Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Síða 37
DV Helgarblað föstudagur 8. ágúst 2008 37 vígja hjónaband samkynhneigðra. Ég verð bara reiður yfir þessum mann- réttindabrotum. Ég vil sjá prestshjón- in Jónu Hrönn Bolladóttur og Bjarna Karlsson sem biskup – saman. Þau standa fyrir þann boðskap sem mér finnst að þjóðkirkjan og hennar þjón- ar eigi að boða. Hugarfarið „Annars hef ég ákveðið að vera hamingjusamur af því að það er hollt. Ég heyrði þetta haft eftir Voltaire í veislu sem ég var að syngja í. Mað- ur getur vel haft áhrif á sína geðprýði innan vissra marka. Ef maður sveiflast um eins og borðtenniskúla milli hæð- anna og lægðanna í kollinum þá þarf maður að hugsa út í það að hamingja er ákvörðun. Maður getur tekið með- vitaðar ákvarðanir sem skipta sköp- um.“ Jónsi er alltaf svo léttur og lífs- glaður á almannafæri. Er hann allt- af svona og finnst honum ekkert vera leiðinlegt? „Ég get alveg verið fúli karlinn. Og mér finnst leiðinlegt að borða. Ég þarf virkilega að passa það að borða hollt og hreyfa mig. Ég dett stundum út úr líkamsræktargírnum en svo fór ég aft- ur til míns gamla einkaþjálfara í júlí, Arnars Grant, og ég gerbreyttist. Kon- an mín tók svo vel eftir þessari breyt- ingu. Ég verð svo miklu betri í skapinu, líður betur og verð betri í samskipt- um við börnin mín. Og þeg- ar maður er sterkari líkam- lega er maður líka betri á sviðinu og dug- legri að ryksuga heima.“ Leiðinlegt að borða En hvað segirðu, finnst þér leiðin- legt að borða? „Já. Og ég man að einu sinni á ferl- inum var ég orðinn 13–14 kílóum létt- ari en mín eðlilega þyngd, þá var ég að æfa fyrir Grease og fékk matareitr- un og léttist mjög. Þá þurfti ég virki- lega að fara að taka mataræði mitt í gegn og mæta í ræktina. Hreyfing og hollur matur, helst eitthvað lífrænt, hefur bjargað mér. Ég er ekki beint haldinn anorexíu en ég þarf að passa mig og það er óhætt að segja að ég sé ekki matarfíkill. Ég var í sveit í æsku og lærði að borða það sem fyrir mig var lagt. Ég er ekki matvandur en mér finnst bara frekar leiðinlegt að borða, það er svo tímafrekt og ég fæ mér aldrei ábót. Konan mín færir mér stundum ábót, hún sér um mig.“ En ertu að spá mikið í hvernig þú lítur út og hve mörg kíló þú ert? „Já örugglega meira en ég vil við- urkenna. Ég vil líta út þannig að það sé gaman að horfa á mig á sviðinu. Ég hugsa út í það hvernig tónlistarmenn ég vil sjá á sviði og reyni að líta þannig út. Og ég lít í spegil á hverjum morgni og segi: „Jónsi, þú ert æðislegur.“ Þó ég sé krumpaður og úfinn, andfúll og ógeðslegur í vondri birtu þá samt brosi ég og segi að ég sé æðislegur. Því sjálfstraust og húmor fyrir sjálfum sér eru alveg jafn góð systkini og hégómi og leti.“ Í háloftunum Þú ert tónlistarmaður fyrst og fremst en svo fórstu að starfa sem flug- þjónn hjá Icelandair. Hvers vegna? „Tónlistarstarfið er þess eðlis að þú veist aldrei hvort þú verðir með ein- hverjar tekjur í næsta mánuði og því óöryggi fylgir mikið álag. Ég hef ver- ið mjög lánsamur hingað til en ég er tveggja barna faðir með konu í námi og ýmsar aðrar skuldbindingar og mig langaði til þess að prófa um tíma að vera í starfi þar sem þú veist hvað er handan við hornið. Ég hef alltaf verið spenntur fyrir flugi og fór að læra til einkaflugmanns fyrir nokkru síðan. Ég sótti um sumar- starf sem flugþjónn vegna þess að það sameinar þetta tvennt, áhuga minn á flugi og fasta vinnu. Sumir halda að þetta sé að falla af stjörnuhimni og vera í „cold turkey“, svekktur og bitur. En svo var ekki. Ég hef alltaf haft mik- ið að gera sem tónlistarmaður. Þegar ég sótti um starfið var ég spurður að því hvað mér þætti um að vera þekkt- ur úr tónlistinni þegar ég væri að vinna um borð. En mér finnst ég vera á sviði þarna. Það er æðislegt að skila ánægðum farþegum af sér. Ég hef mikla þjónustulund og finnst æðis- legt þegar fólk fer ánægt út, hvort sem það er út úr flugvél eða samkvæmi. Það kom mér á óvart hvað þetta er gaman. Ég var að vinna sem flug- þjónn síðasta sumar og aftur núna í sumar. Í millitíðinni kom bankastarf óvænt upp í hendurnar á mér.“ Félagsmálafrömuður „Ég var að fara með reikning til Glitnis einn daginn og fékk vinnu í leiðinni, var ráðinn í tímabundin verkefni hjá viðburðadeildinni. Það var frábær tími og mikil reynsla og hver veit nema ég snúi mér aftur að slíkum verkefnum seinna. Í dag má ég ekki vera að því að fljúga í bili því ég er kominn í nýtt starf sem er mjög spennandi. Ég var ráð- inn félagsmálafrömuður Tækniskóla atvinnulífsins. Tíu skólar hafa sam- einast, þetta er stærsti framhaldsskóli landsins með stærsta nemendafélag- ið upp á 3.300 manns. Ég var kallað- ur inn til að aðstoða við félagslífið, ég verð nemendafélaginu og stjórnend- um skólans innan handar við upp- byggingu skólans. Og ég hef hugsað með mér að ekki væri vitlaust að klára nokkur bók- leg fög í flugnáminu mínu samhliða þessu starfi. Ef tími vinnst til. Iðnnám er nú á allt öðrum grunni en í gamla daga. Hugsið ykkur mögu- leikana; vélstjóranemi, klæðskera- nemi og nemandi úr fjölmenningar- skóla eru að fara að setjast saman í kaffi í framhaldsskóla. Mér líður eins og ég muni í nýja starfinu geta faðmað 3.300 manns á hverjum einasta degi.“ Nýr sjónvarpsþáttur „Og svo var ég að ganga frá nýju starfi í dag. Ég verð kynnir í sjónvarps- þætti sem byrjar á Skjá einum í sept- ember og heitir eftir erlendu fyrir- myndinni: „The Singing Bee“. Þetta er þáttur þar sem fólk keppir í að kunna textann í dægurlögum. Hljómsveitin Buff spilar fyrstu tónana og fólk á að halda áfram með textann.“ Jónsi er mjög spenntur fyrir nýja starfinu og miðað við frammistöðu hans sem sjónvarpskynnir í „Skóla- hreystinni“ í vetur er óhætt að segja að hann sé fæddur í starfið. En hvernig kemst hann yfir þetta allt saman og hvernig stenst hann freistingar hins ljúfa lífs? Lélegur drykkjumaður „Það hljómar kannski klisjukennt en ég reyni að hugsa vel um mig, hvíla mig og lifa heilbrigðu lífi. Ég er ekki skipulagður að upplagi en það er eitt- hvað sem maður verður að temja sér ef maður ætlar að lifa af í þessu! Ég á ótrúlega góða að, bæði fjölskyldu og einstaka vini sem eru fljótir að sparka mér upp ef ég missi sjónar á mark- miðum mínum og því sem skiptir máli. Hvað varðar áfengi missi ég rödd- ina fljótt ef ég drekk áfengi og er svo lengi að jafna mig eftir eitt rauðvíns- glas að ég drekk lítið. Mér finnst svo gaman að vera til að ég þarf ekki að drekka. Sumir verða skemmtilegir með víni en það hefur enginn gaman af að sjá mig drekka. Ég á útopnu, það hlýt- ur að vera hundleiðinlegt. Og ég hef aldrei prófað eiturlyf og hef bara svona þrisvar séð þau. Ég veit að margir neyta eiturlyfja til að losna við hömlur og láta eins og ég læt – en ég þarf ekki að nota nein svona efni til að njóta lífsins. Maður veit ekki hvað gerist ef maður fer inn um þessar dyr. Þetta er óvissa sem ég vil ekki hafa inni í mínu lífi. Löngu áður en ég byrj- aði í tónlist eignaðist ég konu og svo barn og ég vil ekki hafa dóp í mínu lífi. Veit ekki hvar þetta er selt og mig langar ekki að vita það. Rósa konan mín hefur unnið með mér að tónlistarferlinum frá upphafi og við höfum verið samstíga í þessu. Ef það hefði ekki verið hefðum við ör- ugglega fjarlægst. En ég er í þessu tón- listarinnar vegna og vegna þess að á þessum starfsvettvangi líður mér vel, ekki vegna aðdáenda eða einhvers glaums í kringum poppbransann.“ Framtíðin Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? „Hljómsveitin í svörtum fötum mun spila áfram. Konan mín á eitt ár eftir í námi og kannski eftir það gæti ég bætt við mig menntun. Ég hef haft forgang til þessa en nú hefur hún forgang. Við tökum þetta eins og verkefni. Nú er mitt að gefa og hennar að þiggja. Og ég veit ekki hvað gerist á morgun. Mig óraði ekki fyrir því að ég myndi vinna sem flugþjónn eða vinna í banka eða starfa í sjónvarpi. Sjáum bara til hvað gerist. Við í hljómsveitinni höfum all- ir samið tónlist hver í sínu lagi und- anfarið og eigum fulla síma og upp- tökutæki með lögum og við ætlum að halda demódaga við tækifæri. Þá búum við til lög úr bestu hugmynd- unum sem við erum með. Við höfum lært það upp á síðkastið að við getum treyst á okkar eigin tónlist. Kannski fara nú einhverjir að ranghvolfa augunum og fá nóg af bjartsýnisrausi í mér. Það er víst ekki í tísku núna, það er alltaf verið að tala um kreppu og að allt sé að fara nið- ur. Ég sé þetta þannig að við fáum kannski ekki allt sem við þráum en við erum sannarlega ekki slypp og snauð hér á Íslandi. Við erum í fallegu umhverfi, hér er prýðileg veðursæld, þjóðfélaginu er ágætlega stýrt. Það er ekki stríð og ekki verið að hreinsa út einhverja hópa eða þurrka út heilu hverfin eins og gerist sumstaðar úti í heimi. Hér búum við í raun í vernd- uðu umhverfi, með smá tímabundn- um skarkala, en verðum að staldra við og njóta þess sem okkur stendur til boða og þess góða í lífinu. Hver er sinnar gæfu smiður og ég er farinn út í búð að kaupa mér hamar!“ „Það má segja við mig að ég sé leiðinlegur, ljótur og fólk getur velt sér upp úr kynhneigð minni og stjórnmálaskoðunum en ég vil ekki að þetta sé sagt fyrir framan fjölskyldu mína.“ Jónsi segir þrennt í heiminum vera sér heilagt, börnin tvö og konuna. Jónsi er vinsæll hjá börnum jafnt sem fullorðnum „tónlistarfólk hafði svo mikil áhrif á mig þegar ég var yngri svo ég veit að það er ábyrgðarhluti að vera fyrirmynd.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.