Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Blaðsíða 21
Búnaðarskýrslur 1951
19*
1946
1947
1948
1949
1950
1951
HeimanotaS, Selt, Samtals,
1000 1 1000 1 1000 1
29 939 30 669 60 608
29 580 34 129 63 709
27 491 35 593 63 084
27 654 38 627 66 281
27 208 42 453 69 661
29 060 41 721 70 781
Samkvæmt framtölum hefur mjólkurmagnið þannig vaxið um rúm-
lega 10 millj. lítra frá 1946 til 1951. Kemur sú aukning öll fram sem
sölumjólk og þó rúmlega 0,9 millj. lítrum betur, því að heimanotaða
mjólkin hefur minnkað, er því nemur. Minnkun heimanotuðu mjólk-
urinnar varð aðallega 1948. Þá voru stofnuð tvö ný mjólkurbú, á
Blönduósi og Húsavík, en áður hafði öll mjólk á starfssvæði þeirra
mjólkurbúa verið notuð heima, að vísu að noklcru leyti til framleiðslu
smjörs, sem selt var úr búi. Það ár, 1948, minnkaði heimanotaða mjólk-
in um rúmlega 2 millj. lítra og hélzt eftir það lítið breytt þar til 1951,
að hún jókst aftur um nærri 2 millj. lítra. Sú aukning er þó stundar-
fyrirbæri, því að hún stafaði einvörðungu af örðugleikum á mjólkur-
flutningum til mjólkurbúanna.
Athygli skal vakin á því, að mjólkurmagnið er í framtölum til Hag-
stofunnar ýmist gefið upp í lítrum eða kg, án þess að fram komi, hvort
heldur sé, og er þvi ekki gerður greinarmunur á lítrum og kg, að því
er snertir mjólkurmagn samkvæmt búnaðarskýrsluframtölum. Mjólk
innvegin hjá mjólkurbúum, samkvæmt öðrum skýrslum, er hins vegar
talin í kg eins og hún raunverulega er gerð upp.
Talin er fram til búnaðarskýrslu nokkru meiri sölumjólk en innvegin
hefur verið hjá mjólkurbúunum eftir skýrslum þeirra. Fer hér á eftir
samanburður á þessu tvennu:
Framtalin InnvegiS hjá
sölumjólk, mjólkurbúum,
1000 1 1000 kg
1946 .... 30 669 27 131
1947 .... 34 129 29 530
1948 .... 35 593 32 316
Framtalin InnvegiS hjá
sölumjólk, mjólkurbúum,
1000 1 1000 kg
1949 .... 38 627 35 870
1950 .... 42 453 37 766
1951 .... 41 721 37 465
í mismun þessara talna á að felast sú mjólk, sem seld er í skóla og
aðrar stofnanir, svo og kauptún og kaupstaði, sem ekki eru á verðlags-
svæði mjólkurbúanna, og loks sú mjólk, sem seld er utan hjá mjólltur-
búunum á verðlagssvæðum þeirra. Þessi mismunur er minnstur 1949,
2757 þús. lítrar, en mestur 1950, 4687 þús. lítrar. Munur þessara
tveggja ára er undarlega mikill, en að öðru leyti bendir samanburður-
inn á framtalsskýrslum og skýrslum mjólkurbúanna til þess, að ekki
vanti mikið á, að sölumjólkin sé að fullu fram talin. Hafa líka margar
skattanefndir í höndum skýrslur mjólkurbúa um innvegna mjólk hvers
framteljanda og leiðrétta framtölin eftir þeim, ef á milli ber.