Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1953, Page 104
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ýtarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerzt áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar, Arnarhvoli, Reykjavik. Sími 2802. — Áskrifendur
að Ilagskýrslunum fá þær sendar jafnóðum og þær koma út, en
vegna óvissu um, hvaða hefti, og hve mörg, koma út árlega, er
ekki um að ræða fast áskriftargjald, heldur greiða áskrifendur
jafnóðum liið ákveðna verð skýrslnanna, eða fleiri hefti i einu,
eftir því sem henta þykir.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, fiskafla, hag bankanna, framfærslu-
vísilölu og ýmislegt fleira, sem eklíi þykir taka að birta í sér-
stöku hefti af Hagskýrslum. Ennfremur bráðabirgðaskýrslur
um ýmislegt, sem síðar koma um ýtarlegri skýrslur. Áskriftar-
gjald er 15 krónur um árið.