Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Qupperneq 23
föstudagur 19. desember 2008 23Fókus Hvað er að GERAST? föstudagur n Heimilisköttur Dillon á Laugaveginum rokkdrottningin andrea Jóns ætlar að fara sig frá Laugaveginum yfir á dillon sportbar í Hafnafirðinum í kvöld. Það er seventís þema á dillon þessa helgina svo andrea kemur til með að spila alræmda seventís slagara og má alltaf biðja um óskalög hjá andreu. n Borgardætur á Rosenberg borgardætur munu halda ljúfa jólatónleika á rosenberg klukkan 21:00 á föstudags- kvöldið. n Aðventurokktónleikar á Grand Rokk föstudagskvöldið 19. desember mun hljómsveitin múgsefjun fagna aðventunni með stórtónleikum á grand rokk við smiðjustíg. Þetta er í fyrsta skiptið í töluverðan tíma sem þeir piltar skipu- leggja tónleika þar sem þeir eru sjálfir í aðalhlutverki. Það má segja að þetta sé einhvers konar uppskeruhátíð hljómsveit- arinnar þar sem ekki náðist að fagna útkomu plötunnar skiptar skoðanir sem kom út fyrr á árinu. aðgangseyrir er 1.000 krónur. n FM Belfast á Nasa 19. desember ætlar Háskólinn að halda jólaball með fm belfast á skemmtistaðn- um Nasa. Húsið opnað kl. 23 og er miðaverð 1.500 krónur. n Sálin á Players sálin hans Jóns míns mun halda halda glæsilegt ball og halda uppi stuðinu fram á nótt á Players í Kópavogi á föstudags- kvöldið. tónleikarnir hefjast á miðnætti. laugar- dagur n Jólablús á Rúbín Það verður sannkölluð jólastemning á rúbín þetta kvöldið. Vinir dóra, ragnheið- ur gröndal og davíð Þór Jónsson sameinast í allsherjar jólablúsgjörning. miðaverð er 2.000 krónur en 3.500 krónur með mat. Nánari upplýsingar á rubin.is n Jeff Who? á Prikinu sykursætur drengirnir í Jeff Who? trylla lýðinn með ókeypis tónleikum á Prikinu í kvöld. tónleikarnir hefjast klukkan 22 og verður jólaglögg í boði. Á miðnætti tekur síðan dj danni deluxxx við og skemmtir fólki fram eftir nóttu. n Páll Óskar á NASA Páll Óskar Hjálmtýsson, poppstjara Íslendinga hressir bætir og kætir á háskólaballi á Nasa í kvöld. miðaverð er 2.000 krónur og aldurstakmark 20 ár. aðdáendur Palla mega ekki láta þetta framhjá sér fara. n Dj Stef á Hverfisbarnum Það verður hippidí hopp-stemning á Hverfisbarnum. dj gunni stef er eins og hvert annað húsgagnið inn á Hverfisbarn- um. dj stef veit hvað hann er að gera og veldur engum vonbrigðum. BARA GAMAN eFtiR GuðRúNu HeLGADÓttuR ein af þessum perlum guðrúnar um venjulegt fólk við venjulegar aðstæður. m æ li r m eð ... FRoSt- RÓSiR syngja eins og englar. ÞJÓFABoRG eFtiR DAviD BeNioFF gáskinn og háskinn eru í helstu hlutverkum í spennandi sögu úr seinni heimsstyrjöld. veLkoMiN tiL ÍSLANDS eFtiR RAGN- HiLDi SveRRiS- DÓttuR bók sem gæti bjargað mannslífum. DiSkASAFN- ið HéR eR DRAuMuR- iNN stendur sannarlega undir nafni. tHe DAy tHe eARtH StooD StiLL frekar misheppnuð endurgerð. hann sé öðruvísi en flestir ímyndi sér. „Þetta er einhvers konar öfg- averuleiki. Flestir þeirra sem eiga svona grip virðast mynda tilfinn- ingatengsl við dúkkurnar upp að vissu marki. Þeir líta svo á að hún sé einhvers staðar mitt á milli þessa að vera hlutur og manneskja sem er auðvitað stórundarlegt.“ Nefnir Guðrún sem dæmi að menn eigi margir hverjir í samræð- um við dúkkurnar og komi fram við þær eins og lifandi veru. „Þau sitja kannski hlið við hlið og horfa á sjónvarpið og svona.“ Guðrún komst einnig að því að fólkið sem býr til dúkkurnar og starfar í þessum óvanalega iðnaði er venjulegt fólk. „Það er bara fólk sem er í vinnunni sinni. Mér skilst að maðurinn sem stofnaði fyrirtækið Real Dolls í Kaliforníu hafi verið ný- útskrifaður úr myndlistaskóla þegar hann hóf framleiðsluna.“ Að kaupa sér dúkku af þessu tagi er mikil fjárfesting en hún get- ur kostað í kringum eina milljón króna eða líklega nær tveimur eftir gengisfallið. „Þetta er alveg fokdýrt. Þetta er allt handunnið, mjög vand- að og í raun algjör listaverk. Ég væri mjög til í að hitta svona grip,“ segir Guðrún sem aðeins hefur hitt fyr- ir silikondúkkur á Víkingasafninu í Perlunni. Slegist um bókina Eins og hefur verið greint frá í fjöl- miðlum slógust þýskir útgefendur nýverið um Skaparann. „Það voru margir útgefendur búnir að lýsa yfir áhuga á bókinni en svo fóru þrjú forlög að yfirbjóða hvert annað. Það endaði svo í góðri summu sem var mjög ánægjulegt og kom skemmti- lega á óvart. Það er líka mikilvægt að sjá að fagurbókmenntir geti brotist út fyrir landsteinana. Það hafa að- allega verið glæpasögur undanfar- in ár.“ Guðrún á nokkuð sérstaka sögu þegar kemur að þýðingu verka hennar. „Meðan flestar þýðingar héðan byrja á Norðurlöndunum hef ég bara komið út á Ítalíu og á Frakk- landi.“ Nefnir Guðrún sem dæmi að bókin Yosoy hafi gengið vel á Ítalíu. „Það hefur svo sem ekki farið mik- ið fyrir því enda lítið forlag og hefur litla burði til þess að þenja sig.“ Guðrún hefur trú á því að Skap- arinn muni ná lengra en fyrri bæk- ur hennar þegar kemur að þýðing- um. „Ég gæti trúað því vegna þess að hún er mjög hentug til þýðingar. Þrátt fyrir greinileg íslensk kennileiti er þetta meira svona nútímamýta heldur en afmörkuð samfélags- ádeilda á eitthvað sem er að gerast hérna hjá okkur. Hún fjallar meira um mannlegan veruleika.“ Guðrún segir auðvelt að endur- segja sögu Skaparans og að það sé ekki síst ástæðan fyrir samningun- um í Þýskalandi. „Yosoy til dæmis var mun erfiðara selja erlendum út- gefendum söguna með því að end- ursegja hana þó svo að hún hafi ekki verið síðri. Þar var sagan bara flókn- ari og aðalpersónurnar fleiri.“ Dúkkufetish og falinn harmleikur Í sumar seldi Guðrún Pegasus kvik- myndaréttinn að Yosoy. „Mér þykir ekki ólíklegt að Skaparinn verði að kvikmynd. Ég held að það sé auðvelt að skrifa handrit eftir henni þar sem sagan er svo afmörkuð.“ Þá telur Guðrún dúkkurnar líka vera gott viðfangsefni í kvikmynd. „Það er eitthvað ótrúlega heillandi við þær. Það er eitthvað svo heill- andi við nokkuð sem er næstum því manneskja en er það samt ekki. Ég held að það leynist pínulítið dúkku- blæti í okkur öllum en eftir því sem þær eru raunverulegri því óhugnan- legri verða þær.“ Að mati Guðrúnar er stutt í óhugnað þegar kemur að dúkk- um. „Þetta er svo sérstakur heimur. Þó yfirborð hans sé kómískt kemur maður mjög fljótt niður á hyldýpi mannlegs harmleiks.“ Byrjuð á næstu bók Guðrún er komin nokkuð áleiðis með næstu bók þótt hún hafi ekki unnið í henni um nokkurt skeið núna. „Ég er ennþá að koma Skap- aranum frá mér. Er að lesa upp úr henni og svona og ég vil klára það áður en ég ræðst í nýju bókina af fullum krafti.“ Þrátt fyrir það er Guðrún komin með í kringum 40 blaðsíður en hún segir einmitt 40 fyrstu blaðsíðurn- ar í hverri bók vera þær erfiðustu. „Miðað við hvað ég er búin að vinna mikla hugmyndavinnu finnst mér líklegt að bókin komi út árið 2010,“ en Guðrún ætlar að fara á fullt í vinnslu hennar strax eftir jól. asgeir@dv.is Bókaforlagið Bjartur hefur náð tveimur samningum við þýska út- gefendur í vikunni um útgáfu verka eftir höfunda forlagsins. Þetta eru Jón Hallur Stefánsson og Sjón. Þýski útgáfumógúllinn Fischer Verlag tryggði sér í fyrradag Rökk- urbýsnir eftir Sjón, sama dag og bókin kláraðist af lager Bjarts. Fis- cher hreppti bók hans Skugga- Baldur á æsispennandi uppboði þarlendra forlaga fyrir tveimur árum en nú vilja þeir greiða enn hærri upphæð fyrir nýjustu skáld- sögu Sjóns. Rökkurbýsnir komu út nú í nóvember og hafa hlotið frá- bærar viðtökur. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og dómar hafa verið á eina lund. Bókin byggist á lífi og hugarheimi sautjándu aldar mannsins Jónasar lærða Pálmasonar, rithöfundar og myndasmiðs, sem var dæmdur fyr- ir útbreiðslu galdra og sendur í út- legð í Gullbjarnarey. Í febrúar kemur glæpasagan Vargurinn eftir Jón Hall út í Þýska- landi hjá útgefandanum Ullstein Buchverlag. Vargurinn kom út hér á landi í október en afar sjaldgæft er að íslensk skáldsaga sé gefin nán- ast samtímis út heima og erlendis. Í fljótu bragði man starfslið Bjarts eftir tveimur dæmum: Árið 1960 sendi Halldór Laxness frá sér Par- adísarheimt samtímis í Svíþjóð og á Íslandi og haustið 2006 kom Ald- ingarður Ólafs Jóhanns Ólafsson- ar út á Íslandi en í ársbyrjun 2007 í Bandaríkjunum. Fyrsta bók Jóns Halls, Krosstré, kom út í Þýska- landi fyrir tveimur árum og seld- ist vel. Vargurinn segir frá brennu- vargi sem gengur laus á Seyðisfirði. Valdimar Eggertsson rannsóknar- lögreglumaður rannsakar málið. bjartshöfundar herja á þýska Harmleikur undir silikoninu Guðrún eva Mínervudóttir er byrjuð að vinna að næstu bók. Silíkondúkkur eru viðfangsefni í skaparanum. Rökkurbýsnir og Vargurinn seldar til Þýskalands: Jón Hallur Stefánsson Vargur höfundarins gerir víðreist. MyND GuNNAR GuNNARSSoN m æ li r ek ki m eð ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.