Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Side 51
Nafn?
„Elísabet Eyþórsdóttir.“
Starf?
„Mamma og tónlistarkona.“
Stíllinn þinn?
„Alls konar.“
Allir ættu að...?
„...vera góðir við náungann.“
Hvað er ómissandi?
„Af hlutum myndi ég segja myndavél, til að
minnast skemmtilegra tíma.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Skræpóttar gammosíur í Spútnik.“
Hvert fórst þú síðast í ferðalag og í hvaða
tilgangi?
„Ég fór til Tálknafjarðar að syngja og spila með
systur minni Elínu á hátíð sem heitir Tálknafjör.
Það var ótrúlega gaman.“
Uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„Svartur kjóll með silfurröndum sem ég keypti í
Rokki og Rósum.“
Hvenær hefur þú það best?
„Þegar ég er með fjölskyldunni og góðum vinum
og þegar ég er að gera eitthvað tengt tónlistinni.“
Ertu með einhver áform fyrir næstu daga?
„Mín áform eru að njóta þess að vera í fæðing-
arorlofi með stráknum mínum og vinna í tónlist.
Ég er að fara að gefa út smáskífu með hljómsveit
sem heitir Tabúkka.“
Lumarðu á góðu tískuheilræði?
„Mitt tískuheilræði væri að klæða sig eins og
manni sjálfum finnst flottast.“
föstudagur 8. ágúst 2008 51
Elísabet
Eyþórsdóttir
PERSÓNAN
1Taktu nákvæm mál af þér. Þetta á við um karlmenn og konur. Ef um notuð föt
er að ræða, geta stærðirnar verið
mismundandi. Einnig skal huga
að því hvaðan varan er og hvort
að stærðin sé evrópsk, bresk eða
bandarísk. Stærðirnar eru allar
mismunandi. Ef flíkin er banda-
rísk þá er líklegt að stærðin sé
gefin upp í tommum. Þá þarf að
passa að breyta yfir í sentímetra.
2 Skoðaðu smáa letrið gaum-gæfilega. Passaðu að lýsing-in stemmi við myndirnar.
Gefðu þér góðan tíma ef þú versl-
ar á netinu. Ekki gera það í flýti.
3 Þó að flíkin sem þú hefur áhuga á sé seld á Ebay þýðir það ekki að ekkert sé að var-
ast. Passaðu að skoða meðmæli
seljandans vel. Keyptu af seljend-
um sem gefa upp nákvæmar lýs-
ingar á flíkunum og eru með góð-
ar myndir og flottar lýsingar. Ekki
láta gabbast.
4 Passaðu að gefa upp réttar upplýsingar um sjálfan þig. Er heimilisfangið þitt rétt
og allar upplýsingar um sjálfan
þig. Passaðu að seljandinn bjóði
upp á að skila vörunni ef hún er
ekki eins og þú hafðir ætlað þér.
Það mikilvægasta er að notast við
Pay-Pal. Ef seljandi býður ekki
upp á Pay-Pal, ættirðu ekki að
versla við hann.
5 Oft virðast flíkur á Ebay mjög ódýrar og Íslendingar sem notast hafa við síðuna,
missa sig algjörlega. Það eru samt
sem áður stór mistök að ofbjóða í
flíkur því það bætist ávallt send-
ingarkostnaður og tollkostanður
ofan á flíkina. Þá er hún oft orðin
jafn dýr og jafnvel dýrari en hérna
heima. Stundum eru verð gefið
upp í pundum og áströlskum eða
kanadískum döllurum.
6 Það má alltaf búast við því að notaðar flíkur séu ekki í fullkomnu ástandi, oftast
lýsa seljendur þeim göllum sem
eru til staðar. Ef flíkin er ný er hún
gjarna merkt sem slík. Það sama á
við um skókaup á Ebay.
7 Þó svo að aðeins sé gefinn upp ákveðinn tími til þess að bjóða í flíkur á Ebay, er alltaf
gott að hafa samband við seljand-
ann. Hægt er að senda þeim póst
á síðunni og þeir oft duglegir að
svara og hjálpa viðskiptavinum
sínum. Það er um að gera að nýta
sér þetta því oft blekkir myndin.
8 Það er nauðsynlegt að gefa seljendum og flíkinni ein-kunn eftir að hún er komin
í hendur þínar. Alltaf vera hreini-
skilinn því þá hjálpar þú seljand-
anum að taka sig á og á sama tíma
gefur þú öðrum kaupendum rétta
mynd af honum.
MAMMA vEit bESt Kynþokkafulla leikkonan Eva
Mendes þarf að vera alveg einstaklega varkár í fatavali
fyrir frumsýningar og önnur partí svo mamma hennar
hringi ekki í hana og skammi fyrir fötin. Mamma hennar
er nefnilega hennar stærsti tískugagnrýnandi og hikar
ekki við að lesa dóttur sinni pistilinn fyrir að vera ekki
nógu kvenleg. „alltaf þegar ég geng rauða dregilinn
segir mamma daginn eftir: Ooo, hárið var hræðilegt eða
skórnir voru ekki að virka. Ég veit samt að hún vill bara
að dóttir hennar sé fín,“ segir Mendes.
ÞAð SEm bER
Að vARASt
Tíska
Það er um að gera
að notast við síð-
una Ebay á þessum
krepputímum til
þess að kaupa sér
fatnað. Holurnar
geta þó verið marg-
ar og fyrir þá sem
ekki þekkja vel til,
er vert að lesa þess-
ar leiðbeiningar.
Ebay frábær leið til
að gera góð kaup.
Öryggi Mikilvægt er
að notast við Pay-Pal.