Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 12
Helgarblað 19.–22. september 201412 Fréttir Réðst á mann með glerflösku á Dillon Síbrotamaðurinn Guðni Guillermo Gorozpe ákærður Þ ingfesting var í máli Guðna Guillermo Gorozpe á fimmtudag en ríkissak­ sóknari hefur ákært hann fyrir sérstaklega hættulega líkams­ árás. Guðni var árið 2011 kenndur við vélhjólasamtökin Outlaws – áður Black Pistons. Hann er sakað­ ur um að hafa þann 9. september árið 2012 ráðist mann með gler­ flösku á skemmtistaðnum Dillon. Samkvæmt ákæru sló Guðni manninn ítrekað í höfuðið með flöskunni með þeim afleiðingum að hann hlaut opið sár. Í ákæru segir að fórnarlambið hafi hlot­ ið „þrjá skurði á enni, einn vinstra megin sem var 4 til 5 sm langur, einn fyrir miðju sem var 6 til 7 sm langur og einn hægra megin sem var 1,5 til 2 sm langur.“ Samtals þurfti að sauma sextán spor í enni mannsins. Þess er krafist að Guðni verið dæmdur til refsingar en að auki er þess krafist að hann greiði eina milljón króna í miskabætur. Sakaferill Guðna nær nokkuð langt aftur og hefur hann verið dæmdur fyrir líkamsárásir og hót­ anir. Í janúar í fyrra var Guðni dæmdur í þriggja ára fangelsi fyr­ ir að ráðast á grískan ferðamann sem og að hafa ráðist á mann með járnröri. Báðar líkamsárás­ ir áttu sér stað árið 2010. Gríski ferðamaðurinn svipti sig lífi síðar en móðir hans bar vitni við rétt­ arhöldin og sagðist ekki geta full­ yrt um tengsl milli árásarinnar en sagði þó að árásin hefði geng­ ið nærri syni hennar. Árið 2007 fékk Guðni tveggja ára fangelsis­ dóm fyrir að hafa skotið úr hagla­ byssu á íbúðarhús í Hafnarfirði sem og líkamsárás og fjársvik. Enn fremur var hann dæmdur fyrir að kasta mólotovkokkteil inn um gat á rúðu. n hjalmar@dv.is Ákærður Guðna Guillermo Gorozpe er ákærður fyrir sérstaklega hættu- lega líkamsárás. Árásin átti sér stað á skemmtistaðnum Dillon árið 2012. Ræður beint eða óbeint 14% kvótans Samherji á fjórar af þrjátíu kvótahæstu útgerðum landsins Ú tgerðarfélagið Samherji ræð­ ur beint eða óbeint yfir 14,07 prósentum heildarkvótans sem úthlutað er við Íslands­ strendur. Þetta kemur fram þegar aflahlutdeild Samherja og fyrirtækja sem útgerðin á hluti í er skoðuð á nýjasta lista Fiskistofu yfir aflahlutdeild íslenskra útgerða. Fiskistofa birti listann fyrir nokkrum dögum og miðast við eignarhald á kvóta í byrjun september í ár. Samherji á sjálft 6,44 prósent kvótans, Síldarvinnslan – sem Sam­ herji er stærsti hluthafinn í með 44,6 prósent – á 5,21 prósent, Útgerðar­ félag Akureyringa á 1,74 prósent og Polaris Seafood á 0,68 prósent kvót­ ans. Samherji er eini eigandi tveggja síðustu fyrirtækjanna. Allar eru út­ gerðirnar á listanum yfir 30 stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins mið­ að við aflaheimildir. Polaris Seafood er nýtt fyrirtæki á listanum en það hélt áður, eftir flókinn eignastrúktúr, utan um eignarhald á Afríkuútgerð Samherja sem seld var í fyrra með nokkurra milljarða hagnaði. Þegar þessar tölur eru lagðar saman er niðurstaðan 14,07 prósent af heildarkvóta. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða má aflahlutdeild einstaks, eða tengdra aðila, ekki fara yfir 12 prósent af heildarafla. Þetta lagaákvæði á hins vegar ekki við um eignarhald Samherja á aflaheim­ ildum þar sem fyrirtækið og Síldar­ vinnslan eru ekki skilgreind sem tengdir aðilar samkvæmt lögum. Stóð til að breyta Eyþór Björnsson, forstjóri Fiskistofu sem hefur meðal annars eftirlit með eignarhaldi á aflaheimildum, segir að samkvæmt þeim lögum sem í gildi eru séu Samherji og Síldar­ vinnslan einfaldlega ekki tengdir aðilar. „Okkur ber að fylgjast með því að aðilar og tengdir aðilar fari ekki yfir kvótaþakið á grundvelli þeirra laga sem gilda. Það hefur ver­ ið niðurstaðan, samkvæmt þeim lögum sem gilda, að Samherji og Síldarvinnslan séu ekki tengdir að­ ilar.“ Í kvótafrumvarpi síðustu ríkis­ stjórnar, sem ekki náðist í gegnum þing og varð þar af leiðandi ekki að lögum, átti að breyta lögum um stjórn fiskveiða þannig að ef fyrir­ tæki ætti 30 prósent eða meira í annarri útgerð þá væru þau tengd­ ir aðilar samkvæmt lögum. Ef þessi breyting hefði orðið að lögum þá væru Samherji og Síldarvinnslan skilgreind sem tengdir aðilar. Athugun á samstarfinu Líkt og DV hefur greint frá þá hefur Samkeppniseftirlitið haft sam­ vinnu Samherja, Síldarvinnslunn­ ar og Gjögurs á Grenivík til skoðun­ ar – Gjögur er næststærsti eigandi Síldarvinnslunnar. Sú athugun hef­ ur staðið yfir frá því vorið 2013. Í samtali við DV í júní sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam­ herja, að hann hefði ekkert heyrt af athuguninni frá því í fyrra. „Við af­ hentum gögn í maí í fyrra. Ég hef ekki fengið eina fyrirspurn eða ann­ að síðan. Þeir fengu bara þessi gögn og ég veit ekki meir.“ Samkvæmt því sem Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis­ eftirlitsins, sagði í sumar var ekki komin nein niðurstaða í skoðun stofnunarinnar. „Við höfum aflað gagna í málinu og erum að vinna úr þeim. Það er svo sem ekkert meira um þetta að segja á þessari stundu.“ Samkeppniseftirlitið hóf skoðun­ ina í kjölfarið á athugun á ætluð­ um samruna Síldarvinnslunnar og Bergs Hugins, útgerðar í Vest­ mannaeyjum. Segir kvóta hafa verið færðan Í samtali við DV segir Þorsteinn Már að Samherji og Síldarvinnslan séu ekki tengdir aðilar samkvæmt lög­ um. „Eignarhald Síldarvinnslunnar er öllum opið. Það er búið að liggja fyrir í langan tíma hverjir eiga Síldar­ vinnsluna. Hvort sem að menn vilji hafa þetta einhvern veginn öðruvísi þá er þetta bara svona lögum sam­ kvæmt,“ segir forstjórinn og ríma orð hans við það sem Eyþór Björnsson segir hér að framan. Þorsteinn Már segir að ástæðan fyrir veru Polaris Seafood á listan­ um yfir kvótahæstu útgerðirnar sé að kvóti hafi verið færður yfir á skip í eigu félagsins af skipi í eigu annars félags Samherja. Þorsteinn Már seg­ ir að ekki hafi verið keyptur kvóti á skipið. „Skipið var keypt í ágúst í fyrra og var í rekstri allt þetta fisk­ veiðiár. Við keyptum þetta skip og fannst óeðlilegt að vera með kvóta­ laust skip,“ segir hann og bætir við að yfirfærslan snúist einnig um nýt­ ingu á aflaheimildum á ýsu. Staðan er því sú að bæði Sam­ herji og Síldarvinnslan geta bætt við sig kvóta upp að 12 prósenta markinu án þess að slíkt hafi nein áhrif þar sem fyrirtækin eru ekki skilgreind sem tengdir aðilar. Bæði fyrirtækin geta því haldið áfram að kaupa kvóta þar sem nokkur pró­ sentustig vantar upp á að 12 pró­ sentum sé náð. Ekki væri því úti­ lokað að fyrirtækin, og dótturfélög þeirra, færu saman með um 24 pró­ sent kvótans án þess að slíkt bryti gegn lögum um stjórn fiskveiða. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Ekki tengdir aðilar Síldarvinnslan, sem Gunnþór Ingvason stýrir, og Samherji eru ekki skilgreindir sem tengdir aðilar lögum samkvæmt. Samherji á samt tæp 45 pró- sent í Síldarvinnslunni. Mynd InGIbjörG döGG. Samkeppniseftirlitið skoðar samvinnuna Samkeppniseftirlitið hefur skoðað samvinnu Samherja, Síldarvinnslunnar og Gjögurs frá því í maí í fyrra. Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og annar stærsti eigandinn. Mynd SIGtryGGur ArI „Hvort sem að menn vilji hafa þetta einhvern veginn öðruvísi þá er þetta bara svona lögum samkvæmt. Fordæma niðurskurðinn Stjórn Kennarasambands Íslands harmar í ályktun, sem stjórn­ in sendi frá sér á fimmtudag, að í fjárlagafrumvarpi ársins 2015 „skuli enn vera þrengt að fram­ haldsskólum landsins og aðgengi ungs fólks að námi skert.“ Fram kemur að rekstur framhaldsskóla landsins sé fyrir löngu kominn að þolmörkum. „Það skýtur því skökku við að á sama tíma og stjórnvöld afþakka tekjustofna er boðaður áframhaldandi niður­ skurður í skólakerfinu.“ Fram kemur að gert sé ráð fyrir 5 prósenta fækkun nem­ enda og skertu aðgengi þeirra sem eru eldri en 25 ára og vilji læra á framhaldsskólastigi. „Þessi stefna boðar gjörbreytingu á menntapólitík í landinu. Verði af þessum áformum er ljóst að markmiðum um að hækka hlut­ fall þeirra sem ljúka framhalds­ skólaprófi verður ekki náð. Stjórn KÍ fordæmir þann viðsnúning sem virðist vera í uppsiglingu,“ segir í ályktuninni. Flutningur Fiskistofu dýr Starfsmenn Fiskistofu eiga kost á þriggja milljóna króna styrk, kjósi þeir að flytja með stofnun­ inni til Akureyrar næsta sumar. RÚV greindi frá þessu á fimmtu­ dag. Sjávarútvegsráðherrann Sig­ urður Ingi Jóhannsson sendi bréf til starfsmanna þar sem þetta kemur fram, en þar segir einnig að þiggi starfsmenn styrkinn þá þurfi þeir að skuldbinda sig til að vinna á Akureyri í tvö ár. Hætti þeir fyrr þurfa þeir að endur­ greiða styrkinn í hlutfalli við þann tíma sem þeir gegndu starf­ inu á Akureyri. Reiknað er með að helmingur þeirra 70 starfa sem nú eru í Hafnarfirði verði flutt norð­ ur. Þiggi hver einn og einasti starfsmaður sem flytur norð­ ur þennan styrk þá kostar þessi liður flutninganna 105 milljón­ ir. Þá kemur einnig fram í bréf­ inu að starfsmönnum verði boðið að fljúga tvisvar sinnum með fjölskyldu sinni norður til Akureyrar til að skoða húsnæði og aðstæður. Flug fyrir fjögurra manna fjölskyldu, þar sem eru tvö börn á aldrinum 2–11 ára kostar 70 þúsund krónur fram og til baka. Miðað við þetta dæmi getur flug á hvern starfsmann og fjölskyldu kostað 140 þúsund krónur og því getur þessi liður flutninganna kostað tæpar fimm milljónir króna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.