Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2008, Blaðsíða 62
föstudagur 8. ágúst 200862 Síðast en ekki síst DV Hver er konan? „Agnes Þorkelsdóttir Wild.” Helstu áhugamál? „Það er leiklist númer eitt, tvö og þrjú.“ Áttu fyrirmynd í lífinu? „Já, það eru mamma og amma mín. Vegna þess að þær eru ótrúlega opn- ar og góðar manneskjur. Þær drógu mig út í leiklistina og ég þakka þeim algjörlega fyrir það.“ Hver er þinn helsti hæfileiki? „Ég myndi segja að ég væri mjög opin manneskja og á auðvelt með að koma fram á sviði án þess að vera feimin. Mér finnst gaman að vera með fólki og fólk hefur gaman af að vera með mér.“ Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítil? „Ég ætlaði að verða forseti. Mér fannst forsetinn vera ótrúlega flottur, mig langaði að eiga fullt af peningum og vera fræg.“ Hvernig var tilfinningin að vera valin draggkóngur Íslands? „Ég var frekar hissa því ég bjóst ekki við þessu en ég var ótrúlega glöð og fannst þetta æðislega gaman. Mér finnst alveg frábært að vera valin draggkóngur Íslands.“ Hvað tók undirbúningurinn langan tíma? „Ekkert svo langan. Ég vann dragg- keppni í Borgarholtsskóla í vetur og því var ég búin að búa til karakterinn en ég bætti hann aðeins. Ég var að vinna karakterinn upp og æfa atriðið og það var ekki nema svona vika.“ Hvaðan kom hugmyndin að karakternum? „Ég hafði einu sinni gamlan kennara sem var oft svolítið brókaður þannig að pungurinn skarst í buxunum. Mér fannst það alltaf svo fyndið og lang- aði að búa til karakter sem væri svo- leiðis. Svo þróaðist hann betur út frá þessari grunnhugmynd.“ Klæðirðu þig oft í dragg eða bara fyrir keppnina? „Bara fyrir keppnina. Ég stefni að því að verða leikari og finnst gaman að leika karlmenn.“ Hvenær klæddir þú þig fyrst í dragg? „Á síðasta ári í Borgarholtsskóla draggkeppninni. Það var þá sem mér datt þetta í fyrsta skiptið í hug.“ Ertu samkynhneigð? „Nei, ég á kærasta. Bróðir minn tók líka þátt og hann er ekki heldur sam- kynhneigður.“ Hvernig tekur kærastinn í það að þú sést að fara í dragg? „Ágætlega. Hann er samt ekki til í að láta sjá sig í kringum mig en hann tók þessu mjög vel. Hann veit hvað mér finnst gaman að vera upp á sviði í hverju sem er, þannig að hann styð- ur mig í því.“ Var mikil samkeppni á milli draggkónganna? „Við vorum allar miklar vinkonur. Það var rosalega merkilegt að bak- sviðs voru allir mjög góðir vinir. Allir að spjalla saman og engir stælar eða neitt. Það var mjög gott andrúmsloft baksviðs.“ Hvað er fram undan hjá þér? „Ég er að vinna sem leiklistakennari í Mosfellsbæ og ég er að fara að setja upp sýningu með þrettán til sex- tán ára krökkum. Svo er það bara að klára skólann í haust en ég á eitt ár eftir í Borgarholtsskóla.“ MAÐUR DAGSINS BókStAfleGA „Hann óskaði eftir ís- lensku lambi og fiski og það eru kokkar sem elda ofan í allan fjöldann baksviðs. Það er enginn sérstök aðgreining á milli hans og hinna í hljóm- sveitinni.“ n grímur atlason tónleikahaldari um rokkgoðsögnina Eric Clapton. grímur stendur á bak við tónleika Claptons í Egilshöll í kvöld. - dV „Þetta æxlaðist bara þannið að þeir töluðu við okkur og við töluðum við þá.“ n árni Einar Birgisson, fram- kvæmdastjóri Iceland airwaves, um samskipti hátíðarhald- ara og Megasar og senuþjófanna sem urðu til þess að meistarinn og hljómsveitin samþykktu að spila á airwaves í haust. - 24 stundir „Þetta er trikk sem þeir nota mikið, fá menn inn í einhver samtöl sem meika engan sens, mað- ur verður upptekinn af einhverju rugli á meðan maður er rændur af sam- starfsmanni blaðrarans.“ n snæbjörn arngrímsson bókaútgef- andi sem lenti í því um síðustu helgi að fartölvu hans var stolið í danmörku. - Morgunblaðið „Kommúnistaflokkar á borð við Heimdall eru á móti þessu gegnsæi, eins og harðstjórnarflokkar eru um allan heim.“ n Jónas Kristjánsson vandar ungum sjálfstæðismönn- um ekki kveðjurnar vegna baráttu þeirra gegn birtingu álagningar- skrár. - jonas.is „Það eru bæði stjórnvöld og aðrir sem hæða og níða samkynhneigða í Hvíta-Rússlandi og þetta er því ólíkt því sem við eigum að venjast.“ n Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Hinsegin daga. Hvít-rússinn svjatoslav sementsov heldur fyrirlestur um stöðu samkyn- hneigðra í heimalandi sínu á Hinsegin dögum hér á landi í ár. - fréttablaðið „Rafbyssum er oft beitt við aðstæður þar sem beiting vopna og jafnvel ekki kylfa væri réttlætan- leg. Fjölmargar upplýs- ingar hafa komið fram um að lögreglumenn beiti rafbyssum á óvið- eigandi og hrottafenginn hátt.“ n fréttabréf Íslandsdeildar amnesty Internatinal sem sagt var frá á Vísi. „Það er að koma heils- unni í lag og finna vinnu við mitt hæfi.“ n Heimir freyr geirsson, bjargvættur Bubba Morthens og Páls Magnús- sonar útvarspsstjóra, um hvað sé framundan hjá honum. - dV Kærastinn styður draggKóng Íslands Agnes Þorkelsdóttir Wild er 19 ára stúlka úr Mosfellsbæ. á miðvikudags- kvöldið var hún krýnd draggkóngur Íslands árið 2008. agnes fékk hugmyndina að skarphéðni frá fljótstungu frá gömlum kennara sínum. dragg- kóngurinn á kærasta sem styður hana í því sem hún tekur sér fyrir hendur. milt veður næstu daga Velflestir landsmenn fá sól og þurrt veður í dag og á morgun en íbúar á austanverðu landinu mega þó eiga von á skýjaðra út- sýni og rigningu á morgun. Búast má við því að hiti verði á bilinu tíu til fimmtán stig um helgina en í byrjun næstu viku gæti hitastigið farið aðeins lækk- andi um mestallt landið. lau sun mán þri vindur í m/s hiti á bilinu stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu lau sun mán þri vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu. Höfn reykjavík egilsstaðir Ísafjörður vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. akureyri selfoss sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík fös lau sun mán hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu london hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Palma fös lau sun mán hiti á bilinu tenerife hiti á bilinu róm hiti á bilinu amsterdam hiti á bilinu Brussel hiti á bilinu marmaris hiti á bilinu ródos hiti á bilinu san Francisco hiti á bilinu new York hiti á bilinu Barselóna hiti á bilinu miamive ðr ið ú ti Í He im i Í d ag O g næ st u da ga n vindaspá á hádegi á morgun. n Hitaspá á hádegi á morgun. VEðurstofa Íslands 15 5 4 2 1 4 veður veðrið Í dag Kl. 18 ...Og næstu daga 15/19 15/19 14/19 18/20 12/18 17/20 16 15/19 16/17 12/16 14/17 16/20 18/19 15/19 16/19 18/19 14/21 16/21 16/20 14/22 14/21 17/23 17/19 15/23 16/24 14/21 16/18 18/28 23/28 25/28 25/27 25/27 21/31 24/31 24/30 23/30 21/24 21/23 21/24 21/23 20/31 19/33 16/34 17/32 15/18 15/20 16/19 14/19 11/18 16/21 16/18 14/19 19/40 17/36 18/38 18/38 23/28 24/27 24/27 24/28 12/21 11/23 11/26 9/29 21/27 20/25 19/25 22/27 25/33 24/33 25/33 25/33 1-3 1-2 2-3 2 10/13 10/13 10/11 9/12 2-3 4 5-4 4-3 10/13 9/11 8/10 10/12 1-2 1-2 1-2 1 11/14 11/12 8/11 10/13 2-3 1-2 2-3 2 10/14 9/11 7/9 8/12 5-3 4-6 5-4 2-4 8/11 7/10 7/9 8/10 2 2 2 1-2 9/12 9/12 8/11 10/13 2 2 1-2 2 6/12 7/11 7/11 8/14 2-3 2-3 2-3 2-6 9/10 7/10 7/11 7/11 1-4 3-4 1-3 2-5 9/12 8/11 8/11 8/13 2-3 2 1-2 1 9/12 9/12 9/10 9/12 10-12 5-3 5-12 9-3 10/12 11 10 10/11 1-3 1-2 2-3 2-3 9/13 9/12 8/10 8/12 3 2 3-4 3 9/14 9/13 8/10 7/13 4 1-5 5-4 5-2 10/14 12/13 10/11 10/12 4 4 3 11 13 13 11 9 15 13 2 13 10 5 dV-mynd Björn Blöndal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.