Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Side 32
Helgarblað 19.–22. september 201432 Fólk Viðtal
K
ollegar þínir frá Svíþjóð
hafa verið að hringja í mig
í morgun og spyrja mig um
þetta,“ segir hinn sænski
Lars Lagerbäck, þjálfari
íslenska karla knattspyrnulands
liðsins, þegar blaðamaður slær á
þráðinn til hans. Lars var þá stadd
ur á heimili sínu í Svíþjóð, nýkom
inn heim eftir ráðstefnu í Rúss
landi. Ástæða hringinganna er
nýútkominn styrkleikalisti frá FIFA,
en íslenska landsliðið er nú í 34.–
35. sæti og hefur aldrei verið jafn
ofarlega.
Lars ólst upp á sveitabæ rétt
fyrir utan smábæinn Ånge í Sví
þjóð, sem er í um 100 kílómetra
fjarlægð frá Sundsvall. Hann spil
aði fótbolta á sínum yngri árum,
var í körfubolta og renndi sér á
skíðum. Frá árinu 1977 hefur hann
fengist við knattspyrnuþjálfun og
er nú iðulega fenginn til að tala á
þjálfaranámskeiðum og ráðstefn
um, á milli þess sem hann sinnir
landsliðinu. Hann segir Hel
ene, eiginkonu sína, hafa vitað að
hverju hún gekk þegar þau fóru að
rugla saman reytum fyrir nokkrum
árum, hans líf snýst um fótbolta.
„Hún vissi hvernig þetta er“
„Hvernig hafið þið það í Reykja
vík?“ spyr Lars með sinni rólegu
rödd, jafn yfirvegaður og hann
virðist vera í sjónvarpsviðtölum.
Jafnvel eftir stærstu sigurleiki Ís
lands undir hans stjórn hefur hann
verið afar rólegur, jarðbundinn og
einbeittur gagnvart verkefninu.
Hvernig er venjulegur dagur í lífi
Lars og hvernig fer vinnan hans
fram? „Mikið snýst um fótbolta.
Ég reyni að sjá eins marga leiki
og ég get, sérstaklega til að skoða
leikmenn sem eiga möguleika
á að komast í liðið. Við Heimir
vinnum náið saman, skipuleggj
um leiki fram í tímann og grein
um leiki andstæðinganna. Í kring
um það er mikið skipulag og um
þetta snýst mitt líf og vinna,“ segir
Lars. Þegar blaðamaður spyr hvað
eiginkonu hans finnist um þetta
er svarið einfalt. „Við höfum ekki
verið saman mjög lengi en þetta
hefur ekki verið vandamál hing
að til. Hún vissi hvernig þetta var
þegar við kynntumst og þetta kom
því ekkert á óvart,“ segir Lars sem
segist ekki ferðast mikið vinnunn
ar vegna. Frekar reynir hann að sjá
leiki í sjónvarpi eða á upptöku og
Töframaðurinn Lagerbäck
„Ég
er að
verða alltof
gamall í þetta
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Knattspyrnuþjálfarinn Lars Lagerbäck hefur komið eins og stormsveipur
inn í íslenskt knattspyrnulíf og blásið þjóðinni von í brjóst um að íslenska karla-
landsliðið í knattspyrnu geti komist á stórmót. Þessi jarðbundni og yfirvegaði
Svíi hefur ekki gefið mikið af sér í viðtölum og heldur sínu persónulega lífi mjög
utan við kastljós fjölmiðla. Hann hefur farið hringinn um Ísland, verið sakaður
um mútur í Nígeríu og verið kosinn leiðinlegasti maður Svíþjóðar. Rögnvaldur
Már Helgason komst þó að því að hann er allt annað en leiðinlegur.
„Í Nígeríu
eru hlutirnir
aðeins flóknari
Alvörugefinn „Ég vona að ég sé alvörugefinn og
duglegur einstaklingur. Þannig var ég alinn upp og á sveita-
bænum sem fjölskyldan bjó á lærði ég þetta.“ Mynd ReuteRs