property
Holding fyrir um milljarð þar sem
hann lagði fram rúmlega 350 millj
ónir í eiginfjárframlag en fékk af
ganginn lánaðan.
Greitt upp í skuld
Bjarni tapaði svo eiginfjárfram
lagi sínu en eftir stóð skuldin við
Glitni sem gera þurfti upp, greiða
eða afskrifa, með einhverjum hætti.
Lendingin varð því sú að Glitnir tók
bréfin í fasteignafélaginu og afskrif
aði stærstan hluta skuldar félags
ins við bankann eftir að Bjarni hafði
greitt nokkra tugi milljóna, sem hann
hefði sjálfsagt ekki nauðsynlega
þurft að greiða, upp í skuldina. Þegar
Bjarni var spurður af hverju hann
hefði ekki bara greitt alla skuldina
þar sem hann væri sannarlega
borgunarmaður fyrir henni, meðal
annars í ljósi sterkrar stöðu Sjávar
sýnar, sagði hann að slíkt hefði ver
ið „óábyrg“ meðferð á fjármunum:
„Enda væri það náttúrulega bara
óábyrg meðferð á fé af minni hálfu
að gera það. Er það ekki?“
Tveimur árum síðar rann þetta
félag sem Glitnir afskrifaði hjá inn í
Sjávarsýn sem stendur afskaplega vel
í dag eins og ársreikningur þess fyrir
2013 sýnir. n
„Enda væri það
náttúrulega bara
óábyrg meðferð á fé af
minni hálfu að gera það.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Sterkefnaður
Eiginfjárstaða félagsins
er jákvæð um nærri 2,4
milljarða króna.
Stendur í hótelrekstri
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, hefur
haslað sér völl í hótelrekstri eftir
hrunið 2008. Meðal annars í ION
Hotel á Nesjavöllum.
63 milljóna tap á hóteli Hreiðars Más
Kaupþingsforstjórinn haslaði sér völl í ferðamannageiranum
R
úmlega 63 milljóna króna tap
varð af rekstri ION Luxury
Adventure Hotel, sem meðal
annars er í eigu eignarhalds
félags Hreiðars Más Sigurðssonar,
í fyrra. Hótelið, sem er á Nesjavöll
um, hét áður Hótel Hengill en eft
ir að Hreiðar Már og meðfjárfest
ar hans keyptu það hafa farið fram
miklar framkvæmdir við bygginguna
og henni gerbreytt í fínni gististað
sem markaðssettur hefur verið sem
lúxus hótel. Á þriðjudaginn greindi
DV frá því að yfirmenn á Landspítal
anum hefðu dvalið á hótelinu nýlega
í þrjá daga vegna ráðstefnuhalds. DV
greindi frá kaupum Hreiðars Más á
hótelinu í október 2011 en það var
áður í eigu Orkuveitu Reykjavíkur.
Salan á hótelinu tengdist nokkuð
umfangsmikilli eignasölu Orkuveitu
Reykjavíkur á þeim tíma. Hreiðar
Már var þá einn af fjárfestunum sem
kom að eigninni eftir að hún skipti
um hendur og átti meðal annars í
samningaviðræðum við fyrrverandi
hótelhaldarann um möguleg kaup á
öðrum eignum á staðnum. Þrátt fyr
ir að hótelið á Nesjavöllum hafi verið
vel markaðssett og fái talsverða um
fjöllun í fjölmiðlum þá var samt tap á
rekstrinum í fyrra. Slíkt er að vísu alls
ekki skrítið þar sem um var að ræða
fyrsta rekstrarár þess. Eiginfjárstað
an er neikvæð eins og er, en einungis
um rúmar 9 milljónir króna. n
ingi@dv.is
Fríhöfnin tapaði
25 milljónum
Fríhöfnin í Flugstöð Leifs Eiríks
sonar tapaði 25,4 milljónum króna,
fyrir afskriftir, vexti og skatta á fyrri
helmingi ársins. Þetta kemur fram
í tilkynningu um afkomu félagsins.
Fram kemur að á sama tímabili í
fyrra hafi félagið hagnast um 39
milljónir. Í tilkynningunni segir
að rekstrarkostnaður hafi hækkað
um 28 prósent fyrstu sex mánuði
ársins en þar muni mestu um hús
næðiskostnað, sem hafi hækkað
um 30,4 prósent á milli ára.
Þrátt fyrir þetta segir í upp
hafi tilkynningarinnar að rekstur
inn hafi gengið vel á fyrri helm
ingi ársins og að reksturinn sé í
samræmi við áætlanir. Tekjur Frí
hafnarinnar námu tæpum fjórum
milljörðum króna á tímabilinu,
sem er 14,5 prósenta hækkun frá
fyrra ári. Hjá Fríhöfninni vinna 145
starfsmenn en þeir voru 129 í upp
hafi árs.
Æfðu viðbrögð
við olíueldi
Slökkviliðsmenn á Keflavíkur
flugvelli eru í stöðugri þjálfun
en nú á dögunum æfðu þeir við
brögð við olíueldi.
Með á æfingunni voru slökkvi
liðsmenn á Akureyrarflugvelli
en þeir hafa æft með slökkvi
liðsmönnum á Keflavíkurflugvelli
undanfarna daga.
Þeir hafa meðal annars
æft reykköfun og að sprauta á
„fuglinn“ eins og hann er kallað
ur af slökkviliðsmönnum en það
er flugvélarlíkan sem er á æfinga
svæði slökkviliðsins á Keflavíkur
flugvelli.