Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 25
DV Menning föstudagur 8. ágúst 2008 25 Dilli opnar myndlista- sýningu Myndlistamaðurinn Dilli hefur opnað sýningu á veit- ingastaðnum Við Tjörnina. Myndirnar á sýningunni eru fimmtán og eru unnar með olíupastel á pappír. Myndirnar voru málaðar á síðustu þremur til fjórum árum. Dilli er enginn nýgræðingur á sviði myndlist- ar en hann hefur meðal annars sýnt verk sín í San Francisco, Kaupmannahöfn og á Búðum á Snæfellsnesi. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. Fjölskyldan í Viðey Fjölskyldu- og barnahelgi verður í Viðey á sunnudaginn- klukkan 12:30 til 17:00. Dag- skráin verður tileinkuð börnum og fjölskyldum og tilboð verður á veitingum og í ferju. Felix Bergsson skemmtir börnun- um, boðið verður upp á flug- drekagerð og víðavangsleiki. Barnamessa verður í Viðeyjar- kirkju og fallegar fjörur, tjarnir og gönguleiðir eru um alla eyjuna. Í Viðeyjarstofu verður boðið upp á kaffihlaðborð sér- staklega sniðið að börnum og fjölskyldufólki. Ferjusiglingar til Viðeyjar eru frá Skarfabakka með reglulegu millibili allan daginn. Heiðursverð- launahafi í Nor- ræna húsinu Danski rithöfundurinn Vagn Lundbye kynnir nýjasta verk sitt, Det Nordiske Testamente, í Norræna húsinu á morgun, laugardag, klukkan 16. Bókin er túlkun höfundarins á norræn- um goða- og hetjukvæðum. Lundbye hefur meðal annars hlotið Det Danske Akademis Store Pris árið 2002 og Fören- ingen Nordens hederpris árið 2007. Hann hefur fengist við flest form skáldskapar og gefið út ríflega fimmtíu bækur, þar af skáldsögur, smásögur, ljóð, ritgerðir, kvikmyndahandrit og útvarpsleikrit. Aðgangur að fyr- irlestrinum er ókeypis. Ljósmyndasýning í Borgarbókasafni í tengslum við Hinsegin daga: „Munu æsir mig argan kalla“ „Munu æsir mig argan kalla“ er yfirskrift ljósmyndasýningar sem Wolfgang Müller opnaði í Borgar- bókasafni Reykjavíkur í gær. Sýn- ingin er haldin í tengslum við Hinsegin daga. Á myndunum sýnir Müller myndir sem hann tók af Ís- lendingum á ferðum sínum hér og í Berlín. Müller er þýskur myndlistar- maður, tónlistarmaður og rithöf- undur. Hann kom fyrst til Íslands í boði Listahátíðar vorið 1990 með félögum sínum úr framúrstefnu- hljómsveitinni Die Tödliche Doris. Hann dvaldi hér lengur og skemur næstu árin og gerði Ísland að efni- viði í list sinni. Meðal annars hef- ur hann rýnt mikið í þá mynd sem landar hans hafa gert sér af sögu- eyjunni í norðri og komið sér upp merku safni af ferðabókum Þjóð- verja um Ísland. Müller var gestur Hinsegin daga 2002 og gestakennari við Listahá- skóla Íslands veturinn 2004. Hann hefur haldið ýmsar uppákomur og listsýningar á Íslandi og þátt- ur hans í samsýningu íslenskra og þýskra listamanna í Nýlistasafninu 1998 vakti mikla athygli hér heima og í Þýskalandi. Wolfgang hefur gefið út tvær bækur um menningu, náttúru og mannlíf á íslandi, samið fjölda blaðagreina og kynnt Ísland í útvarpi og sjónvarpi. Sýningin stendur til 1. sept- ember og er opin á afgreiðslutíma safnsins. Myndlist Lífgar upp á samfélagið Hugmyndin spratt hjá hjónun- um Gústav Geir Bollasyni og Vér- onique Legros, myndlistarmönnum sem bæði búa á Hjalteyri og horfa á verksmiðjuna út um gluggann á degi hverjum. Myndlistin á reyndar stað í sögu Hjalteyrar. „Hérna hafa alltaf búið listamenn. Til að mynda á Kristján Guðmundsson hús hér á eyrinni og eyðir miklum tíma þar ásamt fleirum.“ Með þessa hugmynd í fartesk- inu var gengið á fund hreppsnefnd- ar Arnarneshrepps. „Þau tóku okkur vissulega eins og við værum dæmi- gerðir listamenn með draumóra,“ segir Hlynur og glottir. „Það eru fjölmörg dæmi um að svona fram- kvæmdir hafi haft jákvæð áhrif á samfélagið.“ Hlynur rekur dæmi um bresku listakonuna Tracey Emin, sem keypti yfirgefið pakkhús á afleit- um stað í London. „Þegar starfsem- in fór af stað kættust fasteignasal- arnir því að eftirspurn eftir húsnæði glæddist. Oft fer þetta svo að lista- mennirnir þurfawww að koma sér á brott þegar hverfin eru orðin of dýr fyrir þá.“ Hlynur segir Gilið á Akur- eyri í raun vera svipað dæmi. Þar hafi upphaflega verið mjólkur- og kjöt- vinnsla, ásamt málningarverksmiðju og öðrum iðnaði. „Nú eru þar gallerí, listasafn, vinnustofur og veitinga- og kaffihús, sem hafa glætt miðbæ Ak- ureyrar miklu lífi.“ Manngert landslag Það eru listamennirnir Alexander Steig frá Þýskalandi, Arna Valsdótt- ir, Kristján Guðmundsson, Magnús Pálsson, Nicolas Moulins frá Frakk- landi og Sigga Björg Sigurðardótt- ir sem eiga verk á sýningunni Start. Þar er einnig að finna bækur og prentplötur úr bókabúðinni Boekie Woekie í Amsterdam. Hægt er að sjá hvernig þessar bækur verða til, allt frá því að litur er teiknaður beint á prentplötuna. Í verksmiðjunni er hægt að berja augum kvikmynd eftir Nicolas Moul- in, sem er tekin við Eyjafjörðinn, meðal annars í gömlu verksmiðju- húsunum á Hjalteyri. Myndin er 20 mínútur, án tals, og sýnir manneskju sem reikar um í manngerðu lands- lagi í vonlausri leit að lífsmarki. Einnig gefur að líta verk eftir Örnu Valsdóttur, sem hún hefur flutt á milli staða og sett upp í ólíkum kringum- stæðum. „Ég gaf mér það að vinna með það hvaða áhrif staðurinn hefði á mig,“ segir Arna. „Ég leitaði ekki í heimildir, heldur í óljóst eigið minni og stundaráhrif. Verkið heitir Syngj- andi sæl og glöð. Þar vinn ég með óljósa minningu af sönglaginu Síld- arvalsinum og blanda við vídeómál- verkið Staðreynd.“ Framtíðarhlutverk álveranna Spurður hvort að það leynist pól- itík í því að nýta yfirgefna verksmiðju undir listastarfsemi, hvort hér hafi menn fundið nýtt hlutverk fyrir ál- bræðslur Íslands í framtíðinni, segir Hlynur að það hafi ekki verið mark- miðið. „Í mínum huga væri það samt bestu nýtingarmöguleikarnir. Það má sjá fyrir sér að hægt verði að fram- kvæma gjörninga og sýna verk sem ekki hefur áður verið hægt að fram- kvæma í mörg hundruð metra löng- um kerskálunum. Einhver not verða menn að finna fyrir bræðslurnar í Straumsvík, Hvalfirði og Reyðarfirði þegar þær hafa lokið hlutverki sínu.“ Hann segir aðsóknina hingað til hafa verið vonum framar. Sennilega hafi hátt í 150 manns komið á opn- unardaginn. „Reyndar komu sumir til okkar og spurðu hvar listina væri að finna, en það er ekki hægt að fara fram á það að allir finni sig undir eins í svona stóru húsi.“ sigtryggur@dv.is Lífsmark í manngerðu landslagi viðtal Menning Framúrskarandi harmónikkuleikurJón Þorsteinn Reynisson harmónikkuleikari heldur einleikstón-leika í Fríkirkjunni á sunnudaginn klukkan 17. Efnisskrána prýða verk sem spanna rúmar tvær aldir í klassískri tónlistarsögu, frá barrokkverkum A. Vivaldi og D. Scarlatti til síðrómantískrar orgelsvítu Léons Boëllmann. Jón Þorsteinn hefur vakið athygli fyrir framúrskarandi harmónikkuleik en hann hefur meðal annars spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Talking Tree á ferð um landiðVerkið Talking Tree Event verður sýnt í Landnámssetrinu í Borgarnesi um næstu helgi, 17. ágúst. Tveimur dögum seinna verður það sýnt í Edinborgar-húsinu á Ísafirði og er miðasala hafin á báðum stöðum. Verkið er samvinna Ernu Ómarsdóttur við Lieven Dousselaere tónskáld þar sem dans, sögustund og tónlist koma saman. Yfirgefin síldarbræðsla á Hjalteyri við Eyjafjörð er orðin að sýningamiðstöð listamanna. Hlynur Hallsson segir tilraunina á Hjalteyri vera í takt við svipaðar tilraunir í Englandi, Þýska- landi og Frakklandi. Á þessari fyrstu sýningu á Hjalteyri sýnir hópur sex listamanna. Önnur sýning er fyrirhuguð í haust í samvinnu við Nýlistasafnið. Síðan verður framtíðin ákveðin. Rýmið er mikið gestir virða fyrir sér vídeóverk í verksmiðjunni á Hjalteyri. Gamla verksmiðjan Þar er enn starfrækt seiðaeldi í hluta hússins. Í framtíðinni er gert ráð fyrir að þar verði vinnustofur listamanna auk sýningarrýmisins. Hlynur Hallson „fyrst var litið á okkur eins og dæmigerða listamenn með draumóra,“ segir Hlynur. dV-MYNdIr sIgtrYggur Wolfgang Müller á myndun- um sýnir Müller myndir sem hann tók af Íslendingum á ferðum sínum hér og í Berlín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.