Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 45
Menning 45Helgarblað 19.–22. september 2014 Að troða hreindýri inn um skráargat Huldar Breiðfjörð um kvikmyndaskrif og leikritun, París norðursins og Gauka H uldar Breiðfjörð komst fyrst í sviðsljósið fyrir ferðasöguna Góðir Íslendingar, sem hlaut tilnefningu til Íslensku bók- menntaverðlaunanna árið 1998. Síðan þá hefur hann sent frá sér nokkrar bækur, en einnig látið að sér kveða í kvikmyndaskrifum og nú síðast leikritun. Nú á haustmánuðum eru tvö ný verk eftir Huldar í menn- ingarsviðsljósinu. Næsta föstudag verður leikritið Gaukar frumsýnt á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, en það er frumraun Huldars í leikritun. Á sama tíma trónir kvikmyndin Par- ís norðursins, sem hann skrifaði, á toppi aðsóknarlistans í kvikmynda- húsum landsins aðra helgina í röð. Feðgar byggja pall París norðursins er þriðja kvik- myndin í fullri lengd sem framleidd er eftir handriti Huldars. Samstarf hans og leikstjóra myndarinnar, Haf- steins Gunnars Sigurðssonar, á sér þó nokkurn aðdraganda. „Við kynntu- mst þegar við vorum að læra kvik- myndagerð í New York á árunum 2004 og 2007, hann í Columbia og ég í NYU. Við urðum fljótlega góðir vin- ir og töluðum mikið um bíómyndir á þessum árum. Við þekkjumst því vel og ég þykist yfirleitt vita hvaða skoðun hann hefur á þessari og hinni myndinni, og öfugt. Ég skrifaði fyr- ir hann lokaverkefnið í skólanum og upp úr því fórum við að tala um að gera mynd í fullri lengd. Síðan kom hann til mín með þessa hugmynd að París norðursins – sem var enn mjög einföld. Hann hafði séð fyrir sér feðga fyrir vestan sem væru að byggja pall og það gengi eitthvað brösuglega, samband þeirra væri stirt. Svo væri þarna einhver kona á sveimi. Ég tók þetta eiginlega bara þaðan og sagan fór að vinda upp á sig.“ Gagnrýnendur ekki lengur sömu sannleiksvélarnar Viðtökurnar hafa almennt verið góð- ar þó að ekki séu allir gagnrýnendur jafn hrifnir. Myndin fékk fjórar stjörn- ur hjá DV en tvær hjá Fréttablaðinu og nokkuð kaldar kveðjur. „Auðvitað gerum við okkur grein fyrir því að við erum með mynd sem er kannski ekki endilega fyrir alla, kannski sem betur fer. Þetta er svart og kómískt mann- legt drama um ósköp venjulegt fólk. Sumir vilja bara aksjónpakka þegar þeir fara í bíó. En hún var á toppnum aðra sýningarhelgina og það þykir besti mælikvarðinn á hvernig mynd er að spyrjast á Íslandi. Þannig að að- standendur myndarinnar eru mjög glaðir með viðtökurnar.“ Huldar segist ekki velta sér mikið upp úr mögulegum viðtökum þegar hann vinnur að verkum sínum en auðvitað byggist upp spenna þegar frumsýningarhelgin nálgast. Hann segir þó mikilvægi hreinræktaðrar kvikmyndagagnrýni fjölmiðla hafa breyst. „Það hafa orðið miklar breytingar á þessu gagnrýnenda- landslagi. Einu sinni var þetta þannig að það var einn krítíker á Moggan- um og einn á DV og þeir voru ein- hvers konar sannleiksvélar. En núna er umræðan allt í kringum mann og úti um allt. Alveg jafn sterk á Face- book og í fjölmiðlum. Ég er eigin- lega að upplifa í fyrsta skipti hversu breið og lýðræðisleg hún er orðin. En það er kannski munur á þegar kemur að bíói og bókum. Gagnrýn- andinn er lengi vel sá eini sem hefur lesið bókina þegar krítíkin hans birt- ist og því er rödd hans mjög sterk. En þegar kemur að bíómynd er gagn- rýnandinn bara einn af mörg þúsund manns sem hafa líka séð myndina þegar dómur hans birtist.“ Að troða hreindýri inn um skráargat Næstkomandi föstudag þreytir Huld- ar frumraun sína sem leikskáld, þegar leikritið Gaukar verður frum- sýnt í Borgarleikhúsinu. Verkið fjallar um tvo menn sem hittast á hótelher- bergi miðja vegu á milli Reykjavík- ur og Vestfjarða, sá eldri er að leita að góðum eiganda fyrir gæludýrið sitt og sá yngri hefur áhuga á dýrinu. „Þegar hann er kominn inn á her- bergið tekur eldri maðurinn hann í nokkurs konar persónuleikapróf til að athuga hvort það sé ekki í lagi með hann. Þá kemur upp ákveðið atriði sem margir myndu telja smáatriði en veldur því að skyndilega er fund- ur þeirra í uppnámi,“ útskýrir Huldar. Það er Jón Páll Eyjólfsson sem leik- stýrir, en Hilmar Guðjónsson og Jó- hann Sigurðsson leika aðalhlutverk- in. Hann segir það hafa verið skemmtilega reynslu að skrifa fyrir leikhús og um margt ólíkt kvik- myndaskrifum. „Það að skrifa kvik- myndahandrit er svolítið eins og troða hreindýri inn um skráargat, maður þarf að koma svo miklu fyr- ir inn í formið og ekki alltaf gefið að það gangi upp. Kvikmyndahandrit er mjög stíft form en í leikriti hefur maður aðeins meira rými og getur dvalið lengur við ákveðin atriði.“ En hvernig varð leikritið til? „Ég hafði gengið með þessa hugmynd í einhvern tíma en fór svo með hana í ritsmiðju á vegum FLH, Félags leik- skálda og handritshöfunda. Það var frábært að fá að vinna með fólkinu þar og fyrstu drögin að þessu leikriti urðu til í smiðjunni. Það voru mjög áhugaverðir hlutir að gerast þarna, til dæmis var Lilja Sigurðardóttir að byrja á Stóru börnunum í þessari sömu smiðju og hlaut svo Grímuna í fyrra. Það virðist margt spennandi framundan í íslenskri leikritun. Ein- hverju síðar sýndi ég Borgarleik- húsinu verkið og fólk þar á bæ fékk áhuga. Þá komst Jón Páll í málið og það hefur verið mjög skemmtilegt að vinna þetta áfram með honum.“ Karlmenn, nálægð og samskipti Bæði París norðursins og Gaukar fjalla um togstreitu í samskiptum tveggja karlkyns aðalsögupersóna. Huldar segir þessi líkindi þó vera að einhverju leyti tilviljun og ekki endi- lega benda til þess að karlmannleg samskipti og karlmennska sé honum svo hugleikin. „Ég skrifaði þessi verk á ólík- um tíma og það er tilviljun að þess- ar frumsýningar koma upp á svip- uðum tíma. Þegar Haddi Gunni var búinn að koma með pöntun á þess- um tveimur feðgum og konunni fyrir vestan velti ég lengi fyrir mér hvað ég ætti að gera við þá hugmynd. Ég fór svo að taka eftir því að það var fullt af tækifærum í feðgasambandinu til að skoða samskipti frá ýmsum sjón- arhornum. Og þennan hlutverkaleik sem við lendum oft í hérna á Íslandi. Eins og til dæmis þegar fólk mæt- ir á AA-fund þar sem fólk talar um óskilgreinda aðila en helmingurinn á fundinum veit nákvæmlega um hvern er verið að ræða. En auðvitað verða allir að spila með því annars virkar fyrirkomulagið ekki. Þessa skrítnu togstreitu á milli fjarlægðar og nálægðar sem er alltaf að koma upp í litla samfélaginu. Og auðvitað fjallar myndin líka um karlmennsk- una en þá aðrar hliðar á henni en yfir leitt og vonandi í nýju ljósi.“ Hvað er það þá sem hann vill ná fram með listaverkum sínum, hvað vill hann að fólk upplifi? „Mér leið- ast bækur og kvikmyndir þar sem höfundurinn er að bera á borð ein- hvern boðskap. Mér finnst það ekki hlutverk skáldskaparins lengur. En ég geri ráð fyrir því að maður vilji bregða stækkunargleri á eitthvað, í mínu tilviki eitthvað í kringum okk- ur hérna og kannski oft að sýna það í húmorísku ljósi. En þegar maður er kominn út í það vill maður líka snerta fólk með einhverjum hætti í leiðinni og skilja það eftir með nýjar spurningar, frekar en svör. Það er til dæmis margt í París norðursins sem feður geta velt fyrir sér.“ Þurfa að halda mörgum boltum á lofti Hvernig eru aðstæður til að lifa af listinni á Íslandi? „Það er örugglega jafn mikið hark og það hefur alltaf verið. Ein aðferðin er sú að vera með nóg af boltum á lofti, svo bara sjá hvað fer í gang. En takturinn þarf að vera svolítið hraður hjá skapandi fólki hér á landi ef það ætlar að lifa af þessu. Og stundum setur það mark sitt á hlutina. Engu að síður eru ótrú- lega góðir hlutir í gangi hérna mið- að við hvað þetta er lítið land, lítill markaður og litlir peningar.“ Getur þá verið að þrátt fyrir grósku í listum hér á landi geri að- stæðurnar íslenskum listamönnum ókleift að búa til virkilega stór og djúpstæð listaverk? „Það má al- veg velta því fyrir sér. Maður heyrir fólk stundum biðja um stóru breiðu skáldsöguna sem tekur mörg ár að búa til. En það er auðvitað fjárhags- lega erfitt fyrir íslenskan höfund að sitja í mörg ár yfir sama verkinu. Jonathan Franzen gæti ekki leyft sér að vera í tíu ár að skrifa íslenska skáldsögu. Hins vegar eru margar ís- lenskar skáldsögur sem voru skrif- aðar á tveimur árum miklu betri en það sem hann gerir á 10 árum. Þetta er því afstætt.“ Eins og íslenskum listamanni sæmir heldur Huldar nokkrum bolt- um á lofti þessa stundina, hvort heldur er af illri nauðsyn eða dugn- aði. „Ég er að skrifa bók og líka með nýtt leikrit í höfðinu. Við Hafsteinn Gunnar erum að þróa aðra kvik- mynd en við vitum ekki en hvenær hún fer í tökur, það er háð fjármagni og öllu því. En verkefnastaðan er mjög fín í augnablikinu.“ n „Einu sinni var þetta þannig að það var einn krítíker á Mogganum og einn á DV og þeir voru einhvers konar sannleiks- vélar. En núna er umræð- an allt í kringum mann og úti um allt. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Hið húmoríska stækkunargler Huldar Breiðfjörð segist vilja bregða stækkunargleri á um- hverfið í kringum sig og sýna í húmorísku ljósi. Mynd SiGtryGGur Ari tilbúin fjarlægð Sigurður Skúlason í hlutverki sínu í París norðursins. Mynd SKjáSKot úr StiKlu PAríS norðurSinS „Mér leiðist verk þar sem höfundurinn er að bera á borð einhvern boðskap

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.