Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Qupperneq 8
föstudagur 19. desember 20088 Fréttir
Landsbankinn borgaði flug og gistingu á fimm stjörnu hóteli fyrir um það bil fjörutíu gesti frá Evrópu til
Hong Kong vegna opnunarhátíðar bankans. Meðal þeirra sem nutu munaðarins voru Kjartan Gunnars-
son, Elín Sigfúsdóttir, Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristjánsson og Ársæll Hafsteinsson, en hann er í
skilanefnd Landsbankans. Áætlaður kostnaður við gistingu og flug er rúmar tuttugu og fjórar milljónir.
Atli MÁr GylfASon
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Sukk og Svínarí
í Hong kong
DV greindi frá því í síðustu viku að
Landsbankinn hefði flogið með ís-
klump úr Vatnajökli til Hong Kong
vegna opnunarteitis útibús bankans
þar í landi. Björn Ársæll Pétursson,
forstöðumaður útibúsins, segir að
honum hafi verið sagt að halda opn-
unarteiti og að hann hafi gert það.
Samkvæmt heimildarmanni DV ein-
kenndist rekstur skrifstofunnar af
miklu bruðli en því var forstöðumað-
urinn ósammála. „Það var ekkert svo
stórt,“ sagði Björn Ársæll spurður um
þessa veglegu veislu sem var haldin
ytra.
Björn Ársæll fékk vænan starfs-
lokasamning og nýtt starf hjá hinum
nýja Landsbanka þar sem Elín Sig-
fúsdóttir, samstarfsmaður hans og
gestur í veislunni, er bankastjóri. Elín
flaug til Hong Kong á fyrsta farrými
og gisti á fimm stjörnu hóteli í svo-
kallaðri „Deluxe Peak View“-svítu.
DV komst yfir gestalista Lands-
bankans en þar eru nokkrir sem
starfa enn hjá bankanum sem nú er
í ríkiseigu.
lúxusflug og gisting
Gestirnir í opnunarteiti Lands-
bankans, sem Björn Ársæll var beð-
inn um að halda að eigin sögn, gistu á
einu af flottustu hótelum Hong Kong
en það er hótelið Four Seasons. Sam-
kvæmt heimildum DV gistu flestall-
ir í svítum sem ganga undir nafninu
„Deluxe Peak View.“ Nokkrir fengu
þó enn stærri svítur en þeir voru Stu-
art Rose, forstjóri Marks and Spenc-
er, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi
formaður bankaráðs, Sigurjón Þ.
Árnason og Halldór J. Kristjánsson,
fyrrverandi bankastjórar Lands-
bankans, Vemund Norvik, kaup-
sýslumaður og Claude Finckenberg,
viðskiptajöfur og verðbréfamiðlari.
Fyrrverandi eigandi Landsbankans,
Björgólfur Guðmundsson, átti pant-
að herbergi en afbókaði og lét ekki
sjá sig í veislunni.
Veislan fór fram á skrifstofu
Landsbankans í Hong Kong en í hana
voru fengnir asískir matreiðslumenn
sem heilsteiktu svín. Það kom í hlut
Sigurjóns og Björns Ársæls að kvið-
rista það.
Skilanefndarmaður í veislunni
Þegar farið er yfir gestalistann og
þá sem gistu á fimm stjörnu hóteli og
flugu á fyrsta farrými alla leið kemur
í ljós að einn af þeim sem átu svín í
boði Landsbankans starfar nú í skila-
nefnd bankans. Sá heitir Ársæll Haf-
steinsson en hann var fundinn sekur
af Fjármálaeftirlitinu, árið 2003, fyr-
ir að hafa rofið bankaleynd og brotið
lög um góða viðskiptahætti.
Ársæll hefur það verkefni, eins
og aðrar skilanefndir, að reka Lands-
bankann. Árið 2003 var hann ráð-
inn til bankans sem framkvæmda-
stjóri lögfræðisviðs og útlánaeftirlits
en undir það falla hinir umdeildu
Icesave-reikningar. Þá nýtti Ársæll
Hafsteinsson sér kaupréttarsamning
í mars í fyrra en þá keypti hann sex
milljónir hluta í Landsbankanum
á genginu 3,12 en þá var markaðs-
gengi bankans 31,8.
Vill ekki segja
Atli Atlason, starfsmannastjóri
Landsbankans, var með í för til Hong
Kong en hann var einn af þeim sem
gistu í „ódýrari“ svítunni eða „Deluxe
Peak View“. Aðspurður hvaða veislu-
gestir Landsbankans störfuðu enn
hjá bankanum vildi hann ekkert
segja.
Björn Ársæll, forstöðumaður úti-
búsins, sagði í samtali við DV í síð-
ustu viku að hann hefði gætt fyllsta
aðhalds í rekstri skrifstofunnar en
meðal þess sem blaðamaður DV bar
undir hann var skíðaferð til Sapporo
í Japan. Björn Ársæll hafði þetta að
segja um ferðina: „Við vorum á lána-
ráðstefnu, það fór einn starfsmaður
með mér og einn samstarfsmaður
minn. Við fórum þaðan upp á skíða-
svæði sem ég þekkti en það er svip-
að stórt og Hlíðarfjall á Akureyri. Þar
leigðum við okkur skíði og borguð-
um fyrir það og skíðapassana sjálf.“
Heimildir DV segja hins vegar
að engin lánaráðstefna hafi verið í
Sapporo í febrúar á þessu ári.
Blaðamaður DV bar einnig und-
ir Björn Ársæl ferð á Formúluna
sem hann fór
með tveimur við-
skiptafélögum
sínum. Lands-
bankinn borg-
aði brúsann
en miðarnir
voru í þriðju
beygju
að sögn
Björns.
„Mið-
arnir voru
í þriðju
beygju sem
teljast ekki
fín sæti. Við
sátum í fjöru-
tíu stiga hita og
svitnuðum og svitn-
uðum. Mér finnst ég ekki
hafa orðið sekur um bruðl
eða einhverja ofneyslu á
kostnað bankans,“ sagði
Björn Ársæll spurður um
formúluna.
Samkvæmt heimild-
um DV kostuðu miðarnir
þrír eina milljón króna.
Árni blöndal *
birgir guðmundsson
guðmundur sigurjónsson
marlon Kelly
axel axelsson
Ársæll Hafsteinsson
bjarni Þórður bjarnason
björn sigurðsson
gunnar Viðar
Kristján einarsson
elín sigfúsdóttir (mrs)
fabío Chino
Quaradeghini
Jose Hernandez
garðar Ólafsson
guðjón sævarsson
gunnar thoroddsen
Helgi Ófeigsson
Hinrik örn bjarnason
Jón Þór gunnarsson
arnar Jónsson
marínó sigurjónsson
atli atlason
stefan H stefansson &
Jón Árnason
björn rúnar guðmundsson
steinar Kristjánsson
steingrímur Helgason
steinþór baldursson
steinþór gunnarsson
tryggvi tryggvason
Kinga broel Plater
stuart rose
Kjartan gunnarsson
sigurjón Þ. Árnason
Halldór J. Kristjánsson
Claude finckenberg *
Vemund Norvik
Ívar gudjonsson
geStaliSti landSbankanS
Í skilanefnd landsbankans
einn af þeim sem gistu á fimm
stjörnu hóteli og flaug á fyrsta
farrými alla leið í boði Landsbankans
er Ársæll Hafsteinsson en hann
starfar nú í skilanefnd bankans.
Kviðrist í veislunni
sigurjón og björn
Ársæll kviðristu svínið
að viðstöddu fjölmenni.
g