Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Blaðsíða 54
52*
Búnaðarskýrslur 1951
Kýr, geldneyti og kálfar.
1) 2500, 1400 og 800 kr. i öllum kaupstöðum á Suðvesturlandi, Gull-
bringu- og Ivjósarsýslu, Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu, Snæfellsnes-
sýslu, Isafirði og Isafjarðarsýslu, Siglufirði, ólafsfirði, Akureyri,
Húsavík, Eyjafjarðarsýslu, Þingeyjarsýslu, Neskaupstað, Vestmanna-
eyjum, Rangárvallasýslu og Árnessýslu.
2) 2400, 1200 og 700 kr. i Strandasýslu, Húnavatnssýslu, Skagafjarðar-
sýslu og á Sauðárkróki.
3) 2300, 1200 og 700 kr. í Dalasýslu og Barðastrandarsýslu.
4) 2200, 1100 og 600 kr. i Múlasýslum, Skaftafellssýslum og á Seyðis-
firði.
Ær, sauðir, hrútar og gemlingar.
1) 300, 300, 300 og 200 kr. í öllum sýslum og kaupstöðum frá Hval-
firði norður um land og austur að Eystra Horni svo og í Árnes-
sýslu.
2) 250, 250, 250 og 180 kr. annars staðar á landinu.
Hross. Þar var ekki hægt að fylgja skattmatinu nákvæmlega, þar
sem sundurgreining hrossa eftir aldri og kyni er meiri samkvæmt því
en er í búnaðarskýrslum. Fylgt var þeirri reglu, að meta hross 4 vetra
og eldri á 750 kr., tryppi 2 og 3 vetra á 500 kr. og tryppi á 1. vetri á
300 kr. Er með þessu farið eins nærri skattmatinu og komizt varð.
Refir voru metnir á 100 kr., minkar á 50 kr., gæsir á 30 kr.,
hænsn og endur á 20 kr., og er þetta alll sainkvæmt skattmatinu.
Svín voru metin á 1250 kr„ en á þeim ákvað Ríkisskattanefnd
ekki neitt skattmat.
Mat þetta er víða talsvert lægra en raunverulegt verðmæti búpen-
ingsins, en líklega hvergi hærra, a. m. k. ekki, þegar litið er á sýslur
sem heild. Mat nautgripa mun fara næst því, sem gangverðið var, er
um venjulega gripi var að ræða. Mat sauðfjár er hins vegar víða tals-
vert lægra en gangverðið, einkum þar, sein fjárskipti höfðu fram farið.
Hefði munur á mati fjárins mátt vera meiri eftir héruðum. Hross eru
lægra metin en þau gengu kaupum og sölum, og auk þess er tæplega
rétt að meta þau jafnt upp og ofan i sýslum, þar sem fjöldi þeirra lifir
á úligangi, og í sýslum, þar sem nær einvörðungu eru tamin hross og
fóðruð í húsi. Þó þótti ekki rétt að víkja frá reglum Ríkisskattanefndar
um þetta. Refir, minkar og fuglar eru talsvert lægra metnir en venju-
legt gangverð á þeim er.
Fasteignaverð það, sem fram er talið, er að mestu samkvæmt
Fasteignabólc 1942, miðað við árið 1940. Þó að millimat hafi farið fram
á sumum jörðum vegna nýbygginga, hefur það oft ekki verið upp teldð
á búnaðarskýrslu. Sést það m. a. á þvi, að samanlagðar fasteignir þeirra,
er fram telja til búnaðarskýrslu, er i flestum sýslum mjög svipað og
samanlagt fasteignamat skattskyldra fasteigna í sveitum, samkvæmt
Fasteignabók. Fasteignamatið er orðið injög úrelt, og er yfirleitt ekki