Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Qupperneq 36
Helgarblað 19.–22. september 201436 Skrýtið Sakamál Í dái eftir rafbyssuárás 17 ára syni lögreglumanns í Missouri í Bandaríkjunum er haldið sofandi á sjúkrahúsi eft- ir að umferðarlögreglumenn beittu hann rafbyssustuði við handtöku. Hann ók bíl sem tilheyrði konu sem var með handtökuskipun á bakinu. Lögreglan segir að hann hafi sýnt mótþróa við handtöku en vitni segja að pilturinn hafi verið rifinn út úr bílnum, stuð- aður með rafbyssu, stigið hafi verið á hann og að hann hlotið þungt höfuðhögg þegar hann skall í jörðina við að vera hand- járnaður. Talsmenn lögreglu- embættisins segja að pilturinn hafi „dottið.“ Fjölskyldan vill að FBI rannsaki málið. Fundu þrjú látin ungbörn Yfirvöld í Massachusetts í Banda- ríkjunum hafa fundið lík þriggja ungbarna í og við heimili konu sem var svipt fjórum börnum sín- um í síðustu viku. Heimilið var eins ógeðslegt og hugsast getur og var börnunum bjargað úr vægast sagt viðurstyggilegum aðstæðum þar sem skordýr, mannaskítur, eld- gamlar bleyjur og allur hugsanleg- ur óþrifnaður hafði fengið að rotna óáreittur um langa hríð. Það vakti nokkra athygli að kærasti konunn- ar, Eriku Murray, vissi bara af til- vist tveggja elstu barnanna af þess- um fjórum sem eru á aldrinum 13 ára, 10 ára, 3 ára og 6 mánaða. Nágranni fann yngsta barnið þak- ið saur, grátandi úti í garði, í ágúst síðastliðnum og varð það til þess að lögregla tók til sinna mála. Eriku, sem er 31 árs, er nú haldið á viðeigandi stofnun þar sem hún virðist eiga við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Ekki er vitað hvort hún hafi sjálf eign- ast börnin sem fundust látin en rannsókn á líkunum er á frum- stigi. Erika hefur ekki verið ákærð fyrir manndráp en á yfir höfði sér fjölmargar ákærur. Nauðgað af hjúkku Hjón hafa höfðað mál gegn Advocate Christ-sjúkrahúsinu í úthverfi Chicago í Bandaríkjun- um og krefjast 150 þúsund dala í skaðabætur vegna kynferðisbrots sem maðurinn varð fyrir. Forsaga málsins er að maðurinn lá á gjör- gæsludeild sjúkrahússins árið 2012 og beið eftir hjartaígræðslu. Maðurinn heldur því fram hjúkr- unarkona hafi notfært sér ástand hans og nauðgað honum þar sem hann lá nær meðvitundarlaus undir stífri lyfjagjöf. Hjónin saka sjúkrastofnunina um vanrækslu vegna þess að umrædd hjúkr- unarkona hafði áður gerst sek um sambærilegt athæfi. Hún var fyrr á árinu áminnt af ríkinu fyrir að upplýsa ekki vinnuveitanda sinn um að hún hefði áður verið rek- in fyrir að „fara yfir strikið“. NBC Chicago segir ekki liggja fyrir hvar konan starfi núna en að hún sé enn með virkt starfsleyfi. n Christopher var sleppt gegn tryggingu n Fyrir það galt kona með lífi sínu F aðir Stacey Westbury gafst upp á að hringja í hana eftir fimm árangurslaus- ar tilraunir. Það var henni ekki líkt, 23 ára „pabba- stelpu“, að hafa slökkt á farsíman- um. Þetta var 18. ágúst árið 2007 og föður Stacey leist ekki meira en svo á blikuna að hann sagði við eigin konu sína: „Ég held ég skjót- ist til hennar og athugi hvort ekki sé allt í sómanum.“ Stacey bjó í Fulham í vesturhluta London með 10 mánaða syni sínum og þegar faðir hennar lagði bifreið sinni fyrir utan íbúð hennar tók hann eftir því að enn var dregið fyrir gluggana. Enginn kom til dyra er hann hringdi dyrabjöllunni og þótt hann berði kröftuglega á úti- hurðina varð þar lítil breyting á. Hann kíkti inn um bréfalúguna og sá dótturson sinn í vöggunni og heyrði kjökrið í honum. Látin í 18 klukkustundir Útidyrahurðin gaf ekki eftir þrátt fyrir að hann henti sér á hana af fullum þunga og greip hann því til þess ráðs að brjóta rúðu og teygja sig í læsinguna. Inni mætti föður Stacey undarlegur þefur og hann kallaði eftir dóttur sinni. Stacey lá nakin, marin og blóðug á sófan- um skammt frá vöggu sonar síns. Hún hafði verið stungin, barin, tuskuð til og kynferðislega misnot- uð. Faðir hennar fraus í sporunum og það var ekki fyrr en dótturson- ur hans lét í sér heyra að hann tók við sér. Hann tók drenginn upp og huggaði hann á sama tíma og tárin streymdu niður hans eigin kinnar. Varhugaverður kunningi Það sem átti sér stað kvöldið áður var að Christopher nokkur Braithwaite hafði bankað upp á. Christopher þessi var 22 ára og hafði á árum áður verið skólafélagi Stacey og með þeim var enn kunn- ingsskapur, þótt veigalítill væri. Christopher var krakkfíkill og voru kynferðislegir glæpir gegn konum á meðal þess sem lesa mátti í saka- skrá hans. Christopher hafði rutt sér leið inn til Stacey, vopnaður stórum eldhúshníf og hann stakk hana í hálsinn, kviðinn og víðar áður en hann misþyrmdi henni kynferðislega og kyrkti að því loknu. Sneri aftur á vettvang Upptökur úr öryggismyndavélum í nágrenninu sýndu að Christopher hafði farið inn í íbúðina rétt fyrir morðið. Einnig sýndu þær að hann sneri aftur á vettvang glæpsins í morgunsárið og lét hann þá greip- ar sópa um íbúðina og tók skart- gripi, farsíma og reiðhjól til að selja til að fjármagna krakkneyslu sína. Á meðan sonur Stacey grét sár- an reyndi Christopher að þrífa burt blóðið úr Stacey og fjarlægja ýmis verksummerki – en skildi eigin skyrtu, blóði drifna, eftir á vettvangi. Laus gegn tryggingu Ekki liðu margir tímar áður en lögreglan handtók Christopher Braith waite. Reyndar hafði hann einnig verið handtekinn viku áður grunaður um að hafa nauðgað ungri konu. Í því máli taldi ákæru- valdið að ekki lægju fyrir nógu af- dráttarlausar sannanir fyrir sekt Christophers svo unnt væri að leggja fram kæru á hendur honum og var honum því sleppt gegn tryggingu eftir eins dags varðhald. Lögreglumenn reiddust heiftar- lega vegna þeirrar ákvörðunar því þeir töldu sig búa yfir nægum sönnunargögnum til að réttlæta að Christopher sætti varðhaldi á meðan rannsókn þess máls yrði fram haldið. En nei, samkvæmt þá nýlegri ákvörðun stjórnvalda var það brot á mannréttindum að neita fólki um lausn gegn tryggingu, jafnvel þótt um væri að ræða jafn alvarleg ákæruatriði og nauðgun. Reiði í garð réttarkerfisins Málið kveikti elda mikillar reiði í garð réttarkerfis sem gerði manni með sögu ofbeldis í garð kvenna kleift að ganga laus og ráðast á og myrða á ný. Christopher Braith- waite fékk lífstíðardóm og sagði dómarinn að hann yrði að afplána að minnsta kosti 30 ár og myndi ekki eiga þess kost að fá reynslu- lausn ef hann teldist enn hættuleg- ur konum. Það má teljast ljóst að þetta mat dómarans er ekki reist á sandi því á sakaskrá Christophers er að finna sex önnur ákæruefni fyrir nauðgun, frelsissviptingu og líkamsmeiðingar og verður gripið til þeirra ef þörf þykir. n „Á meðan sonur Stacey grét sár- an reyndi Christopher að þrífa burt blóðið úr Stacey og fjarlægja ýmis verksummerki – en skildi eigin skyrtu, blóði drifna, eftir á vettvangi. Hættulegur glæpamaður Christopher mun þurfa að dúsa í fangelsi að lágmarki í 30 ár. Voru skólafélagar Stacey var myrt á hrottalegan hátt af fyrrverandi skólafélaga. Myrti Móður Meðan sonurinn grét

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.