Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Blaðsíða 27
Búnaðarskýrslur 1951
25*
var. Að þessu sinni óskaði Hagstofan sérstaklega eftir þvi, að vandað
væri til hlunnindaskýrslnanna, en ekki hefur það leitt til aukins fram-
tal's hlunninda, svo að teljandi sé. Það getur því varla hjá því farið,
að hlunnindin séu raunverulega í hnignun. Enginn efi er heldur á því,
að niinna er um vmis þeirra hirt en áður var, svo sem selveiði, æðar-
varp og andavarp og fuglatekju, og mun það hirðuleysi nokkru valda
um hnignun þessara hlunninda, þó að fleira komi eflaust til. Lax- og
silungsveiði hefur hins vegar verið stunduð af eins miklu eða meira
kappi en nokkru sinni fyrr, og talsvert hlynnt að því, að lax og sil-
ungur mætti aukast í ám og vötnum. Hins vegar hefur veiðin, eink-
um laxveiðin, verið stunduð með jieim liætti, að eðlilegt er, að fram-
tal hennar til búnaðarskýrslu hafi orðið allt annað en fullkomið. Flest-
ar veiðiárnar hafa verið leigðar félögum laxveiðimanna og þeir síðan
framleigt þær til einstaklinga, sem hlaupið hafa til veiðanna á frídög-
um sínum, og ekkert verið eftir því spurzt af þeim, er búnaðarskýrsl-
urnar gera, hvað þeir hafa veitt, enda eru flestir veiðimennirnir búsettir
utan lögsagnarumdæmis þeirra.
Eftir skýrslum þeim, sem veiðimálastjóri hefur safnað, hefur
laxveiðin 1951 á öllu landinu verið:
Gullbringu- og Kjósarsýsla
Borgarfjarðarsýsla ........
Mýrasýsla .................
Snæfellsnessýsla ..........
Dalasýsla .................
ísafjarðarsýsla ...........
Strandasýsla ..............
Húnavatnssýsla ............
Skagafjarðarsýsla .........
Eyjafjarðarsýsla...........
Þingeyjarsýsla ............
Múlasýslur ................
Rangárvallasýsla ..........
Árnessýsla ................
Laxatala Kg alls
2 703 8 248
1 718 7 092
6 107 22 654
360 1 282
1 314 5 019
130 437
234 811
1 727 8 201
367 1 285
20 70
1 595 8 341
375 1 907
40 150
1 743 7 701
Samtals 18 433 73 198
Er þetta vissulega allmiklu meira en fram er talið til búnaðarskýrslu,
og telur þó veiðimálastjóri, að ekki muni öll veiðin koma fram í þeim
skýrslum, er hann safnar.
Laxveiðin, silungsveiðin og hrognkelsaveiði verður eigi borin saman
við árin á undan, vegna þess að breyting hefur verið gerð á framtal-
inu, þannig að nú er livort tveggja talið í kg, i stað þess að áður var
talið í stk. — Silungsveiðin virðist þó talin heldur ríflegri 1951
en næstu tvö ár á undan. Skýrslur veiðimálastjóra um silungsveiði ná
yfir svo takmörkuð svæði, að ekki þótti ástæða til að bera þær saman
við búnaðarskýrslurnar. Annars benda þær glögglega í þá átt, að silungs-
veiði sé víða mjög vantalin.
d