Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2008, Blaðsíða 59
Nafn?
„Halldór Eldjárn.“
Starf?
„Nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík.“
Stíllinn þinn?
„Litríkur, en þó ekki of. Helst eitthvað sem fólki gæti
mögulega fundist hallærislegt. Það stendur til að finna
föt eins og Jókerinn klæðist.“
Allir ættu að...
„...sjá The Dark Knight! Meistaraverk þar á ferð.“
Hvað er ómissandi að eiga?
„Föt sem fá fólk til að halda að þú sért frá Svíþjóð og það
væri örugglega hentugt að eiga einhverskonar safn af
geitungum líka. Rafknúnir hljóðgervlar eiga einnig hug
minn um þessar mundir.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Ég keypti mér þriðja miðann minn á The Dark Knight
og þar áður keypti ég mér bol í Nakta apanum, allir
þangað!“
Hvert fórst þú síðast í ferðalag og í hvaða tilgangi?
„Hummmm, ætli það hafi ekki bara verið Siglufjörður á
Þjóðlagahátíð að spila með Ungfóníunni... (Fyrir þá sem
ekki vita þá er Þjóðlagahátíð skilgreiningin á því að vera
svalur.)“
Uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„Allt sem ég hef keypt mér í Nakta apanum og kannski
rugl-fjólubláu og gulu buxurnar mínar.“
Hvenær hefur þú það best?
„Þegar ég næ að semja eitthvað sem ég er ánægður með
og þegar ég kemst í góðra vina hóp.“
Ertu með einhver áform fyrir næstu daga?
„Já! Sykur spilar í dag í Norræna húsinu! Svo er eiginlega
ekkert planað nema bara jól í desember.“
Lumarðu á góðu tískuheilræði?
„Bara, vertu þú sjálf/ur og óhrædd/ur við að klæða þig í
óviðeigandi föt.“
DV Tíska föstudagur 29. ágúst 2008 59
Halldór
Eldjárn
Persónan
NotUm EbAy fyrir þær sem halda mikið
upp á skvísurnar í sex and the City og
glæsilegan fatastíl þeirra ættu að nota
ebay til að finna skemmtilega hluti sem
minna á þær stöllur. sem dæmi má finna
mikið úrval Manolo Blahnik skóm á ebay
en Blahnik var einmitt uppáhalds skó-
hönnuðuð sjálfrar Carrie Bradshaw í gegn-
um þættina.
REYKJAVÍK
Ið
n
ó
Fr
ík
Ir
k
ja
n
H
á
s
k
ó
la
b
íó
Ið
n
ó
Fr
ík
Ir
k
ja
n
O
r
g
a
n
Fr
ík
Ir
k
ja
n
O
r
g
a
n
H
á
s
k
ó
la
b
íó
n
a
s
a
g
la
u
m
b
a
r
n
O
r
r
æ
n
a
H
ú
s
Ið
V
O
n
a
r
s
a
lu
r
I
n
g
ó
lF
s
n
a
u
s
t
Iðnó FríkIrkjan Háskólabíó Iðnó FríkIrkjan Organ
nasa glaumbar Háskólabíó Iðnó
PO
RT
h
ön
nu
n
JAZZHÁTÍÐ 2008
Laugardagur 30. ágúst •
• KL 21 Háskólabíó - Ed Thigpen & Scantet
RAUÐI JAZZPASSINN GILDIR Kr3000/2000
Trommuleikur Ed Thigpen í tríói Oscars Petersons er ásamt
bassaleik Ray Brown talinn hafa núllstillt píanótríóið sem
listform. Þessi ótrúlegi músíkant hefur verið kallaður Mr
Brushes og Mr Taste. Hvort sem hann sveiflar burstanum eða
kjuðanum er smekkvísin ávallt í fyrirrúmi. Ef eitthvað er til
sem verðskuldar að vera kallað “Góður jazz” þá er það komið
hér í þessum frábæra Scantet Ed Thigpen: Oliver Antunes á
píanó, Jesper Bodilsen á bassa, Thomas Franck á saxófón og
Anders Bergcrantz á trompet.
w
w
w.
m
idi
.is