Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Page 38
föstudagur 8. ágúst 200838 Sport
Sport Dag sem Dimma nátt Íslenska landsliðið í handknattleik leikur á sínum öðrum ólympíu-leikum í röð og reynir að gera betur en í aþenu fyrir fjórum árum. strákarnir okkar hefja leik gegn rússum og þurfa stuðningsmenn liðsins, það er að segja allir Íslendingar, að leggja svolítið á sig til að horfa á þann leik. flautað verður til leiks klukkan 2.30 aðfaranótt sunnudags en stór hluti leikanna fer fram um niðdimma nótt að íslenskum tíma.
CERA eða Continuous Erythropoi-
esis Receptor Activator eins og það
heitir fullu nafni er nýtt hormóna-
lyf skylt EPO sem hefur hrellt marg-
ar lyfjastofnanir undanfarin ár. Það
var búið til af svissneska lyfjafyrir-
tækinu Roche með það fyrir augum
að hjálpa sjúklingum sem ættu við
nýrnavandamál að stríða.
Lyfið örvar framleiðslu EPO-
hormóna í nýrum og um leið örv-
ar það beinmerginn til að framleiða
meira af rauðum blóðkornum. En
fleiri rauð blóðkorn gera líkamanum
kleift að flytja meira súrefni til vöðva
og þannig getur það hjálpað íþrótta-
mönnum mikið.
CERA, eða Mircera eins og það er
kallað, hefur verið samþykkt til lækn-
inga í Sviss, Ástralíu og er nálægt því
að vera samþykkt um gjörvalla Evr-
ópu. Fyrirtækið sem bjó til lyfið, Ro-
che, sótti um að fá leyfi til þess að
selja það í Bandaríkjunum á síðasta
ári. Matvæla- og lyfjaeftirlitið þar í
landi neitaði þeirri bón Roche því
lyfið er of líkt EPO-hormónalyfinu
sem bandaríska fyrirtækið Amgen
hefur einkaleyfi á. Fyrirtækið Amgen
sem býr til EPO, lyf sem hefur verið
notað ólöglega af mörgum íþrótta-
mönnum, er helsti styrktaraðili Kali-
forníu-hjólreiðanna.
gott lyf en slæmt
CERA hentar íþróttamönnum
sem vilja svindla betur en EPO því
það dreifist hægar um líkamann. Fyr-
ir sjúklinga þýðir það færri sprautur,
oft aðeins einu sinni í mánuði sem
lækkar kostnað sjúkrahúsa sem nota
lyfið. Fyrir íþróttamenn þýðir það að
þeir geta tekið lyfið jafnsjaldan og því
mun minni líkur á að það finnst í lík-
amanum. Fari íþróttamaður í lyfja-
próf aðeins nokkrum dögum eftir
sprautu er mjög erfitt að finna lyfið í
líkamanum því nýrun fela það.
Fyrst var leitað að EPO-lyfinu
á Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000. CERA er á bannlista WADA,
Alþjóðalyfjanefndarinnar, en svo
virðist sem hjólreiðamenn í Tour
de France hafi haldið að próf henn-
ar gætu ekki fundið CERA. WADA
hefur verið að þróa próf til að finna
lyfið og svo virðist sem nefndin hafi
fundið leið og geti nú leitað að lyfinu
hvenær sem hún vill. Þrír hjólreiða-
menn voru teknir með lyfið í Frakk-
landshjólreiðunum og er talið mjög
líklegt að fleiri keppendur þar hafi
notast við lyfið. Margir voru prófaðir
og gætu sumir átt von á hringingu frá
WADA á næstu vikum.
CERA er nýtt þriðju kynslóðar hormónalyf skylt EPO-lyfinu. Það hefur betri og meiri áhrif á íþróttamenn
ásamt því að erfiðara er að finna það. Aðeins þarf eina sprautu á mánuði sem gerir lyfjanefndum einstaklega
erfitt fyrir að finna leifar þess í líkama íþróttamanna. Þrír hjólreiðamenn voru teknir með lyfið í Frakklands-
hjólreiðunum og eru forsvarsmenn Ólympíuleikanna í Peking hræddir um að það verði notað þar.
NÝTT LYF UNDIR SMÁSJÁNNI
tÓmas ÞÓR ÞÓRÐaRsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
© GRAPHIC NEWS Heimild: WADA Mynd: Getty Images
Þrír hjólreiðamenn sem kepptu í Frakklandshjólreiðunum voru teknir
fyrir að nota CERA, nýtt 3. kynslóðar lyf skylt við áður þekkt lyf, EPO.
Lyanefndin á Ólympíuleikunum í Peking er mjög smeyk við að íþrótta-
menn á leikunum muni nýta sér þetta lyf.
3. Vöðvar:
Fleiri rauð blóðkorn gera
líkamanum kleift að ytja
meira súrefni til vöðvanna sem
geta því starfað betur og lengur.
Íþróttamenn
Góðu áhrin:
Áhrif CERA duga
lengur en
venjulegs EPO.
Aðeins þarf einn skammt
á mánuði sem minnkar
líkur á að lyð nnist í
lyaprófum.
Slæmu áhrin:
Hár blóðþrýstingur,
æðastíur og
-þrengsli, bólgur í
heila og og.
CERA – Continuous
Erythropoiesis Receptor
Activator:
Framleitt af svissneska
fyrirtækinu Roche
við blóðleysi og nýrnabilunum.
Svona virkar það
1. Nýrun: Örvuð til að framleiða
meira af EPO-hormónum.
2. Beinmergurinn: EPO
eykur framleiðslu rauðra
blóðkorna.
EPO – Erythropoietin:
Nýrun fela lyð í líkam-
anum. Hefur verið
framleitt af lya-
fyrirtækjum síðan
á 9. áratugn-
um.
CERA - 3. KYNSLÓÐAR LYF
Riccardo Ricco og manuel Beltran
Þeir fyrstu til að vera teknir fyrir að
nota CEra í tour de france.