Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Blaðsíða 2
Handboltahetjan fyrrverandi Al-
exy Trufan og eiginkona hans El-
ena Trufan reka saman ferðaþjón-
ustufyrirtækið Through Iceland. Þau
skipuleggja ferðir fyrir rússnesku-
mælandi ferðamenn sem hingað
koma og anna varla eftirspurn. Marg-
ir rússneskir auðmenn eru meðal
viðskiptavina þeirra og ef þeir vilja
fljúga um landið á þyrlum, þá útvega
þau þyrlur. Þetta er þriðja sumarið
sem þau starfrækja ferðaþjónustu-
fyrirtækið.
Hjónin Elena Trufan og hand-
boltahetjan fyrrverandi Alexy Trufan
reka saman ferðaþjónustufyrirtæk-
ið Through Iceland, sem sérhæf-
ir sig í ferðum um Ísland fyrir Rússa
sem vilja koma hingað og njóta þess
besta sem landið hefur upp á að
bjóða. Þau fluttu hingað til lands frá
Rússlandi árið 1990, þegar Alexy hóf
að leika handbolta hér á landi. Eftir
að ferlinum lauk hefur fjölskyldan
búið hér áfram.
„Ég varð ástfanginn af Íslandi,“
segir Elena. Hún lauk háskólanámi
í íslensku fyrir útlendinga og mennt-
aði sig auk þess meira í ferðaþjón-
ustufræðum. Hún starfaði hjá ís-
lenskum ferðaskrifstofum í nokkur
ár og safnaði góðum samböndum.
Árið 2006 ákváðu þau hjónin hins
vegar að stofna sína eigin ferðaskrif-
stofu og einbeita sér að samlöndum
sínum. Og þá sérstaklega þeim sem
hafa efni á því að borga vel.
Auðmenn koma
Rússneskir auðmenn hafa sótt
landið nokkuð mikið í sumar,
skemmst er að minnast þess að Rom-
an Abramovitsj, einn ríkasti maður
heims, var staddur hér á landi í síð-
ustu viku, með fríðu föruneyti. Vef-
urinn kjos.is, greindi svo frá því í vik-
unni að rússneskir auðmenn hefðu
lent á bökkum Laxár í Kjós. Óstaðfest-
ar fregnir hermdu að þar væri á ferð
sjálfur Roman Abramovitsj. Elena,
sem var á leið með ferðamenn upp á
Mýrdalsjökul þegar DV sló á þráðinn
til hennar, segir að fyrirtæki þeirra
hjóna hafi ekki tekið á móti Roman,
en þó hafi fjölmargir rússneskir auð-
menn nýtt sér þjónustu þeirra.
„Flestir sem koma hingað vilja
koma aftur. Fólk kemur út af hreina
loftinu og hreina vatninu. Út af nátt-
úrunni og fólkinu. Það er allt annar
lífsstíll hér heldur en í Rússlandi. Við
reynum að sýna þeim Ísland eins og
það er,“ segir hún.
Vinsældir Through Iceland með-
al Rússa eru svo miklar að nokkrir
vel stæðir Rússar sem nýtt hafa sér
þjónustu þeirra hafa boðist til þess
að styrkja þau beint fjárhagslega, svo
fyrirtækið geti vaxið og dafnað.
Útvega þyrlur
Alexy og Elena skipu-
leggja alls konar ferðir
fyrir fjársterka rúss-
neska ferðamenn. Ef
þeir vilja sjá landið
eða ferðast um það
með þyrlum, þá
útvega þau þyrlur.
Fyrirtæki þeirra
sér raunar um að
skipuleggja hvers
konar lúxus-
ferðir fyrir rúss-
neskumælandi
ferðamenn.
En af hverju
leita þeir til
ykkar?
„Upplýsing-
arnar sem fólk get-
ur fengið um Ísland
í Rússlandi eru ekki svo
góðar og þess vegna er
miklu betra að landar þeirra sem búa
hér skipuleggi ferðirnar fyrir það,“
segir hún og bætir við: „Það er mik-
ið að gera og þetta er bara stanslaus
vinna.“
Roman á Íslandi
Roman Abramovitsj hefur nokk-
uð verið í umræðunni hér á landi.
Sagðar voru fréttir af því í þessari
viku að hann hefði komið hingað til
lands með föruneyti sínu á fjórum
einkaþotum. Roman var hér með
fjölskyldu sinni og sást meðal annars
til hans á Geysi, þar sem hann naut
náttúrunnar eins og hver annar ferða-
maður. Þá var hann einnig gestur á
órafmögnuðum tónleikum Bjarkar
sem fram fóru í
vikunni.
Þetta helst
föstudagur 29. ágúst 20082 Fréttir
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Strákarnir okkar
stóðu uppi sem
sigurvegarar þrátt
fyrir tap í úrslita-
leiknum á Ólymp-
íuleikunum. Silfurverð-
launin á Ólympíuleikunum
eru besti árangur í sögu
íslenskra hópíþrótta og eitt-
hvert mesta afrek íslenskr-
ar íþróttasögu. Aðeins einu
sinni áður hefur það gerst
að Íslendingur hafi komist
svo hátt á verðlaunapall á ólympíuleikum sem landsliðið gerði núna,
síðan er liðin rúm hálf öld. Enda fór það svo að þjóðin fylkti sér um
handboltalandsliðið sem aldrei fyrr. Tugþúsundir mættu í miðbæ
Reykjavíkur í votviðri á miðvikudegi og hylltu hetjurnar frá Peking.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti leikmönnunum, þjálfaranum
og tveimur forsvarsmönnum HSÍ fálkaorðuna.
silfur á Ólympíuleikunum
Fjölskyldu-
hjálpin hefur
aðstoðað fá-
tæka undanfar-
in fimm ár. Hún
leigir húsnæði sitt
af Reykjavíkurborg en
hefur ekki getað staðið
í skilum með leiguna.
DV greindi frá því á
miðvikudag að skuldin
væri komin í innheimtu
og Fjölskylduhjálpinni
hótað útburði. Ásgerð-
ur Jóna Flosadóttir sagðist ítrekað hafa sótt um styrk til
borgarinnar en alltaf verið hafnað. „Þetta er árás á fátæka fólkið í
borginni,“ sagði hún. Eftir að DV fjallaði um vandann komst hreyfing
á málið. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur-
borgar lýsti áhuga á að leysa vandann og á fimmtudag fóru fram tveir
fundir um málið.
borgin sækir að
fjölskylduhjálp
2
Sænsk rithandarrann-
sókn bendir eindreg-
ið til þess að Sophia
Hansen hafi sjálf skrif-
að undirskriftir sem
hún kærði Sigurð Pétur
Harðarson fyrir að falsa. Málið
hefur verið látið niður falla en
lögreglan mun hugsanlega rann-
saka hvort Sophia hafi haft Sigurð
fyrir rangri sök. Þung viðurlög
eru við því. Sigurður Pétur segist
ánægður með niðurstöðuna en
mannorð hans hafi ekki verið
hreinsað. Hann íhugar nú að
leggja fram kæru gegn Sophiu.
„Getur fólk farið hér um götur
bæjarins, haft annað fólk fyrir
rangri sök, sólundað peningum
og vinnuafli lögreglunnar í að rannsaka mál sem eru bull frá upp-
hafi og þurfa ekki að borga fyrir það?“ spurði Sigurður Pétur í viðtali
við DV á þriðjudag.
hafður fyrir rangri sök
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
Bókari tekinn í
gíslingu
þriðjudagur 26. ágúst 2008 dagblaðið vísir 155. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
Sigurður Pétur HarðarSon Sýknaður af SkjalafalSi:
Borgin stefnir
fjölskylduhjálp
reykjavíkurborg
Hótar fjölSkyldu-
HjálP íSlandS út-
burði vegna van-
goldinnar leigu.
Sophia
kom Sök
á Sigurð
fréttir
Ásdís Rán í
fasteignabrask
„ég grét þegar ég heyrði að hún hefði lagt fram þessa kæru“ sigurður pétur íhugar að kæra sophiu hansen aftur
segir föður sinn hafa lánað sophiu milljónir króna
HafnfirSkur bókari Hefur kært innráS
tveggja Hnífamanna Sem Hann Segir
Hafa Haldið Sér föngnum með Poka yfir
Höfði til að ná uPP úr Honum lykilorði.
Hagfræðingur fer sexfalt maraþon
áSdíS rán gunnarSdóttir flytur til búlgaríu
áSamt manni Sínum, garðari gunnlaugSSyni.
fólk
fréttir
3
Mæðgurnar Ragna
Erlendsdóttir og hin
tveggja ára gamla Ella
Dís Laurens eru nú í
New Jersey í Banda-
ríkjunum þar sem Ella
Dís gengst undir læknismeð-
ferð vegna alvarlegra veikinda.
Meðferðin er gríðarlega dýr en
hefur skilað árangri. Þegar DV
ræddi við Rögnu á miðvikudag
sá hún fram á að þurfa að greiða
sjálf háan lækniskostnað vegna
þess að söfnunarfé var uppurið.
Viðbrögðin létu hins vegar ekki
á sér standa. Heilbrigðisráðu-
neytið setti sig í samband við hana og undirskriftasöfnun á netinu er
hafin til að þrýsta á að læknismeðferð hinnar tveggja ára gömlu Ellu
Dísar verði borguð.
ella dís í vanda
4
Handboltahetjan fyrrverandi Alexy Trufan og eig-
inkona hans, Elena Trufan, reka saman ferðaþjónustufyrirtækið
Through Iceland. Þau skipuleggja ferðir fyrir rússneskumælandi
ferðamenn sem hingað koma og anna varla eftirspurn. Margir
rússneskir auðmenn eru á meðal viðskiptavina þeirra og ef þeir
vilja fljúga um landið á þyrlum, þá útvega þau þyrlur. Þetta er
þriðja sumarið sem þau starfrækja ferðaþjónustufyrirtækið.
hitt málið
rússar flykkjast
til landsi s
Miðvikudagur 27. Ágúst 20082
Fréttir
„Ég er rosalega sár yfir hvað því mér
finnst heilbrigðiskerfið sýna mér lít-
inn stuðning. Ég er viðkvæm móðir
að bjarga tveggja ára gamalli dóttur
minni frá dauða og ég er að verða veik
af fjárhagsáhyggjum vegna læknis-
kostnaðar. Það er er eitthvað sem ég
á ekki að þurfa að gera á meðan ég
er að berjast fyrir lífi dóttur minn-
ar,“ segir Ragna Erlendsdóttir, móðir
hinnar tveggja ára gömlu Ellu Dísar
Laurens, sem glímir við gríðarlega
erfið veikindi.
Ella Dís fæddist heilbrigð en síð-
asta árið hefur hún veikst hratt. Hún
hefur hrörnað og er nú lömuð. Lækn-
ar telja að hún þjáist af sjálfsofnæmi,
en sjúkdómsgreining liggur enn ekki
fyrir. Hún hefur nokkrum sinnum
fengið lífshættuleg köst þar sem hún
hættir að geta andað.
Ella Dís gekkst undir þrjár mjög
erfiðar skurðaðgerðir hér á landi
sem miðuðu að því að hún gæti losn-
að úr öndunarvél sem hún hafði ver-
ið í í rúmar fjórar vikur. Aðgerðirnar
báru ekki tilætlaðan árangur og því
greip Ragna til þess örþrifaráðs að
fara með dóttur sína til New Jersey
í Bandaríkjunum, þar sem Ella Dís
undirgengst nú nýja meðferð, sem
hefur gert það að verkum að hún
hefur verið laus úr öndunarvélinni í
rúma tvo sólarhringa.
Gríðarlega dýrt
„Læknarnir hér heima gerðu mér
það alveg ljóst að þeir væru ekki til-
búnir til að mæla með því við Trygg-
ingastofnun að Ella Dís færi út. Ég
ákvað það hins vegar á mínum eig-
in forsendum að hún færi út, enda
höfðu aðgerðirnar heima ekki skilað
neinum árangri. Ég komst í samband
við lækni í Bandaríkjunum sem sagði
mér frá því að börn þyrftu ekki að fá
ágenga meðferð, á borð við skurðað-
gerðir, til að geta andað sjálf,“ segir
hún.
Ragna ákvað að fara út til Banda-
ríkjanna þrátt fyrir að hún vissi að
meðferðin væri gríðarlega kostn-
aðarsöm enda væri það þess virði
gæti hún bjargað lífi Ellu Dísar. „Ég
átti rúmar þrjár milljónir króna, sem
höfðu safnast fyrr í sumar, en þær
fóru í að borga spítalann um leið og
við komum. Nú er Ella Dís komin úr
öndunarvél, en ég veit ekkert hvað
verður um framhaldið, því það er allt
í lausu lofti varðandi fjármálin.“
Vantar sjö milljónir
Ef allt gengur að óskum verð-
ur Ella Dís útskrifuð af spítalanum í
New Jersey á föstudaginn en Ragna
kvíðir um leið þeirri stund. „Fjöl-
skylda mín hefur rætt við Trygginga-
stofnun á meðan ég hef verið erlend-
is og við erum ekki vongóð um að
stofnunin taki þátt í að greiða lækn-
iskostnaðinn. Læknarnir hér heima
vildu ekki skrifa upp á að þetta væri
lífsnauðsynleg meðferð, sem þetta er,
og þeir eru búnir að vera mjög erfiðir
við mig. Kannski er það þrjóska mín
og trúin á að það sé hægt að lækna
hana sem varð til þess að ég fór með
hana á mínum eigin forsendum út.“
Meðferðin í New Jersey, sem hef-
ur sem fyrr segir skilað góðum ár-
angri, kostar um 10 þúsund dollara
á dag, sem samsvarar rúmlega 800
þúsund krónum. Það er aðeins spít-
alalegan á gjörgæsludeild og með-
ferðin. Ofan á það bætist síðan afar
dýr lyfjameðferð sem Ella Dís þarf að
gangast undir. Hver skammtur af lyf-
inu kostar um 300 þúsund krónur og
þarf hún að fá skammtinn á þriggja
vikna fresti.
Ragna er hins vegar afar ánægð
ValGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Læknarnir hér heima vildu ekki skrifa upp á
að
þetta væri lífsnauðsynleg meðferð, sem þett
a er,
og þeir eru búnir að vera mjög erfiðir við mig
.“
Mæðgurnar ragna Erlendsdóttir
og Ella dís Laurens. Ella dís er
lömuð vegna veikinda sinna.
Fjölskyldan ragna berst fyrir lífi
dóttur sinnar en mikil óvissa ríkir
um framhaldið þar sem
læknismeðferðin í Bandaríkjunum
er gríðarlega kostnaðarsöm.
Ragna Erlendsdóttir
Ella Dís
laurens
NÆR EKKI AÐ FJÁRMAGNA
LÍFSBJÖRG ELLU DÍSAR
Miðvikudagur 27. Ágúst 2008 3
Fréttir
„Það var æðislegt að vakna í gær-
morgun og þetta var friðsælasti
dagur síðustu mánaða,“ segir Paul
Ramses Odour um fyrsta morgun-
inn á Íslandi en hann hitti konu
sína Rosemary Atieno og soninn
Fídel Smára í fyrsta skipti í tvo
mánuði aðfaranótt þriðjudags.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hnekkti úrskurði Útlend-
ingastofnunar síðastliðinn föstu-
dag og nú verður mál þeirra hjóna
tekið fyrir hér á landi. Ramses og
Rosemary segjast ekki vita hvert
framhaldið verður en þau muni
tala við Katrínu Theódórsdóttur
lögfræðing um næstu skref.
Öskraði í símann
„Halló, ákvörðunin hefur verið
tekin og ég hef mjög
góðar fréttir handa
þér,“ voru orð-
in sem Ramses
heyrði þegar
lögfræðingur
hans, Katr-
ín Theód-
órsdótt-
ir, færði
honum
fregnirnar
um úrskurð
dómsmála-
ráðuneyt-
isins.
„Ég hélt mig væri að dreyma, hún
spurði mig hvort ég væri sofandi
og ég svaraði með því að segja já,
en svo fattaði ég hvað hún hafði
sagt og ég vaknaði samstundis,“
segir Ramses glaður í bragði.
„Ég æpti bara í símann þegar
ég fékk fregnirnar,“ segir Rosem-
ary Atieno, eiginkona Pauls Ram-
ses, um það þegar hún fékk fregnir
af úrskurði dómsmálaráðuneytis-
ins. Hjónin segja undanfarna daga
hafa verið dásamlega en mjög til-
finningaríka.
Þakkar dómsmálaráðherra
Ramses segist vilja þakka Birni
Bjarnasyni dómsmálaráðherra
fyrir að hafa hnekkt úrskurði Út-
lendingastofnunar. „Á tíma-
bili hélt ég að Dyflinarsamn-
ingurinn myndi ganga frá
mér en svo fór ekki og ég
er þakklátur fyrir að okkur
hafi verið gefinn sá mögu-
leiki að sameinast á nýjan
leik sem fjölskylda,“ seg-
ir Ramses við DV. Hann
segist einnig vera þakklát-
ur íslensku þjóðinni fyrir
stuðning sinn. Hann segist
gríðarlega þakklátur öllum
þeim fjölda kvenna sem hafi
hringt í Rosemary og stutt við
bakið á henni á
meðan fjöl-
skyldan var
aðskilin.
Minnti á gamla tíma
„Þegar ég var tekinn af lögregl-
unni og sendur til Rómar var ég
viss um að ég myndi aldrei aft-
ur sjá Rosemary og Fídel. Þannig
að þegar ég loks sá þau á flugvell-
inum var ég ekki viss um að það
væri raunverulegt,“ segir Ramses
um tilfinningar sínar undanfarna
sólarhringa. „Síðustu dagarnir í
Róm voru mjög erfiðir, ég þurfti að
flakka um götur borgarinnar og ég
fékk engan mat allan daginn, ekk-
ert nema kvöldmat,“ segir Ramses
og bætir því við að þar hafi hann
verið minntur á lífið sem hann
lifði þegar hann var ungur maður í
Keníu og borðaði ekki svo dögum
skipti. Nú segist hann vilja slappa
af og koma sér fyrir á nýjan leik,
vegna þess að síðustu mánuðir
hafi verið honum erfiðir á sál og
líkama.
Ótryggt ástand í Keníu
Í vefriti Daily Nation í Keníu
er því haldið fram að Paul Ram-
ses hafi ekkert að óttast í landinu,
leiðtogi flokks hans sé forsætisráð-
herra og sterkur leiðtogi. Ramses
segir það ekki allskostar rétt: „Ra-
ila Odinga hefur verið að biðja for-
setann um að sleppa fólki sem er
í fangelsi en forsetinn hefur ekki
sleppt þeim af pólitískum ástæð-
um. Ég spyr: Ef hann er svona
sterkur leiðtogi, af hverju hefur
þessu fólki þá ekki verið sleppt?“
Ramses segir stöðuna ekki í lagi
fyrir þá sem hafa tekið þátt í
stjórnmálum og þeim hefur verið
hótað, ástandið í stjórnmálum sé
of óljóst. „Ég vona að við getum
fundið frið hér og þá er draumur-
inn okkar sá að lifa hér, starfa og
eignast fjölskyldu á Íslandi,“ segir
Ramses að lokum.
ÞAKKLÁTUR DÓMS-
MÁLARÁÐHERRA
Paul Ramses Odour
Rosemary Atieno
JÓn bJARKi MAgnússOn
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
gleðidagur Fjölskyldan ætlar að taka
því rólega næstu daga og njóta samvist-
anna áður en þau ræða við lögmann og sj
á
hver næstu skref verða.
Mynd HeiðA HelgudÓttiR
„Ég hélt mig væri að dreyma, hún spurði mig
hvort ég væri sofandi og ég svaraði með því
að
segja já, en svo fattaði ég hvað hún hafði sag
t
og ég vaknaði samstundis.“
Feðgarnir saman sonurinn
Fídel smári er skírður í höfuðið
á Eiði smára fótboltakappa.
með viðmótið á spítalanum í Banda-
ríkjunum. „Læknarnir vilja ekki
stofna lífi hennar í hættu út af pen-
ingaskorti okkar og munu þess vegna
klára meðferðina. En þegar hún
verður útskrifuð á föstudaginn kem-
ur að því að við þurfum að reiða fram
sex milljónir króna í viðbót fyrir utan
lyfjakostnað. Ég vildi gjarnan að ég
ætti hús til þess að selja ofan af mér
til þess að greiða fyrir meðferðina, en
svo er ekki.“
sár út í heilbrigðiskerfið
„Mér finnst það ömurlegt að dótt-
ir mín, sem er íslenskur ríkisborgari,
fái ekki meiri stuðning frá heilbrigð-
iskerfinu en þetta. Ég var búin að gefa
læknunum heima þrjú tækifæri með
því að leggja hana undir hnífinn. Það
var hins vegar bara verið að gera út
af við hana með öllum þessum að-
gerðum. Þeir voru farnir að tala um
það við mig að hún væri bara að fara.
Mér fannst að ég þyrfti að gera það
sem þurfti að gera. Það var algjört ör-
þrifaráð að fara með hana til Banda-
ríkjanna,“ segir Ragna.
Hún er sár yfir því að svo virð-
ist sem heilbrigðiskerfið hér á landi
líti á það sem endastöð fyrir dóttur
hennar að íslenskir læknar séu svart-
sýnir á lífslíkur hennar. Ragna segir í
ljósi aðstæðna sinna og dóttur sinn-
ar að sér hafi fundist afar sárt að sjá
fréttir af því nýlega að íslenska ríkið
hafi greitt sjúkrareikning upp á um
það bil 15 milljónir króna fyrir Guð-
rúnu Katrínu Þorbergsdóttur heitna,
eftir læknismeðferð sem hún þurfti
að sækja í Bandaríkjunum.
„Ég vil að heilbrigðisráðuneyt-
ið eða Tryggingastofnun þekki sögu
mína og þó þeir hafi sagt að þeir
myndu ekki hjálpa, þá finnst mér
samt að þeir eigi að gera það. Fólk-
ið í landinu hefur hins vegar verið
rosalega duglegt að styrkja okkur og
fyrir það er ég þakklát,“ segir hún og
vísar þar til landssöfnunar sem fram
fór í maí til þess að safna fyrir ferð
mæðgnanna til Kína til þess að Ella
Dís gæti gengist undir stofnfrumu-
aðgerð. Í þeirri söfnun söfnuðust yfir
fimm milljónir króna á fimm dögum.
Ella Dís gat hins vegar ekki þolað svo
langt ferðalag til Kína og því notaði
Ragna peningana til þess að borga
fyrir meðferðina í Bandaríkjunum.
Styrktar-
reikningur
Ellu Dísar
Reikningsnúmer:
0525-15-020106
Kennitala:
020106-3870
Paul Ramses:
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Helgarblað
ÞoRsteinn KRagh:
Helgin 18. – 20. júlí 2008 dagblaðið vísir 130. tbl. – 98. árg. – verð kr. 395
hásKólaKennaRi:
Bjargaði
konu
ur
eldi
Heimsótti
vatíkanið
ung, einhleyp og eftirsótt
bRyndís jaKobsdóttiR,ingó og haRPa einaRsdóttiR:
alltafí lífshættu
Ella Dís, rúmlEga tvEggja ára, var hEilbrigð fyrir ári En Er nú lömuð. ragna ErlEnDsDóttir, móðir hEnnar, hElDur í vonina:
sjúkDómurinn
samEinar
Ragna Erlendsdóttir og
Marc Laurens, foreldrar
Ellu Dísar, voru skilin. Eftir
að dóttir þeirra veiktist
hræðilega hafa þau náð
saman og eru allan sólar-
hringinn við sjúkrabeð
hennar. Foreldrunum var
sagt að sjúkdómurinn
myndi eldast af henni. Ella Dís fékk ranga greiningu
en nú hefur hún verið
greind með sjálfsofnæmi
eftir að móðir hennar
hefur eytt milljónum í
rannsóknir. Foreldrarnir
berjast fyrir lífi dóttur
sinnar.
D
V-
m
yn
D
G
ú
n
D
i
RaðmoRðingjaR:
Hjónin
myrtu
saman
vissi að
Hann
væri
perri
18. júlí 2008
mánudagur 25. ágúst 20082
Fréttir
4 5 6 7 8 9 10 4 5 6 7 8 9 10
svona stóðu þeir sig
Hreiðar stóð sig vel
framan af en fékk
lítið að spreyta sig
eftir stjörnu-
innkomu Björgvins.
sverre var þéttur í
vörninni en fékk of
oft á sig tvær
mínútur fyrir
klaufaleg brot.
sterkur engu að
síður.
snorri sýndi svo
um munaði á
mótinu að þarna
fer einhver besti
miðjumaður
heimsins í dag.
róbert hefur oftar
en ekki leikið betur.
Hann var hins vegar
ávallt í gjörgæslu og
var alltaf að reyna
að búa eitthvað til
fyrir félaga sína.
Ingimundur kom
mjög á óvart. Hann
er ekki þekktasti
handboltamaður
heimsins en barátta
hans skilaði sér alla
leið heim í stofu.
sigfús spilaði minna
en vanalega en kom
alltaf sterkur inn.
stóð sig vel bæði í
vörn og sókn þegar
hann kom inn á.
4 5 6 7 8 9 10 5 6 7 8 9 10 3 4 5 6 7 8 9 6 7 8 9 10
5 6 7 8 9 10
Björgvin átti
stórleiki í átta liða
og undanúrslitum.
Klárlega ein af
óvæntun hetjum
liðsins.
Stórkostlegri frammistöðu Íslands í handboltakeppni Ólympíuleikanna í Peking lauk með móttöku silfurverð-
launanna eftir sárt tap gegn feikna-
sterkum Frökkum í úrslitaleik keppn-
innar. Landsliðsmennirnir sem hafa fest sig í sessi sem hetjur þjóðarinnar síðustu vikur máttu takast á við það að verða í senn fyrir vonbrigðum í lokaleik en fagna um leið silfri, besta árangri sem íslenskt lið hefur nokkru sinni náð í hópíþrótt.
Klökkur guðmundur
Guðmundur Guðmundsson var fjórði kostur HSÍ þegar ráða átti í starf landsliðsþjálfara. Mikill flumbrugangur einkenndi valið og láku allar upplýsingar, stórar sem smáar, í fjölmiðla. Var talað um að landsliðið væri rjúkandi rústir þegar Guðmundur tók við.
Byrjunin lofaði góðu, Íslendingar slógu út Svía og komust fyrir vikið til
Peking. Hins vegar mistókst liðinu að komast á HM sem verður í janúar næstkomandi.
Guðmundur tók nokkrar erfiðar ákvarðanir í aðdraganda leikanna. Skildi Birki Ívar Guðmundsson markvörð eftir heima, Einar Hólm-
geirsson og Vigni Svavarsson svo einhverjir séu nefndir. Hlaut hann nokkra gagnrýni fyrir. Hann stendur hins vegar eftir sem sigurvegari.
Hann var enda klökkur þegar DV spjallaði við hann eftir úrslitaleik-
inn. „Það er skrítin tilfinning að vera búinn að vinna silfrið en svekkt-
ur að tapa gullinu. Maður þarf að reyna að ýta því frá sér og fagna. Hópurinn er einstaklega vel skipað-
ur. Hann hefur æft gríðarlega vel og rétt. Allir sem hafa komið að þessu hafa verið frábærir, maður vill ekki gleyma neinum en í mínu hjarta er mikið þakklæti.“ Guðmundur segist andlega mjög þreyttur og hann er ekki tilbúinn til þess að taka ákvörð-
un um framtíð sína sem landsliðs-
þjálfara á þessari stundu. „Það eina sem ég get hugsað um núna er að hitta fallegu konuna mína. Dreng-
ina mína þrjá og dóttur mína sem er 9 mánaða. Ég er ekki að velta fyrir mér handboltaþjálfun á þessu stigi,“ segir Guðmundur.
ekki hægt annað en að vera ánægð
„Ég segi bara það allra besta. Það er ekkert hægt annað. Ég er bara ís-
lensk kona á góðum degi,“ sagði hás Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra eftir úrslitaleik Íslands og Frakklands. Þorgerður var viðstödd úrslitaleikinn í Peking, taldi það skyldu sína og lifði sig inn í leikinn. Þorgerður er gömul hand-
boltakempa, þótti gróf á sínum yngri árum og átti það til að taka í lurginn á mótherjum sínum. Eftir að leik-
mannsferlinum lauk og stjórnmála-
ferillinn byrjaði hefur hún ávallt vakið athygli fyrir vasklega fram-
göngu sem stuðningsmaður í blíðu og stríðu.
„Ég var búin að smyrja mig vel. Var með nóg af beiskum og ákvað að fórna mér algjörlega alla leið. Þó maður sé orðinn ráðherra, þá breytir maður sér ekkert.“
BenediKt Bóas hinriKsson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
hetjurnar sem hrepptu silfur
sturlu Ásgeirssyni ólafs stefánssonar
þorgerður Katrín gunnarsdóttir
erfitt eftir leik snorri steinn, Ólafur stefánsson og guðmundur þjálfari
voru að vonum niðurbrotnir eftir
leikinn gegn Frakklandi.
Spennufall eftir Spánarleikinn
Einar Þorvarðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, var að taka þátt í sínum fimmtu ólympíuleikum. Hann segist stoltur og þessi árangur sýni að HSÍ sé að vinna markvisst og gott starf. „Þeg-
ar hlutirnir ganga vel er stemmingin alltaf góð. Verðlaunapeningurinn er toppurinn á mínum ólympíuleikum, ég var tvisvar leikmaður, einu sinni var ég aðstoðarþjálfari og svo var ég í Aþenu með Guðmundi árið 2004.“
Eftir sigurinn gegn Spáni áttu margir leikmanna erfitt með svefn. Spennufallið var mikið enda erfitt að melta að úrslitaleikur á ólympíuleik-
um væri fram undan. „Ég held að það hafi verið okkar stærsti óvinur í leikn-
um. Það varð mikið spennufall og að vinna þetta silfur gegn Spáni virtist erfitt fyrir okkur. Við áttum ekki góð-
an dag og fórum illa með okkar færi. En það verður að segjast að okkar lið
er ekki jafn vant því að spila svona leiki og leikmenn í franska liðinu. Það sást að einhverju leyti. En það má ekki gleyma því að við vorum að spila á móti gríðarlega góðu liði.“
Einar hefur fengið kveðjur úr ýms-
um áttum. „Það hafa allir leikir okk-
ar verið í beinni útsendingu um alla Evrópu og fáum kveðjur frá mörgum. Þetta hefur því verið mjög góð kynn-
ing fyrir land og þjóð.“ Einar sagði að söfnun til handa HSÍ hefði geng-
ið vel. Engar tölur væru þó til að gefa upp enda væri fólk og fyrirtæki enn að styrkja landsliðið.
Yndisleg geðveiki
Þorgerður Katrín segir að íslenska landsliðið hafi vakið verðskuldaða at-
hygli fyrir að gefa mikið af sér og að liðið sé glæsilegir fulltrúar Íslands. „Ég held að þeir séu ekki búnir að átta sig á þessari yndislegu geðveiki sem hef-
ur verið í gangi heima vegna þeirra. En ég vona að allir aðrir séu búnir að átta sig á afreki þeirra. Þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við þá. Fyrir allt, táraflóðið, tilfinningarnar, fyrir ástríð-
una og fyrir að vera svona góðar fyr-
irmyndir.“
Fylking niður Laugaveg
Þorgerður Katrín lofar ís-
lensku þjóðinni að vel verði tek-
ið á móti strákunum. Unnið sé
að því hörðum höndum með
borgaryfirvöldum, HSÍ
og ÍSÍ. „Það er erfitt
að setja strákana í
hringferð um land-
ið eins og sumir
hafa óskað eftir
en ég hvet alla
til að koma til
Reykjavíkur
og hylla þá.
Ég held að
við fáum
ekki annað
tækifæri til
að hylla
lands-
lið sem nær svona árangri þó ég voni það.
Ef Guð lofar og veðrið, þá vona ég að hægt verði að fara með þá nið-
ur Laugaveginn í mikilli fylkingu og enda á Lækjartorgi eða Miklatúni en þetta erum við allt að skoða. Ég skora bara á landsmenn að koma og sýna strákunum stuðning sinn og virðingu. Það er vonandi að þeir komi á sæmi-
legum tíma.“
Kannski voru þetta örlögin
„Þetta er mesta afrek íslenskrar íþróttasögu, vil ég meina,“ segir Guð-
jón Guðmundsson, íþróttafréttamað-
ur, alfræðiorðabók um handbolta og faðir Snorra Steins. „Auðvitað eru menn að uppskera þarna eftir margra ára erfiði, liðið, þjálfarinn og aðstoð-
arfólk hans. Guðmundur er náttúru-
lega stórkostlegur þjálfari og gerði allt rétt í aðdraganda leikanna og vann þrekvirki. Hann var ekki fyrstur á lista HSÍ og kannski voru þetta örlögin. Við skulum rétt vona það.
Enn og aftur sannast það að skipu-
lagður leikur og taktískur skilar Ís-
landi bestum árangri. Frjálst spil eða samvinna milli tveggja manna, það geta Íslendingar ekki leikið.“
Guðjón sagðist vera gríðarlega stoltur af syni sínum en fyrst og fremst væri hann stoltur af liðinu.
„Ég er fyrst og fremst stoltur af lið-
inu. Það kannski undirstrikar styrk liðsins að það er með þrjá í úrvalsliði mótsins. Það er erfitt að taka einn út, þeir eiga þetta allir.“
Geir Hallsteinsson faðir Loga Geirssonar og einn besti handbolta-
maður Íslands fyrr og síðar horfði á úrslitaleikinn heima hjá sér. „Mað-
ur varð fyrir svona pínu vonbrigðum en þetta er svona. Ég held að menn hafi sprungið eftir Spánverjaleikinn því strákarnir voru svo óþekkjanlegir gegn Frökkum.
Það var vitað að við ættum við ramman reip að draga. Mér fannst þeir byrja illa en oft hafa þeir byrjað vel. Þá hafa hinir þurft að sækja. En það er eins og það vantaði. Kannski höfðu þeir ekki trú á verkefninu.“
Gott að geta borið höfuðið hátt
Guðmundur Hálfdanarson
sagn-
fræðingur hefur kannað þjóðernisvit-
und Íslendinga í rannsóknum sínum. „Áhrif handboltans eru nú ekki mik-
il. Ekki í bráð. En ef Íslendingar eru að standa sig vel á alþjóðlegum vett-
vangi er það hið besta mál fyrir okk-
ar orðspor,“ segir Guðmundur. „Góð frammistaða Íslendinga almennt styrkir álit annarra þjóða á okkur yf-
irleitt. Slök frammistaða hefur öfug áhrif. En menn mega ekki gera of mik-
ið úr þessu. Þetta hefur aðallega áhrif á okkur sjálf. Það er ekkert verra ef við getum borið höfuðið hátt erlendis. Það er augljóst mál að þetta er til bóta. Við stöndum okkur vel vegna þess að við erum heilbrigð þjóð með traustar undirstöður. Við höfum náð að vinna okkur úr erfiðleikum áður og munum gera það í framtíðinni.“
Sökuð um að ljúga
Þorgerður Katrín íþróttamálaráð-
herra hefur orðið vör við að fólki finnst ótrúlegt að svo lítil þjóð nái svo glæst-
um árangri. „Þetta er sama gamla sagan, það trúir því enginn hvað við erum stór í raun,“ segir Þorgerður Katrín um þau viðbrögð sem hún hef-
ur fengið. Þorgerður hefur meira að segja verið sökuð um að ljúga til um íbúafjölda. „Þegar ég segi að við séum aðeins 300 þúsund trúa mér fáir. Segja mér bara að hætta þessari vitleysu því við séum í raun þrjár milljónir. En það er gaman að finna að stórar sem litlar þjóðir eru að óska manni til hamingju með árangurinn. Það hafa allir tekið eftir Phelps, það tóku allir eftir Bolt og það tóku allir eftir íslenska landslið-
inu í handbolta. Og það er ekki hægt að kaupa svona auglýsingu.“
Leiðist að ferðast
Ferðatilhögun Þorgerðar var æði strembin á meðan á leikunum stóð. Hún fór til Peking og var á setning-
arathöfninni, fór aftur til Íslands og ferðaðist svo aftur hálfan hringinn í kringum hnöttinn til að sjá úrslita-
leikinn. „Mér líkar ekkert ofsalega vel að ferðast. En maður þarf stundum að gera það. Ég þurfti að fara heim en það hefði verið ámælisvert hefði yf-
irmaður íþróttamála ekki verið við-
staddur þennan merkilegasta íþrótta-
viðburð allra tíma.“
mánudagur 25. ágúst 2008 3
Fréttir
4 5 6 7 8 9 10 6 7 8 9 10 5 6 7 8 9 10 4 5 6 7 8 9 10 5 6 7 8 9 10
alexander var
gríðarlega öflugur
varnarlega og skoraði
mikilvæg mörk.
Klúðraði full mikið af
færum en gafst aldrei
upp.
Logi er villtur
leikmaður en þorir
að taka á skarið. dró
vagninn oft á
ögurstundu. Leysti
sín verkefni með
sóma.
arnór lék vel heilt
yfir mótið. Lagði
upp mikið af
mörkum og spilar
eins og hann sé
búinn að vera í
bransanum í fjölda
ára.
Ólafur hefur oft verið
betri en andleg áhrif
hans á liðið voru
ótvíræð. Fyrirliði í
orðsins fyllstu
merkingu. Vonandi
hættir hann ekki.
guðjón Valur
klikkaði úr
óvenjulega
mörgum
dauðafærum en
bætti það upp með
mörkum fyrir utan.
4 5 6 7 8 9 10
ásgeir átti sterkar
innkomur. Hefur bætt
sig gríðarlega sem
varnarmaður. Var langt
niðri eftir Kóreu leikinn
en reif sig upp og var
liðinu mikilvægur.
3 4 5 6 7 8 9
sturla lék bara í fyrsta
leiknum og stóð sig
vel. Eftir það var hann
í aukahlutverki en
engu að síður
mikilvægur hlekkur í
sterkri keðju.
„Það er skrítin tilfinning að vera búinn að vinna silfrið en vera svekktur að tapa gullinu. Maður þarf að reyna að ýta því frá sér og fagna.“
Yfirstigu vonbrigðin Íslenska landsliðið varð fyrir vonbrigðum í úrslitaleiknum en fagnaði glæsilegum árangri..
Glæsilegasta afrek
íslenskrar íþróttasögu
guðjón guðmundsson
veit sitthvað um íþróttir
og segir afrek strákanna
vera einstakt.
Alvöru stuðningsmaður Þorgerður Katrín gunnarsdóttir lét til sín taka á áhorfendapöll-unum í Peking. Hún var orðin hás eftir leik.
þriðjudagur 26. ágúst 20082
Fréttir
„Þetta er árás á fátæka fólkið í borg-
inni og ótrúlegt hversu mikið skiln-
insgleysi er hjá borgarfulltrúum yfir
neyð fólks í borginni,“ segir Ásgerð-
ur Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, sem verður
lokað á næstunni. „Þessir fulltrúar
eru þó kjörnir af þessu fólki í von
um að þeir sjái til þess að það hafi
í sig og á.“
Fjölskylduhjálpin hefur undan-
farin fimm ár starfað í þágu fátækra
og vikulega úthlutað matvælum til
þeirra sem minnst mega sín. Hún
leigir húsnæði sitt að Eskihlíð 2 til
4 af Reykjavíkurborg en hefur ekki
getað staðið í skilum með leiguna
frá nóvember 2006. Því er svo komið
að Reykjavíkurborg hótar góðgerð-
arfélaginu útburði.
Fékk aldrei styrk
Samkvæmt samningi Fjölskyldu-
hjálparinnar hefur hún leigt rúm-
lega 300 fermetra atvinnuhúsnæði
af Skipulagssjóði Reykjavíkurborg-
ar frá árinu 2003. Greiðslan var
sjötíu þúsund krónur við upphaf
leigutímabils en er nú orðin um 88
þúsund krónur á mánuði. Ásgerður
hefur undanfarin ár sótt um styrk til
velferðarsviðs borgarinnar en ávallt
verið hafnað.
Skuld Fjölskylduhjálparinnar er
nú orðin tæpar tvær og hálf milljón
króna með dráttarvöxtum og öðrum
kostnaði. Í síðustu viku barst Fjöl-
skylduhjálpinni bréf þar sem skor-
að er á hana að greiða skuldina inn-
an vikutíma. Að öðrum kosti muni
leigusali nýta rétt sinn til að rifta
samningi og krefjast út-
burðar.
Ás-
gerð-
ur
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
FJÖLSKYLDUHJÁLPINNI LOKAÐ
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Mynd dV: stefán Karlsson
ósátt við borgaryfirvöld
ásgerði jónu Flosadóttur finnst
borgaryfirvöld vanrækja fátæka.
Margir í neyð Fjölskylduhjálpin
hefur úthlutað matvælum
vikulega undanfarin fimm ár. allt
að þrjú hundruð manns hafa í
hverri viku fengið aðstoð.
Jóna harmar þessa niðurstöðu.
„Við ætlum að vera með blaða-
mannafund á föstudag þar sem
við tilkynnum formlega hvenær
við lokum og hvenær við borgum
borginni þessa skuld sem leiðir til
þess að við getum ekki haldið starf-
inu áfram.“
Borgin hirðir rekstrarféð
Um tuttugu sjálfboðaliðar starfa
hjá Fjölskylduhjálpinni. Fjöldi fyr-
irtækja sendir þeim reglulega mat-
væli sem úthlutað er til þeirra sem
þangað leita. Vikulega er hins vegar
keypt ýmis ferskvara, svo sem mjólk
og kjöt. Ásgerður Jóna segir að um
þrjú hundruð manns njóti aðstoð-
ar Fjölskylduhjálparinnar í hverri
viku. Á þessu ári veitti Alþingi þeim
einnar og hálfrar milljónar króna
styrk sem nýst hefur til rekstrar-
kostnaðar. „Reykjavíkurborg er að
hirða þetta af okkur,“ segir Ásgerð-
ur en styrkurinn verður nýttur til að
greiða skuldina við borgina.
Fjölskylduhjálpin hefur einn-
ig safnað um hálfri milljón króna í
lyfjasjóð sem notaður er til þess að
aðstoða fólk við lyfjakaup. Ásgerð-
ur Jóna segir fénu hafa verið safnað
með sölu á fatnaði í Kolaportinu en
sjóðurinn muni nú allur renna upp í
skuldina við borgina. Þá verður ekk-
ert fé eftir til að halda rekstrinum
áfram.
Beitir sér fyrir niðurfellingu
Þorleifi Gunnlaugssyni, fulltrúa
minnihlutans í velferðarráði, þykir
miður að loka þurfi Fjölskylduhjálp-
inni og ætlar að beita sér fyrir því að
skuldin við borgina verði felld niður.
Á sama tíma og velferðarráð hefur
hafnað styrkumsóknum Fjölskyldu-
hjálparinnar hefur það styrkt Hjálp-
arstarf Kirkjunnar og Mæðrastyrks-
nefnd. Þorleifur bendir á að þar sé
unnið mikið og gott starf og segist
ekki viss um að hjálparstarf af þessu
tagi sé mjög dreift. Þannig gæti það
verið til hagsbóta fyrir þá sem þjón-
ustuna þiggja að hún sé veitt undir
einu þaki.
Gátu ekki veitt lengri frest
Jórunn Frímannsdóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkurborgar,
vildi ekki tjá sig um málið þegar DV
náði tali af henni í gær. Hún vísaði
alfarið á Stellu Víðisdóttur, sviðs-
stjóra velferðarsviðs, og Kristínu
Einarsdóttur, aðstoðarsviðssjóra
framkvæmda- og eignasviðs. Krist-
ín bendir á þann langa frest sem
Fjölskylduhjálpin hefur fengið til að
greiða skuldina. Fresturinn var
veittur þar sem Ásgerður
Jóna var að sækja um
styrk til velferðar-
sviðs sem nota átti
til að greiða húsa-
leiguna. Þar sem
styrkbeiðninni
var hafnað og
ekkert bólaði
á greiðslu
sá fram-
kvæmda-
og eign-
asvið
borgarinn-
ar sér ekki
annað fært
en að fara
þessa leið.
Þær upp-
lýsingar feng-
ust hjá Reykja-
víkurborg að
Stella væri í
sumarleyfi.
Þriðjudagur 26. ágúst 2008 3
Fréttir
„Við ætlum að vera
með blaðamannafund
á föstudag þar sem við
tilkynnum formlega
hvenær við lokum.“
Hafnað á hverju ári Fjölskyldu-
hjálpin hefur sótt um styrki til
reykjavíkurborgar undanfarin ár
en ávallt verið synjað.
Í innheimtu Bréfið þar sem Fjöl-
skylduhjálpinni er hótað riftun
leigusamnings og útburði.
Harmar niðurstöðuna Þorleifur
gunnlaugsson ætlar að beita sér fyrir því
að skuld Fjölskylduhjálparinnar við
borgina verði felld niður.
vAlGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Flestir sem koma
hinga vilja koma aftur.
Fólk kemur út af hreina
loftinu og hreina vatn-
inu. Út af náttúrunni og
fólkinu.“
Þyrlur við laxá í Kjós Hjónin
skipuleggja lúxusferðir fyrir fjárhags-
lega sjálfstæða samlanda sína.
Roman Abramovitsj
rússneski auðkýfingurinn
var hér á landi um daginn.