Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 33
Helgarblað 19.–22. september 2014 Fólk Viðtal 33
þá reynir hann helst að eyða tíma
sínum hér á landi ef hann fer eitt-
hvert.
Fór hringinn um landið
Í fyrra tók hann sér frí hér á Íslandi
og ferðaðist um landið í rúma viku
með Helene. Þannig vildi hann
kynnast landinu betur og pældi
lítið í fótbolta meðan á ferðalaginu
stóð. „Mig langaði til að sjá alla eyj-
una og við keyrðum hringinn um
landið,“ segir Lars en blaðamaður
stenst þó ekki mátið og spyr hvað
honum hafi fundist um aðstöðuna
í hverjum bæ sem hann heimsótti,
þá sérstaklega sparkvellina. „Að-
stæður hér á landi eru frábærar
og ég hef verið mjög hrifinn af því
sem ég hef séð. Til dæmis í Vest-
mannaeyjum, þar sem er góð að-
staða fyrir alls konar íþróttir. Alls
staðar eru sundlaugar, inni og úti,
íþróttahallir og fótboltavellir inn-
andyra. Þetta heillaði mig mikið,
sérstaklega hve auðvelt allir eiga
með að æfa íþróttir. Í raun finnst
mér Ísland mjög heillandi, sama
hvert er litið,“ segir Lars.
Alvörugefinn og duglegur
Honum er þó tíðrætt um það í við-
talinu hve gamall hann sé orðinn
– of gamall til þess að gera ýmsa
hluti, en þegar blaðamaður bið-
ur hann um að lýsa sjálfum sér
á hann erfitt með það. „Aðrir
verða að lýsa mér held ég,“ seg-
ir Lars og hlær. „Ég vona að ég sé
alvörugefinn og duglegur einstak-
lingur. Þannig var ég alinn upp
og á sveitabænum sem fjölskyld-
an bjó á lærði ég þetta. Bærinn er
í þorpi, rétt fyrir utan Ånge sem er
um 100 kílómetra frá Sundsvall,“
segir Lars. Hann á enn lítið hús í
þorpinu sem hann fékk í arf frá for-
eldrum sínum.
„Þegar ég hef tækifæri til reyni
ég að fara þangað eins oft og ég
get, til að hlaða rafhlöðurnar og ná
að safna orku. Mér finnst reyndar
líka mjög gott að fara þangað til
að skipuleggja, í þeirri kyrrð og
ró sem þarna er. Áhugamálin mín
eru ekki mörg, eftir því sem ég
verð eldri hef ég hætt í íþróttum en
lengi spilaði ég golf og tennis. Ég
er að verða alltof gamall í þetta,“
segir Lars léttur. Á sínum yngri
árum segir hann að fótbolti, körfu-
bolti og skíði hafi átt hug hans
allan. Hann gerir þó lítið af því að
veiða, hvort sem er í skotveiði eða
stangveiði, og hefur því ekki próf-
að veiði hér á landi. „Þegar ég er á
Íslandi fer mikill tími í vinnuna og
ég reyni að sjá eins marga leiki og
ég get þar. Stundum tek ég mér frí
til að gera eitthvað, en það er sjald-
an þegar ég er á Íslandi,“ segir Lars.
Sakaður um svindl í Nígeríu
Lars þjálfaði í Svíþjóð lengst af og
árið 2010 tók hann við nígeríska
landsliðinu. Blundar ævintýra-
mennska í Lars? „Ég hef mikinn
áhuga á því hvernig samfélög virka
í mismunandi heimshlutum, og
stjórnmálum annarra landa. Auð-
vitað var þetta svolítið ævintýri en
það skipti miklu máli að liðið var á
leiðinni á heimsmeistaramótið og
það var frábær reynsla að fara með
liðinu þangað. Eftir að hafa farið
tvisvar með sænska landsliðinu
þá var þetta spennandi verkefni,“
segir Lars. Eftir að hann var ráð-
inn fóru flökkusögur af stað um að
Lars og umboðsmaður hans hefðu
mútað þeim sem sáu um ráðn-
inguna. Hann þvertekur fyrir að
slíkt hafi átt sér stað.
„Lögmaður frá Englandi hafði
samband við mig og spurði hvort
ég hefði áhuga á þessu. Sjálfur
hafði ég ekki hugsað um það en
sagðist vera opinn fyrir hverju sem
er, meðan það væri spennandi.
Þetta um mútur er lygasaga, ég var
aldrei beðinn um neitt slíkt eins
og einhverjir héldu fram. Þetta er
annar menningarheimur og ég var
óvanur því að svona sögur færu
af stað. Ekki veit ég hvaðan þessi
saga kom,“ segir Lars en hann
hætti nokkrum mánuðum eftir
að hann tók að sér starfið, þegar
heimsmeistaramótinu lauk.
Öðruvísi menning
„Í Nígeríu eru hlutirnir aðeins
flóknari og það eru margir sem
tengjast fótboltanum. Ríkisstjórn-
in tengist knattspyrnusambandinu
náið svo maður þarf að setja mik-
inn tíma og orku í hluti sem í raun
tengjast ekki fótbolta. Aðalástæð-
an fyrir því að ég vildi ekki halda
áfram var sú að þegar við komum
heim frá mótinu fóru sögur af stað
um spillingu innan sambandsins
og að yfirmenn þar hefðu tekið sér
peninga frá sambandinu. Sumir
í stjórninni lentu jafnvel í fang-
elsi. Nýja stjórnin vildi halda mér
áfram og þrátt fyrir að mér hafi lík-
að þessi tími og landið, þá ákvað
ég að þarna væri þetta orðið gott af
þessu starfi,“ segir Lars.
Landsliðið spilaði of vel
Rúmu ári síðar var Lars Lagerbäck
ráðinn til KSÍ og hann segir að
þegar hann hafi horft á leik-
mannahópinn hafi hann séð hve
spennandi verkefnið var. Markmið
Lars er að koma landsliðinu á stór-
mót og stór áfangi náðist á fimmtu-
dag þegar nýr styrkleikalisti FIFA
var gefinn út. Landsliðið situr nú
í 34.–35. sæti og hefur aldrei verið
ofar á listanum. Á Beinni línu hjá
DV árið 2012 sagði Lars að mark-
miðið væri að koma liðinu í topp
55 á listann innan tveggja ára. Það
hefur tekist, svo um munar.
„Það sýnir að við höfum náð
góðum árangri og erum að verða
betra lið með hverjum leik. Auð-
vitað er ég mjög ánægður með
þetta, samstarfið við leikmenn og
starfsmenn KSÍ hefur verið frá-
bært. Vonandi getum við tekið
fleiri skref fram á við og orðið betri.
Á síðasta ári vorum við hársbreidd
frá því að komast á HM og liðið
spilaði nánast of vel. Nú byggjum
við á því og það er stærsta áskor-
unin, að halda þessu áfram í hverj-
um leik. Við minnum leikmenn
vel á hvað gerðist gegn Kýpur í síð-
ustu undankeppni, þegar við töp-
uðum eftir að hafa spilað vel leik-
inn áður. Það sama gildir nú,“ segir
Lars og vísar þar til næsta leiks
gegn Lettlandi, andstæðings sem
er mun lægra skrifaður en Tyrk-
land sem liðið vann frækinn sigur
á í síðasta leik.
Hrósar leikmönnum
Lars segir að það hafi komið sér
vel hve langan undirbúning liðið
fékk fyrir leikinn gegn Tyrklandi.
Það hjálpaði honum og Heimi að
koma liðinu andlega á þann stað
sem þurfti og til að gleyma síð-
ustu undankeppni og góðu gengi
þar. Nú er ný keppni byrjuð og sú
síðasta telur ekkert. „Við erum líka
heppnir með meiðsli en það verður
að hrósa leikmönnum hvernig þeir
tóku á þessu verkefni og hvern-
ig þeir nálguðust það. Þeir gerðu
virkilega vel í sínum undirbúningi,“
segir Lagerbäck.
Að lokinni síðustu undankeppni
var samningur Lars laus og hann
gat því róið á önnur mið. KSÍ lagði
mikla áherslu á að halda honum
og knattspyrnusambönd annarra
þjóða sýndu honum áhuga. Hvers
vegna ákvað hann að vera áfram?
„Mér líkaði virkilega vel við þetta
starf. Þegar ég horfði á liðið og alla
þá ungu leikmenn sem hafa ver-
ið, og eru, að standa sig mjög vel
þá sá ég hvað þetta var spennandi.
Sama ástæða átti stærstan þátt í
því að ég tók þessu tilboði í upp-
hafi. Eftir að ég hafði kynnst þess-
um leikmönnum varð ég enn já-
kvæðari fyrir þessu starfi, þeir eru
agaðir, vilja bæta sig, hafa áhugann
og vilja gera vel með landsliðinu,“
segir Lars.
„Bara þreifingar“
Hann hefur í gegnum tíðina verið
orðaður við lið eins og Wales,
Austur ríki og Skotland. Hafði hann
aldrei áhuga á því að reyna fyrir sér
annars staðar? „Sum liðin höfðu
spurst fyrir um mig áður en ég
kom til Íslands en það var aldrei
neitt fast í hendi og bara þreifingar.
Þegar Geir hafði samband við mig
í fyrsta skipti þá sagði ég við hann
að ég myndi ekki semja við neinn
fyrr en við hefðum talað saman.
Nokkrum vikum síðar hittumst við
og ég ákvað að taka tilboðinu frá
KSÍ vegna þeirra ástæðna sem ég
hef talið hér upp. Á þeim aldri sem
ég er nú kominn á þá skipti það
mig miklu máli að taka við liði sem
innihélt unga og spennandi leik-
menn og möguleiki var á að fara
lengra með,“ segir Lars. n
Töframaðurinn Lagerbäck
„Hann hefur alveg skap“
„Fyrst og fremst er hann rólegur og yfirvegaður. Ég hef aldrei
heyrt hann tala illa um neinn, þetta er mjög góður maður,“
segir Heimir Hallgrímsson sem þjálfar landsliðið ásamt
Lars. „Það þarf mikið til að hann æsi sig, en hann hefur
alveg skap samt. Hann er í starfi sem hann hefur verið
lengi í og mér finnst það svo þægilegt, að sjá hvernig
reynslan nýtist honum. Hann hefur lent í flestu áður og
það er mjög lærdómsríkt fyrir mig að sjá hvernig hann
bregst við. Lars heldur sínu einkalífi og því persónulega
fyrir sig og þar spilar reynslan inn í. Í svona starfi er gott að
hafa ákveðin prinsipp og þetta er eitt þeirra. Hans helsti kostur,
sem er algjörlega til eftirbreytni, er að þegar eitthvað jákvætt gerist þá er hann
mjög fljótur að benda á aðra í kringum sig og sendir hrósið yfir á aðra. Á tímapunkti þar
sem hægt væri að baða sig í einhverju jákvæðu þá er hann svo fljótur að því. Það er sá
kostur sem ég vil helst læra af honum,“ segir Heimir. Hann á erfiðara með að nefna galla
Lars en nefnir þó að Svíum hafi ekki fundist hann nógu líflegur. „Hann var kosinn leiðin-
legasti maður Svíþjóðar þegar hann var landsliðsþjálfari, en ég held að við höfum náð að
poppa hann aðeins upp og hann hefur heilmikinn húmor,“ segir Heimir hlæjandi.
Sigurður Sveinn Þórðarson, sem er betur þekktur sem Siggi dúlla,
er liðsstjóri landsliðsins og hann á ekki í erfiðleikum með að
lýsa Lars. „Rólyndismaður, yfirvegaður og skipulagður. Topp-
einstaklingur sem hefur allt sitt á hreinu,“ segir Siggi. „Hann
er lítið í því að æsa sig, einhvern veginn er alltaf sami taktur
á honum sama hvað á gengur. Með landsliðinu þá er hann
duglegur að gefa af sér og ræðir mikið við leikmenn, athugar
hvernig þeir hafa það og annað slíkt. Frá okkar fyrstu kynnum
hefur hann verið eins, bara frábær,“ segir Siggi.
Með nígeríska landsliðinu „Auð-
vitað var þetta svolítið ævintýri en það
skipti miklu máli að liðið var á leiðinni á
heimsmeistaramótið og það var frábær
reynsla að fara með liðinu þangað.“
„Á síðasta
ári vorum
við hársbreidd frá
því að komast á
HM og liðið spilaði
nánast of vel