Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Side 45
DV Helgarblað föstudagur 8. ágúst 2008 45
ryska revolutionenRússneska bylti gin í stuttu máli
1894 Nikulás II krýndur
keisari í rússlandi.
Janúar 1905 Blóðugi
sunnudagurinn, hundruð
mótmælenda drepin.
maí 1905 Japanar
sigra rússneska flotann
á tsushima-sundi.
Júní 1905 uppreisn á
beitiskipinu Pótemkin í
höfninni í Ódessu.
Október 1905
Keisarinn kæfir
byltinguna, Lenín
neyðist til að fara aftur í
1890 1900
1911 stolypin
innanríkisráðherra
drepinn.
1910 1920
Febrúar (mars)
1917 febrúarbyltingin
brýst út og keisarinn
afsalar sér krúnunni.
Júlí 1917 alexander
Kerenskí myndar
bráðabirgðastjórn.
Október (nóvember) 1917
Bolsévikar steypa bráðabirgða-
stjórninni og taka völdin.
1918 Innlands-
átök hefjast í
rússlandi.
Júli 1918 Keisara-
fjölskyldan tekin
af lífi í Ékaterín-
borg.
1922 Innanlands-
átökum lýkur og
sovétríkin eru stofnuð.
Skjaldar-
merki
Romanov-
ættarinnar
Rússneska
byltingin1905–17
ekki aðeins vegna ömurlegrar lífsaf-
komunnar, stríðið við Japan 1904-1905
hafði einnig sitt að segja. Rússar héldu
út í stríðið til að draga úr óánægjunni
heimafyrir. Ráðherra einn lét hafa eft-
ir sér í upphafi átakanna: „Við þurfum
duggunarlitla styrjöld til að draga úr
áhrifum byltingarsinna.“
En stríðið við Japan varð keisara-
stjórninni ekki til álits- eða virðingar-
auka. Á fyrstu dögum þess eyðilögðu
Japanar Kyrrhafsflota Rússa og löm-
uðu síðan rússneska herinn í Man-
sjúríu. Flota Rússa frá Eystrasalti var
eytt á Tsushima-sundi milli Kóreu
og Japans 27. maí 1905 og þá töldu
rússnesk stjórnvöld rétt að leita friðar.
Að friðarsamningum loknum höfðu
ítök og landsvæði Rússa í Austurlönd-
um fjær minnkað mjög.
Ófarirnar gegn Japönum kynntu
undir óánægjunni heima í Rússlandi.
Verkamenn mynduðu sovét eða ráð,
verkamannaráð. Þau skipulögðu
allsherjarverkföll í Sánkti Pétursborg
og ólga fór um aðrar iðnaðarborgir
í landinu. Bylgja óánægju skall ekki
síður á dreifðum byggðum Rússlands.
Uppreisn varð á beitiskipinu Pótem-
kin í höfninni í Ódessu í júní og Sergei
Eisenstein gerði þeim atburðum síð-
ar skil í kvikmyndinni Beitiskipið Pót-
emkin.
Þing kallað saman
Nikulás keisari II neyddist til að
kalla þingið, dúmuna, saman í októb-
er 1905. Þremur vikum síðar kom Len-
ín til Sánkti Pétursborgar úr útlegð.
Hann taldi sig verða í fararbroddi bylt-
ingarsinna en var of seinn. Innantóm
loforð keisarans um úrbætur og breyt-
ingar og aðgerðir hersins gegn bænd-
um á landsbyggðinni höfðu stappað
stálinu í byltingarsinna.
Á þingi nokkru fyrir 1905 höfðu bol-
sévikar klofið sig úr flokki sósíaldemó-
krata og komist í meirihluta en orðið
bolséviki þýðir einmitt maður meiri-
hlutans. En í raun höfðu þeir engin pól-
itísk áhrif. Lenín neyddist til að laum-
ast úr landi þegar ekkert varð úr bylt-
ingunni og sneri ekki aftur fyrr en 12
árum síðar, í apríl 1917.
Byltingin lognaðist út af en
óánægja landsmanna blossaði reglu-
lega upp um landið allt. Í Lettlandi
eyðilögðu bændur til dæmis um 2.000
eignir á árunum 1905-1907. Herinn
brást hrottalega við og tók þúsundir
þeirra af lífi. Gyðingar urðu líka fyr-
ir barðinu á hernum, tugir þúsunda
voru drepnir.
Innanríkisráðherra keisarans,
Pjotr Stolypin, reyndi að bæta ástand-
ið og koma upp stétt sjálfseignar-
bænda. En blés ekki síður í glæð-
ur gyðingahaturs til þess að beina
óánægju verkamanna og bænda í
þann farveg. Aðferðir hans voru har-
kalegar, þeir bændur sem ekki vildu
skipta upp löndum voru hreinlega
teknir af lífi. Stolypin rak þessa stefnu
sína án þess að ráðfæra sig við þing-
ið og aflaði það honum óvinsælda og
óvina meðal þingmanna. Hann lifði
ótal tilræði af en var að lokum skotinn
til bana á sýningu óperunnar í Kænu-
garði 1911.
Herinn í stríði
Óeirðir og óánægja einkenndi
þjóðlífið í Rússlandi á fyrstu áratugum
20. aldar. Það eru þó ekki einu ástæð-
ur uppreisnanna á árinu 1917, fyrri
heimsstyrjöldin hafði ekki síður áhrif.
Rússneska hernum bar að verja Rúss-
land og landsvæði þess annars staðar
í heiminum til síðasta manns og var
jafnupptekinn við það árið 1917 og
hann hafði verið árið 1905.
Herinn var ekki aðeins fjarverandi
– hann beið iðulega afhroð. Hermenn-
irnir neyddust til að hlýða kallinu og
halda í orrustur vopnlausir, mann-
fallið var því gífurlegt. Allar samgöng-
ur lágu niðri. Íbúar borganna höfðu í
sig og á með herkjum. Ekki bætti að-
gerðaleysi stjórnvalda úr skák eða
lamaðar opinberar stofnanir.
Konur í verkfall
Febrúarbyltingin 1917, sem reynd-
ar var gerð í mars að okkar tímtali,
hófst með verkfalli kvenna í vefnað-
ariðnaði 8. mars. Nokkrum árum síð-
ar lýstu Komintern, alþjóðasamtök
kommúnista og síðar S.Þ., daginn aðl-
þjóðlegan baráttudag kvenna.
Aðrir sveltandi verkamenn í Pet-
rograd gengu í lið með konunum og
einnig félagar úr setuliði borgarinnar.
Keisarinn sá sér þann kost vænstan
að afsala sér völdum. Dúman skipaði
sósíalista og frjálslynda í bráðbirgða-
stjórn undir forustu lögfræðingsins
málsnjalla, Alexanders Kerenskís. Um
allt Rússland urðu til sovét eða ráð,
bænda-, hermanna- og verkamanna-
ráð, rétt eins og í byltingunni 1905.
Kerenskí reyndi að koma á jafnvægi
í landinu og studdi hin fjölmörgu ráð
en ástandið varð sífellt verra.
Þreyttir á stríðinu
Mestu mistök Kerenskís voru að
krefjast áfram þátttöku Rússa í fyrri
heimsstyrjöldinni en þjóðin var orð-
in úrvinda af stríðsrekstrinum. Sósí-
alistar áttuðu sig á kröfum fjöldans og
lofuðu friði, brauði, jarðarbótum og
sjálfstæði minnihlutahópa. Ítök bol-
sévika voru mest þótt þeir væru fálið-
aðir í bráðabirgðastjórninni. Litlum
en þaulskipulögðum flokki tókst að
steypa bráðabirgðastjórninni í okt-
óberbyltingunni 1917 og má af því
ráða hve sundurþykkjan var mikil. Og
þótt bolsévikar hefðu ekki mikil völd
jókst fylgi þeir jafnt og þétt sumarið
og haustið 1917. Strax í júlímánuði
1917 lá byltingin í loftinu í Petrograd
og hundruð mótmælenda gengu um
göturnar. Bolsévikum þótti þá mörg-
um rétt að setjast að völdum og gera
byltingu en Lenín taldi rétt að bíða
þangað til ljóst væri að þeir hefðu
þjóðina með sér.
Í september var lýðveldi stofnað
en ágreiningurinn í landinu óx jafnt
og þétt. Kerenskí reyndi að koma
bolsévikum frá með því að banna
kommúnistaflokkinn og lét fangelsa
Lev Trotskí, en hann leiddi bolsév-
ika ásamt Lenín. En barátta Kerensk-
ís var töpuð. Aðfaranótt 7. nóvember
ákvað Lenín að tíminn væri kominn,
skotið var af byssum beitiskipsins Ár-
óru en það táknaði að byltingin væri
hafin. Þegar bolsévikar tóku við völd-
um varð Alexander Kerenskí að fara í
útlegð.
Ekkert jafnvægi
Völd bolsévika næstu árin voru
ekki traust. Friðarsamningarnir við
Þýskaland 1918 áttu sinn þátt í því,
þátttöku Rússa í fyrri heimstyrjöld-
inni var lokið en þeir máttu láta mikil
landsvæði af höndum. Ekki varð frið-
vænlegt eftir samningana við Þjóð-
verja.
Heimafyrir þurftu bolsévikar að
takast á við hvítliða. Þeir komu úr
borgarastétt og voru á móti valda-
töku kommúnista. Í átökum þessum
nutu hvítliðar stuðnings BNA, Japans
og landa í Vestur-Evrópu sem öll ótt-
uðust að valdataka kommúnista væri
upphafið á heimsbyltingunni.
Aðgerðir bolsévika í innanlands-
wátökunum hafa löngum þótt orka
tvímælis. Keisarinn og fjölskylda hans
voru tekin af lífi 1918 í Ékatarínborg.
Hinn Rauði her Trotskís stóð af sér
storminn og varð sigurvegari átak-
anna en milljónir manna lágu í valn-
um.
Ófyrirleitin leyniþjónusta
Nokkurt jafnvægi komst á í land-
inu 1922 og Sovétríkin voru stofnuð.
Þetta nýja ríki átti að ryðja brott öllum
merkjum hins hataða keisaradæmis
og skapa íbúunum nýtt og betra líf.
Í innanlandserjunum hafði leyni-
þjónusta bolsévika ekki sýnt minni
ófyrirleitni og grimmd en forveri
hennar, leyniþjónusta keisarans.
Undir stjórn Stalíns, 1929-1953, gekk
þjóðernisstefna Rússa í endurnýjun
lífdaga en keisarinn hafði mjög barist
gegn henni. Ofbeldi gegn íbúum Sov-
étríkjanna jókst.
Sovétríkin liðu undir lok 1991. Að
nafninu til ríkir lýðræði í Rússlandi.
Erfiðleikar stjórnartíma kommúnista
skyggja á minningar um byltinguna.
Til eru þeir sem telja keisarastjórn
komna á að nýju, keisarinn heiti að
þessu sinni Vladimir Pútín. Menn
geta deilt um það en ljóst má vera að
erfitt reynist að átta sig á Rússlandi
nútímans ef ekki er skyggnst um í sög-
unni, fyrir og eftir byltingu. Ulf Zander
BEitiSKipið ÁRÓRa Októberbyltingin
hófst með skotum úr byssum áróru.
Beitiskipið er nú safn í sánkti Pétursborg.
LEnín Á BaRÁttuFundi
áróðursmynd af Lenín, leiðtoga
bolsévika, á baráttufundi í byltingunni.