Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Blaðsíða 61
Búnaðarskýrslur 1951
59*
þau ár, en engar skráðar heimildir eru til um alifuglaræktina þá, nema
búnaðarskýrslurnar. Varð því að fara eftir þeim. Verið getur og, að
verðmæti afurða svína á stríðsárunum sé vantalið. óx svínarækt þá
mjög skyndilega, en hjaðnaði líka skjótt (m. a. vegna pestar í svina-
stofninum).
e) Verðmæti garðafurða o. fl. 1935—1951 (sjá töflu E, bls. 38—39).
Magn kartaflna og rófna er samkvæmt búnaðarskýrslum Hagstof-
unnar, en það mun vera of lágt talið, eins og áður hefur verið tekið
fram. Um verð þeirra garðávaxta eru til öruggar slcýrslur síðan Græn-
metisverzlun rikisins tók til starfa. Skýrslum um aðrar garðjurtir og
gróðurhúsaafurðir hefur ekki verið skipulega safnað fyrr en á síðustu
árum, og eru þau gögn næsta ófullkomin. Eru því tölur töflunnar um
aðrar garðjurtir en kartöflur og rófur og um gróðurhúsaafurðir byggðar
á lauslegum áætlunum.
f) Tekjur af hlunnindum 1935—1951 (sjá töflu F, bls. 40).
Framtal hlunninda hefur verið mjög ófullkomið á siðustu árum, og
hafa hlunnindaskýrslur þær, sem Hagstofan hefur birt, ekki verið not-
aðar nema við suma liði í töflu F. Þannig eru tekjur af laxi og silungi
áætlaðar hér allmiklu hærri en þær eru eftir hlunnindaskýrslum Hag-
stofunnar. Hefur um það nokkuð verið stuðzt við upplýsingar frá veiði-
málastjóra. Tekjur af hrognkelsi, sel, eggjum, bjargfugli og æðardún
eru að mestu áætlaðar eftir því magni, sem fram hefur verið talið til
hlunnindaskýrslu og þó heldur hækkaðar, en öll munu þessi hlunnindi
vantalin, nema helzt æðardúnninn. Hefur verið vandað mest til fram-
talsins á honum, af því að um hann þótti mestu varða. Framtal reka
hefur verið svo ófullkomið, að ekki þótti nokkurt hald í, og eru tölur
töflunnar um hann í raun réttri ágizkanir einar. — Verðmæti mós og
skógarhöggs var að mestu áætlað eftir búnaðarskýrslum, sem að vísu
eru mjög ófullkomnar að þessu leyti. Yfirleitt eru heimildir um tekjur
af hlunnindum mjög ófullkomnar og óáreiðanlegar, og hljóta áætlanir
þessar því einnig að vera það.
g) Yfirlitstafla um verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar
1935—1951 (sjá töflu G, bls. 40).
Samkvæmt yfirlitstöflunni hefur heildarverðmæti landbúnaðarfram-
leiðslunnar verið:
l>ús. kr. Þús. kr.
1935 .... 25 314 1944 .... 193 936
1936 .... 29 249 1945 .... 202 722
1937 .... 31 721 1946 .... 206 900
1938 .... 32 248 1947 .... 228 516
1939 .... 39 586 1948 .... 240 286
1940 59 085 1949 250 375