Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 56
Helgarblað 19.–22. september 2014
73. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Sagði Vigdís,
skosk
á svipinn!
Pissa úti og fá
ekki jólagjafir
n Athafnakonan Margrét Erla
Maack er orðin dauðleið á því að
fólk, þó sérstaklega karlmenn,
girði niður um sig og kasti af sér
vatni utandyra. Margrét Erla fjall-
ar um þetta tiltekna vandamál
í pistli í Kjarnanum og bendir á
það virðingaleysi sem þvaglát á
almannafæri feli í sér. Margrét
Erla spyr: „Eiga karlmenn í meiri
vandræðum með að halda í
sér?“ og veltir því fyrir sér hvort
að um stórkostlegt og landlægt
heilsufarsvandamál sé að ræða.
Þá er hún ósátt við að þeir sem
þetta geri séu ekki gerðir ábyrgir
fyrir því. „Name and shame folks.
Ég vil að þessir menn fái engar
jólagjafir og að fólk
hætti að bjóða þeim
í afmælið sitt. Það
er það eina sem
dugar. Við búum
ekki í húsdýra-
garðinum,“ segir
Margrét Erla í
reiðipistli sínum
í Kjarnanum.
Leitar að miðum
á United-leiki
n Árni Þór Sigurðsson, fyrrver-
andi þingmaður VG, býr sig und-
ir það þessa dagana að taka við
sendiherrastöðu úti í heimi. Ekki
liggur fyrir hvert Árni Þór mun
fara en það verður ekki gefið út
fyrr en gistiríki hans samþykkir
hann sem sendiherra. Hvað sem
þessu líður virðist Árni Þór vera
farinn að leggja línurnar fyrir
ferðalög utan Íslands á næsta ári
því hann spurði stuðningsmenn
Manchester United á spjallsíðu
þeirra á Facebook á dögunum
hvar væri best að nálgast miða á
útileiki eftir áramót. Fyrirspurn
hans hlaut dræmar undirtektir.
Einn notandi stakk upp á því að
ef til vill væri best að hann keypti
miða á svörtum mark-
aði fyrir utan við-
komandi leikvang.
Ólíklegt þykir að
Árni Þór fari eftir
þeim ráð-
legging-
um.
Misskildi kosn-
ingar í Skotlandi
n Þingkonan Vigdís Hauksdóttir
sýndi Skotum samstöðu á fimmtu-
dag og mætti í Skotapilsi í vinnuna,
en þeir kusu um hvort landið ætti
að vera sjálfstætt frá Bretlandi á
fimmtudag. Eitthvað virðist Vigdís
þó hafa misskilið kosningarnar því
miðað við stöðuuppfærslu henn-
ar telur hún að Skotar vilji sjálf-
stæði frá ESB. „Þeir búa yfir stórum
hluta olíuauðlinda ríkja ESB ásamt
fleiri mikilvægum auðlindum –
þegar upp er staðið snýst þetta ESB
bix allt um yfirráð yfir auðlind-
um,“ skrifaði Vigdís.
Vandamálið er þó
að yfirlýst markmið
þeirra sem berjast
fyrir sjálfstæði
er að taka
upp evru og
nánara sam-
starf
með
ESB.
Óvenjulegir ferðafélagar í Norrænu
Dúfur, mörður og kakkalakkar stöðvaðir við tollskoðun
Þ
rír stórir Madagaskar-kakka-
lakkar í plastíláti fengu ekki að
koma til Íslands með Norrænu
á dögunum, enda er innflutn-
ingur lifandi dýra bannaður sam-
kvæmt lögum á Íslandi. Stefán Bjarg-
mundsson, hjá tollstjóra á Eskifirði,
segir sjaldgæft að fólk reyni að flytja
dýr til landsins með Norrænu enda er
ekki einangrunarstöð á Austurlandi,
heldur aðeins við Keflavíkurflugvöll.
Þó koma upp einstök dæmi. „Það
var til dæmis hópur fólks sem ætlaði
að vera viðstatt brúðkaup hér á Ís-
landi. Í heimalandi þess er siður að
sleppa dúfum þegar fólk binst slík-
um böndum. Sendiferðabíll á þeirra
vegum var fullur af lausum dúfum.
Bíllinn kom aldrei til landsins,“ segir
Stefán.
Fyrir nokkrum árum var svo
marðardýr sem komst til landsins
með Norrænu. Dýrið komst inn í
landið, en maðurinn beitti tollverði
blekkingum til að koma dýrinu til
landsins. Hann var erlendur ríkis-
borgari og var stöðvaður við toll-
skoðun og tjáð að mörðurinn færi
ekki til landsins. Maðurinn ákvað þá
að snúa til baka með Norrænu og fór
aftur um borð, en stökk í land og hafði
mörðinn með sér. Maðurinn reyndist
svo vera búsettur á höfuðborgar-
svæðinu og tók því lögreglan þar
málið í sínar hendur og handsamaði
mörðinn.
Kakkalakkarnir umræddu reynd-
ust vera ferðafélagar mannsins.
„Kakkalakkarnir voru ferðafélagar
hans, sem hann hafði við hlið sér í
bílnum,“ segir Stefán um kakkalakk-
ana. Maðurinn hafði komið á hús-
bíl sínum með Norrænu til landsins
en þegar tollverðir ræddu málið við
hann sagði hann kakkalakkana vera
gæludýr og að unnusta hans hefði
endilega viljað að hann tæki þá með
sér svo honum leiddist ekki dvölin á
Íslandi. Maðurinn ákvað að halda för
sinni áfram, en kakkalakkarnir urðu
eftir og fengu ekki að ferðast.“ n
astasigrun@dv.is
Urðu eftir Ferðafélögunum óvenjulegu var
haldið eftir að tollskoðun lokinni og ferða-
maðurinn ákvað að halda áfram einsamall.