Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Síða 7
Formáli,
Preface.
Búnaðarskýrslur þær fyrir árið 1951, er hér birtast á prenti, ná yfir
stærra svið heldur en búnaðarskýrslur fyrri ára. Auk upplýsinga um
bústofn, jarðargróða og búsafurðir, svo og um kaupgreiðslur og jarða-
bætur, eru i þessu hefti töflur um verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar,
um tilkostnað við framleiðslu landbúnaðarafurða og um heildartekjur
og gjöld framleiðenda í landbúnaði. Þá er og yfirlit um fjárfestinguna i
landbúnaði og um eignir og skuldir framleiðenda í landbúnaði o. fl. Loks
eru í viðbæti 7 töflur, með upplýsingum um verðmæti landbúnaðar-
framleiðslunnar hvert áranna 1935—51.
Þó að búnaðarskýrslurnar 1951, eins og þær liggja liér fyrir, séu
hvergi nærri eins fullkomnar og æskilegt væri, veita þær í stóruni drátt-
um upplýsingar um þátt landbúnaðarins í þjóðartekjunum, um tilkostn-
að við landbúnaðarframleiðsluna og um það, hve mikið af honum eru
vörur og þjónusta frá öðrum atvinnuvegum. Enn fremur um heildarfjár-
festingu í landbúnaði og skiptingu hennar á tegundir framkvæmda. Þá
eru og öll þessi atriði sundurgreind aftir umdæmum landsins.
Næstu búnaðarskýrslur frá Hagstofunni verða væntanlega fyrir árið
1954, og vísast í því sambandi til formála að Iðnaðarskýrslum 1950, sem
út koma á þessu ári. Hins vegar verða birtar árlega í Hagtíðindum tölur
um bústofn og jarðargróða í lok hvers árs, eftir sýslum o. f 1., samkvæmt
skýrslum skattanefndanna.
Hagstofa íslands, i júli 1953.
Klemens Tryggvason.