Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 19.–22. september 201452 Fólk
Sendiboði friðar
Stórleikarinn Leonardo DiCaprio
hefur verið útnefndur sendi-
boði friðar, Messenger of Peace,
af Sameinuðu þjóðunum. Af
þessu tilefni mun leikarinn flytja
ávarp á alþjóðlegri ráðstefnu SÞ
um loftslagsbreytingar þriðju-
daginn 23. september næstkom-
andi. Í tilkynningu frá DiCaprio
segir hann nafnbótina mikinn
heiður og þá fagnar hann átaki
Sameinuðu þjóðanna í því sem
hann telur mikilvægasta verkefni
alþjóðasamfélagsins – að koma í
veg fyrir neyðarástand af völdum
loftslagsbreytinga.
Á árinu hefur leikarinn gef-
ið tíu milljónir Bandaríkjadala
til verndunar sjávar og 21. sept-
ember verður hann heiðraður af
Clinton-stofnuninni fyrir framlag
hans til umhverfismála.
Beyoncé ekki
barnshafandi
Orðrómur um að Beyoncé sé
ólétt að sínu öðru barni hefur
verið hávær síðustu daga.
Orðrómurinn virðist þó vera
rangur ef marka má myndir sem
söngdívan póstaði af sér á heima-
síðu sinni en myndirnar eru frá
afmælisveislu hennar sem hún
hélt í Frakklandi á dögunum. Á
myndunum sést hún dandalast á
ströndinni í afskaplega efnislitlu
bikiníi en fjölskyldan, ásamt
móður hennar, virtist skemmta
sér konunglega. Beyoncé og
maður hennar, Jay-Z, hafa fyrr
á þessu ári þurft að kæfa niður
orðróm þess efnis að þau væru að
skilja og nú að þau eigi von á sínu
öðru barni.
Mayim Bialik hatar Frozen
Vond birtingarmynd kvenna í vinsælustu Disney-mynd síðari ára
L
eikkonan Mayim Bialik sagðist í
bloggfærslu í vikunni hata Dis-
ney-myndina Frozen sem farið
hefur sigurför um heiminn að
undanförnu. Skemmst er frá því að
segja að ummælin hafa vakið gríðar-
leg viðbrögð.
Bialik, sem flestir þekkja úr þátta-
röðinni Big Bang Theory, nefnir
þrjár ástæður. Í fyrsta lagi segir
hún birtingarmynd kvenna vonda í
myndinni. „Söguþráður myndarinn-
ar snýst um leitina að manni, ást eða
prinsi, líkt og flestar teiknimyndir ætl-
aðar ungu fólki,“ skrifar Bialik með-
al annars og segist vera komin með
upp í kok á þeirri hugmynd að það
eina sem konur hugsi um sé að ná sér
í karlmann.
Í öðru lagi segir hún birtingarmynd
karlmanna engu skárri. Í ljós komi að
prinsinn eða hetjan
sé svikull óþokki.
Lærdómurinn sem
systurnar í myndinni
draga sé því að ekki sé
hægt að treysta karl-
mönnum.
Það versta við
Frozen segir Bialik hins
vegar vera útlit kven-
persónanna. Hún segir
þær teiknaðar í röng-
um hlutföllum líkt og
Barbie-dúkkur. Þær
séu með risastór augu,
pínulítið nef, lítið mitti,
þrýstin brjóst og stór höfuð. Karl-
persónurnar séu aftur á móti trú-
verðugri og í réttum hlutföllum. „Það
er eins og konur og karlar séu ekki af
sömu tegund,“ skrifar Bialik. n
Mayim Bialik Leikkonan fer
ófögrum orðum um Disney-
myndina Frozen. Mynd ReuteRs
elsa og Anna Bialik segir
kvenpersónur Frozen líta út e
ins og
Barbie-dúkkur.
Ævisaga Joan
Rivers í bígerð
Bandaríska bókaforlagið Little,
Brown & Co. sendi í vikunni frá
sér tilkynningu þess efnis að ævi-
saga sjónvarpskonunnar Joan
Rivers væri væntanleg á næsta
ári. Bókin verður skrifuð af blaða-
konunni Leslie Bennett. Aðal-
ritstjóri Little, Brown & Co. segir
Joan Rivers hafa verið fyrirmynd
milljóna manna en hún var sann-
kallaður brautryðjandi fyrir konur
bæði í sjónvarpi og í gríni. Eins og
kunnugt er lést hún 4. september
síðastliðinn 81 árs að aldri en hún
hætti að anda í miðri hálsskurð-
aðgerð og lá þungt haldin á spít-
ala í um viku áður en hún lést.
Pitt og Jolie láta smíða
50 milljarða ofursnekkju
n Um borð verður búnaður sem truflar slúðurblaðaljósmyndara
H
ið nýgifta stjörnupar Brad Pitt
og Angelina Jolie hefur látið
hanna fyrir sig ofursnekkju
sem nú er í smíðum. Það er
ítalski snekkjuhönnuðurinn
Rizzardi sem hannaði snekkjuna en
hún er talin kosta um 250 milljónir
punda eða tæpa 50 millj-
arða íslenskra króna.
En Rizzardi
fékk þó ekki alveg
frjálsar hendur
því Brangelina,
eins og þau eru
oft kölluð, hafa
tekið virkan
þátt í hönnun-
inni.
ný tækni um borð
Meðal þess sem verður um borð í
snekkjunni er glæný tækni sem get-
ur truflað ljósmyndabúnað ákafra
slúðurblaðaljósmyndara. Ekki liggja
fyrir nákvæmar upplýsingar um
þessa nýju tækni en hún er vægt
til orða tekið áhugaverð. Þá verður
einnig um borð fullkomið öryggis-
myndavélakerfi en þau hjón sækj-
ast eftir algjöru næði með kaupum
sínum á þessu ferlíki. Hvað sjálfa
hönnunina varðar þá er ekki mikið
vitað annað en að stjörnuparið
fái ítalskan marmara
á gólf snekkjunn-
ar.
Brad Pitt og
Angelina Jolie
eru stödd á
Möltu vegna
kvikmyndar
sem nú er í
bígerð. Kvik-
myndin heit-
ir By the
Sea
og
er
skrifuð og henni leikstýrt af Angel-
inu Jolie. Þar leikur hún á móti
eigin manni sínum en kvikmyndin á
að gerast um 1970.
Íbúar ósáttir
Ekki eru allir sáttir við veru þeirra
hjóna í smábænum Mgarr ix-Xini á
Möltu þar sem kvikmyndin er tek-
in upp en á meðal þeirra eru köf-
unarkennarar á svæðinu. Þeir segj-
ast tapa töluverðu af viðskiptum á
meðan stjörnuparið tekur upp kvik-
myndina þar sem umstangið hefur
orðið til þess að aðalköfunarstaður
þeirra var girtur af og hann lokaður
fyrir umferð.
Þá hafa íbúar einnig kvartað
undan ónæði þar sem fjöldi ljós-
myndara er staddur í smábænum til
þess að ná ljósmyndum af parinu en
þær seljast fyrir háar fjárhæðir.
Brangelina flugu til Möltu eftir að
hafa gengið í hnapphelduna í Frakk-
landi í síðasta mánuði. Með þeim
eru börnin þeirra sex, Maddox,
Pax, Zahara, Shiloh og tvíburarnir
Vivienne og Knox. n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
nokkrar hæðir
Snekkjan er gríðarlega
stór enda kostar hún
tæpa 50 milljarða.
Brangelina Brad
Pitt (50) og Angelina
Jolie (39) eru stödd
á Möltu við tökur á
kvikmyndinni By the
Sea. Mynd ReuteRs
Loftmynd Ofursnekkjan er hönnuð af Rizzardi en gólfin um borð verða úr ítölskum marmara.