Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 24
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson
• Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Þorsteinn Guðnason
• Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttaSkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð Dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtaRSími
aUglýSingaR
Sandkorn
24 Umræða
Er hægt að hafa áhrif á
að ég verði ekki borinn út?
Sturla Jónsson verður borinn út í lok mánaðar. – DV
Það þarf engan að undra
Þ
að er áhyggjuefni að Sigmund
ur Davíð Gunnlaugsson og
Bjarni Benediktsson séu svona
hissa á hörðum viðbrögðum
miðstjórnar Alþýðusambands Íslands
við fjárlagafrumvarpinu þar sem ASÍ
sér engan grundvöll fyrir frekara sam
starfi við ríkisstjórnina ef þetta fjár
lagafrumvarp verður að lögum. Harð
ur tónn frá ASÍ á þessu hausti var
fyrirséð efnahagsstærð og ætti ekki
að koma neinum á óvart og síst af öllu
forystumönnum ríkisstjórnarinnar
sem kjósendur eiga að geta treyst til
að höndla með efnahagsstærðir af
þessari stærðargráðu.
Annað af tvennu virðist hafa gerst
og hvort tveggja er fyrirboði um slæma
tíð á vinnumarkaði. Annaðhvort er
efnahagslegt tóneyra þeirra Bjarna
og Sigmundar svo dauft að þeir mis
heyrðu tóninn í launafólki svo illilega
að þeir töldu sig vandræðalaust get
að valið þessa tímasetningu til að fara
bratt í hækkun virðisaukaskatts á mat
í fjárlagafrumvarpinu og styttingu at
vinnuleysisbótatímabilsins eða að
þeir hafi alveg séð þessi hörðu við
brögð fyrir en samt látið vaða. Ekki
gott að segja hvort er verra.
Allt frá því gengið var frá skamm
tímasamningi á almennum vinnu
markaði um áramót hefur það leg
ið fyrir að sá stutti friður sem hann
skapaði var skilyrtur af hálfu ASÍ.
Samningurinn átti að vera partur
af breiðri samstöðu um að leggja
áherslu á stöðugleika og hóflegar
kauphækkanir. Útkoman átti að vera
stöðugleiki í gengi og verðlagi og það
virðist líka hafa tekist alveg bæri
lega. Enda er Bjarni ánægður með
árangurinn: „Okk ur hef ur tek ist að
ná bönd um á verðbólg unni og geng
ið er stöðugt. Ný störf eru að verða til
margt já kvætt að ger ast,“ seg ir hann.
En Bjarni og Sigmundur þurfa líka
að rifja upp að á árinu var samið um
meiri hækkanir við aðra hópa og for
stjóralaun þutu langt út úr korti. Það
vakti gremju. Álögum var á sama
tíma létt af breiðu bökunum. Fjár
lagafrumvarp með styttingu bóta
tímabils og hækkun matarskatts á
þessum tímapunkti, þar sem þar að
auki er stillt upp ófullnægjandi mót
vægisaðgerðum fyrir láglaunahópa
og lífeyrisþega, hlaut þess vegna að
verða eins og sniðið til að efna til
illinda við óþolinmóða verkalýðs
forystu.
Það er örugglega skynsamlegt
að hverfa smám saman frá því að
nota lægra virðisaukaskattþrep á
mat sem tekjujöfnunartæki. Að létta
þannig undir matarkaupum hjá rík
um jafnt sem fátækum er óskil
virk skattheimta. Sömuleiðis er ein
földun vörugjalda bráðnauðsynleg.
En hlutirnir þurfa samt að gerast í
réttri röð. Matvara kostar of mikið
nú þegar. Buddan hjá þeim sem
minnst hafa þolir engar verðhækk
anir á henni. Góð byrjun væri þess
vegna að byrja að lækka ofurtolla
á innfluttum mat, eins og Þórólfur
Matthíasson hagfræðiprófessor er
að leggja til. Það gæti líka leitt til
lækkunar á innlendum matvælum. Í
stað þess að lækka vörugjöld á flat
skjáum og ísskápum sem mótvægi
myndi lækkun ofurtolla á innfluttar
landbúnaðarvörur auk lækkunar
vörugjalds á matvöru leiða til sömu
niðurstöðu.
Hærri vaskur á mat er og verður
pólitískt sprengiefni og er stað
reyndin einfaldlega sú að þetta er
illseljanleg breyting á skattkerfinu,
hversu skynsamleg sem hún kann að
vera út frá skattatæknilegum sjónar
miðum. Fólk almennt kaupir ekki þá
skýringu að matvara sem hlutfall af
neyslu sé svipað hjá tekjulágum og
tekjuháum – 14 til 15 prósent. Með
altöl eru varhugaverð í þessu. ASÍ
hefur bent á að tekjulægstu heimilin
nota allt að fimmtungi ráðstöfunar
tekna sinna til kaupa á mat á með
an tekjuhæstu heimilin nota tæp 10
prósent.
Í upplýsingapakkanum sem fylgir
fjárlagafrumvarpinu segir meðal
annars um áhrif skattbreytingar
tillagnanna: „Samanlagt eru áhrif
þeirra talin mjög lítil, en þó frem
ur til lækkunar á ráðstöfunartekjum
heimila en hitt, vegna styttingar á
bótatímabili atvinnuleysisbóta.“
Þegar þessi atriði eru skoðuð þarf
engan að undra að ASÍ blási núna í
herlúðra og vilji að aðildarfélög ASÍ
undirbúi sig og félagsmenn sína
fyrir harðari deilur við gerð kjara
samninga en verið hefur um ára
tuga skeið. n
Enginn skilur neitt
Enn hefur enginn svarað mikil
vægustu spurningunni í stóra
Fiskistofumálinu: Af hverju er
verið að flytja stofnunina?
Jú, þetta er einhvers konar
byggðastefna sem Framsóknar
flokknum þykir vera góð í sjálfu
sér. Flokkurinn tekur ákvörðun
um að flytja heila stofnun norð
ur í land af því hann getur það
og engu máli virðist skipta að
enginn skilur af hverju.
Svo bregst flokkurinn við
gagnrýni á óútskýrðu aðgerðina
með mótvægisaðgerðum og
peningagjöfum en enginn skilur
upp né niður í ákvörðuninni til
að byrja með.
Vinstrisinnuð moldvarpa
Páll Vilhjálmsson, blaðamaður
og bloggari, hefur löngum þótt
vera með nokkuð sérstæðar
skoðanir.
Nýjasta útspil
Páls er að Leka
málið úr innan
ríkisráðuneytinu,
sem blaðamenn
DV hafa fjallað
talsvert um, sé
samsæri vinstrimanna gegn
Hönnu Birnu. Upphaf samsær
iskenningarinnar má rekja til
þess að vinstri stjórnin skip
aði núverandi ríkissaksóknara í
starfið á síðasta kjörtímabili.
Svo segir Páll: „Líklegast er
að heimildarmaður Jóns Bjarka
[Magnússonar] sé vinstrimaður,
ráðinn til innanríkisráðuneyt
isins í tíð vinstristjórnarinnar,
og að viðkomandi vinstrimaður
starfi sem moldvarpa í þágu
vinstrimeirihlutans sem al
menningur flæmdi frá völdum
vorið 2013.“
Fiskistofufjötrar
Framsóknarflokkurinn hefur
sjaldan verið feiminn við að
taka umdeildar ákvarðanir.
Flutningur Fiski
stofu til Akur
eyrar var umdeil
anleg ákvörðun
og nú hefur
Sigurður Ingi
Jóhannsson
sjávarútvegsráð
herra tekið aðra ákvörðun sem
orkar ekki síður tvímælis. Sú
ákvörðun er gerð til mótvægis
við fyrri ákvörðunina.
Þeir starfsmenn Fiskistofu
sem kjósa að flytja til Akureyr
ar með stofnuninni fá þriggja
milljóna króna styrk frá ríkinu til
að koma sér fyrir. Væntanlega er
styrkurinn notaður til að lokka
starfsmennina norður og til að
draga úr gagnrýni á flutning
stofnunarinnar. Starfsmennirnir
þurfa hins vegar að skuldbinda
sig til að vinna hjá Fiskistofu í
tvo ár til að njóta styrksins til
fulls. Á meðan verða þeir í átt
hagafjötrum á Akureyri, eins
konar Fiskistofufjötrum.
Helgarblað 19.–22. september 2014
Skotland við vatnaskil
Þ
egar þetta er skrifað á
fimmtudegi, stendur yfir
söguleg þjóðaratkvæða
greiðsla í Skotlandi, þar
sem Skotar ákveða, hvort
þeir munu taka sér sjálfstæði eða
ekki. Þjóðaratkvæðagreiðslan vekur
athygli um allan heim. Kjörsókn er
mikil. Skozki þjóðarflokkurinn hef
ur nú meiri hluta í skozka þinginu.
Flokkurinn hefur lengi mælt fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis í Skotlandi
og var stofnaður um það stefnumið
1934.
Viðskipti og friður
Málflutningur sjálfstæðissinna er
reistur á tvennum höfuðrökum.
Viðskiptahagsmunum Skotlands er
vel borgið innan ESB, segja þeir, og
efnahagsþörfin, sem knúði okkur
til aðildar að brezka konungdæm
inu 1707, er því úr sögunni. Þetta er
þó ekki alveg rétt, þar eð England
er langmikilvægasta viðskiptaland
Skota eftir þeirri gömlu reglu, að
þjóðir kjósa jafnan að skipta mest við
næstu nágranna sína. Stuðningur
inn við sjálfstætt Skotland væri mun
minni meðal kjósenda, væri Bret
land ekki í ESB. Varnarhagsmunum
Skotlands er einnig vel borgið, þar eð
ESB tryggir frið í álfunni. Þörfin fyrir
aðild að konungdæminu til að halda
friðinn milli Englands og Skotlands
er einnig fortíðarmúsík. ESB er smá
ríkjabandalag, segja Skotar: þar eru
mörg smáríki innan um fáein stór
ríki, og það hentar okkur vel. Ætla
má, að sjálfstætt Skotland sæki um
aðild að NATO auk ESB eins og t.d.
Eystrasaltslöndin og AusturEvrópu
löndin gerðu eftir hrun Sovétríkj
anna og að umsóknum Skota verði
vel tekið.
Ólíkar fyrirmyndir
Í annan stað segjast Skotar vera ólíkir
Englendingum að ýmsu leyti, þegar
öllu er á botninn hvolft. Það er engin
tilviljun, að Íhaldsflokkurinn á bara
einn skozkan þingmann í London,
en skozkir þingmenn Verkamanna
flokksins eru 41. Íhaldið á ekki upp á
pallborðið í Skotlandi. Það er engin
tilviljun, að skólagjöld eru yfir höfuð
ekki talin koma til greina í skozk
um ríkisháskólum, ekki frekar en
t.d. í Danmörku, Noregi og Sví
þjóð, en skólagjöld í ríkisháskólum
eru nú alsiða á Englandi að banda
rískri fyrirmynd. Skozkir sjálfstæðis
sinnar segjast vilja taka Ísland sér
til fyrirmyndar við samningu nýrrar
stjórnarskrár, enda trúa þeir því ekki
enn, að Alþingi sé alvara með því
að ganga gegn niðurstöðu þjóðar
atkvæðagreiðslunnar um stjórnar
skrána 2012.
Skozkir sjálfstæðissinnar segja
við Englendinga: Við kjósum að
sækja okkur fyrirmyndir til Norður
landa, en þið lítið heldur til Banda
ríkjanna. Við skulum því skilja, og
skilja í góðu, þar eð eitt er enn betra
en gott hjónaband, og það er góður
skilnaður. Ef við stofnum sjálfstætt
ríki, segja Skotar við íhaldið, losnum
við undan stjórn ykkar, og þið losnið
við okkur af þinginu í London og
getið þá ráðskazt með ykkar kjósend
ur sunnan landamæranna eins og
ykkur lystir. Það verða að teljast góð
skipti. Framkvæmdaatriði varðandi
gjaldeyrismál og skiptingu ríkis eigna
og skulda og tekna af olíuauðnum
hljótum við að geta leitt til lykta eins
og siðuðu fólki sæmir, segja Skotar.
Englendingar urra á móti.
Sjálfum finnst mér sjálfstætt
Skotland, kjósi Skotar það sjálfir,
vera jafn sjálfsagt og sjálfstætt Aust
urríki, og Þjóðverjar eru sama sinnis
um Austurríki. Mér finnst sjálfstætt
Skotland einnig vera jafn sjálfsagt
og sjálfstætt Taívan, en það finnst
Kommúnistastjórninni í Kína að vísu
ekki. Þar skilur milli feigs og ófeigs.
Fordæmi Dana
Urrið í Englendingum hlýtur að
hjaðna og ólundin að minnka,
ef Skotar kjósa sjálfstæði og
Englendingar standa frammi fyrir
orðnum hlut. ESB hlýtur að breiða
út faðminn á móti Skotum eins
og mörgum öðrum aðildarríkj
um undangengin ár. Efnahagsaf
leiðingar stofnunar sjálfstæðs ríkis í
Skotlandi þurfa ekki að valda áhyggj
um, nema Englendingar ákveði að
refsa Skotum og stofna til illinda, og
því verður varla trúað á Englendinga
að óreyndu.
Enskir íhaldsmenn þurfa að gang
ast við sínum hluta ábyrgðarinnar á
þeirri stöðu, sem upp er komin. Þeir
daðra opinskátt við þá hugmynd
að leiða Bretland út úr ESB, m.a. af
ótta við Brezka Sjálfstæðisflokkinn
(UKIP), sem sækir í sig veðrið skv.
skoðanakönnunum líkt og aðrir slík
ir flokkar í Evrópu, þótt hann eigi
ekki enn fulltrúa á þinginu í London.
Skozkir þjóðernis og sjálfstæðis
sinnar eru Evrópusinnar og mega
ekki til þess hugsa að hrekjast úr ESB
fyrir tilstilli Englendinga. Þeir líta
margir á daður Englendinga við úr
sögn úr ESB sem sjálfstætt tilefni til
stofnunar sjálfstæðs ríkis í Skotlandi
til að geta haldið áfram veru sinni í
ESB. Það lýsir tvískinnungi enskra
íhaldsmanna, að þeir skuli mæla
gegn sjálfstæðu Skotlandi um leið og
þeir daðra við að draga Skota nauð
uga út úr ESB.
Fari svo, að Skotar lýsi yfir sjálf
stæði, ættu Englendingar að hug
leiða að taka Dani sér til fyrirmynd
ar og þá m.a. drengilega framgöngu
Dana gagnvart Íslendingum, þegar
sjálfstætt ríki var stofnað á Íslandi
1944, án þess að hernumin Danmörk
fengi rönd við reist. Danska stjórnin
lét Íslendinga aldrei gjalda lýðveld
isstofnunarinnar, heldur studdi hún
Ísland áfram með ráðum og dáð og
skilaði okkur m.a.s. handritunum
aldarfjórðungi síðar. Drengskap
ur Dana í garð Íslands verður lengi í
minnum hafður. n
„Urrið í Englending-
um hlýtur að hjaðna
og ólundin að minnka, ef
Skotar kjósa sjálfstæði
og Englendingar standa
frammi fyrir orðnum hlut.
Þorvaldur Gylfason
skrifar
Kjallari
Leiðari
Hallgrímur Thorsteinsson
hallgrimur@dv.is
„Matvara kostar
of mikið nú þegar.
Buddan hjá þeim sem
minnst hafa þolir engar
verðhækkanir á henni.
Að pissa á hús og
húsveggi er dónalegt
Margrét Erla Maack vill að karlmenn mígi innandyra. – Kjarninn
Undarleg tilfinning að eignast
og missa strax aftur dóttur
DJ Margeir lenti í hrekkjalómi og fékk bréf þar sem sagt var að hann ætti dóttur. – Facebook