Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Síða 56
Oft og tíðum geta fallega hönnuð heimilistæki liðið fyrir þann frum- skóg rafmagnsleiðsla sem fylgir þeim. Á það helst við tölvur og þau jaðartæki sem þeim tengjast en einnig sjónvörp því þeim fylgir oft á tíðum her annarra tækja svo sem hátalakerfi, DVD-spilari, mynd- bandstæki, afruglari, sjónvarps- flakkari, leikjatölva og netþjón- ustubúnaður, líkt og AppleTV eða Squeezebox. Intel segist hafa betrumbætt af- köst nýrrar tækni sem gerir kleift að leiða orku þráðlaust til heimil- istækja séu þau innan ákveðinnar fjarlægðar eða sett á sérstaka fleti svo sem borð. Tæknin byggist á því að nota seg- ulsvið til að leiða orkuna til áfanga- staðar síns og Intel segist í dag geta sent um 60 wött tæpan metra án þess að tapa meira en 25 prósent af orkunni. Markmiðið er að sjálfsögðu lítið sem ekkert orkutap og meiri drægni. Ein hugmynd fyrirtækisins er að nýta tæknina í sérstaka fleti, svo sem á skrifborð, sjónvarpsborð og eld- húsborð. Þá myndu rafmagnstæki sem lögð væru niður á slíkt borð samstundis fá rafmagn. Þráðlaus hleðsla fyrir fartölvur Intel ráðgerir einnig að þróa tæknina sérstaklega fyrir fartölvur sem fyrst þannig að hægt verði að hlaða þær þráðlaust. Aðeins þyrfti að koma fyrir sérstöku loftneti innan tölvunnar til að gera hana móttækilega, þannig að sennilega er þess ekki langt að bíða þar til við sjáum slíkar tölvur á boðstól- um eða búnað sem tengja má við eldri gerðir fartölva. Má gera ráð fyrir að það muni vekja fögnuð allmargra fartölvunotenda. Intel-fyrirtækið er hvað þekkt- ast fyrir framleiðslu á örgjörvum fyrir tölvur en talið er að fyrirtæk- ið sé nú að íhuga að verða einn- ig helsti framleiðandi þráðlausra lausna fyrir rafmagn og selja þá öðrum fyrirtækjum búnað sem notaður yrði í framleiðslu ýmissa heimilistækja. Upphafsmenn tækninnar sem Intel er að þróa byggir á frum- kvöðlastarfi Marin Soljacic hjá MIT en fyrir tveimur árum sýndi stofnunin fram á að hægt væri að senda rafmagn milli tveggja staða með hjálp rafsegulbylgja. palli@dv.is Bretar glata enn gögnum Innanríkisráðherra Bretlands, Jacqui Smith, upplýsti á dögunum að USB-minniskubb- ur sem innihélt gögn um 84 þúsund fanga í Englandi og Wal- es hefði glatast. Bresk stjórn- völd viðhafa strangar reglur um opinbera meðferð persónuupp- lýsinga en þrátt fyrir það hendir hvert stórslysið á fætur öðru. Er skemmst að minnast þegar bankaupplýsingar 25 milljóna manna glötuðust á seinni hluta síðasta árs. FösTUdagUr 29. ágúsT 200856 Helgarblað DV Tækni Umsjón: PáLL sVanssOn palli@dv.is CaptCha vIrkar EkkI lEngUr ruslpóstur getur orðið virkilega pirrandi þegar hann birtist í þeirri mynd að notandi á umræðuvefsíðu fer skyndilega að pósta tenglum á Viagra á nokkurra mínútna fresti. Til að koma í veg fyrir slíkar innrásir hefur undanfarin misseri verið notuð innskráningarvörn sem nefnist Captcha eða Completely automated Pu- blic Turing test to tell Computers and Humans apart. Til að greina á milli vélbún- aðar og mannveru eru notaðar óskýrar myndir af stöfum og tölum sem viðkom- andi þarf að slá inn til að hljóta samþykki við innskráningu. nú hefur komið í ljós að „spammarar” hafa fundið leið til að greina hin óljósu tákn með hugbúnaði og vélrænar innrásir á vefsíður færast sífellt í vöxt með þessum hætti. tískuvænir farsímar heimasíðan style.com hefur nú látið hanna hugbúnað í iphone sem gerir tískuunnendum kleift að fylgjast með tískusýningum tískuvikunnar í new York í símanum sínum. tískuvikan fer fram í næsta mánuði og þurfa þeir sem ekki ná sæti á helstu tískusýningunum ekki að örvænta því hægt verður að horfa á þær í gegnum iphone einungis nokkrum tímum eftir að síðasta fyrirsætan stígur af sýningarpallinum. auk þess hefur ralph lauren nú látið hanna farsímaútgáfu af netversl- un sinni meðan Chanel kynnti nýjung í iphone sem gerir notendum kleift að skoða allar haustsýningar fyrirtækisins í gegnum símann. Intel-fyrirtækið er að þróa nýja tækni sem gæti leitt til þess að innan tíðar verði hægt að losa sig við allar rafmagnsleiðslur sem tengjast tölvum eða öðrum heimilistækjum. Þráðlaust rafmagn innan tíðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.