Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 30
föstudagur 19. desember 200830 Helgarblað
Frumleg og skemmtileg jólagjöf er yfirleitt eftirminnilegri en sú með feitum verðmiða. Fólk tekur upp á
ýmsu í kringum jólin til að gleðja eða hrekkja sína nánustu. DV tók tal af nokkrum þjóðþekktum einstakl-
ingum sem sögðu frá sínum frumlegu jólagjöfum. Þar leyndist ýmislegt í jólapökkunum svo sem notuð nær-
föt, vúdú-dúkka, vélmenni og bónorð.
ruml gasta jólagjöFin
Vúdú-dúkka Frá Vinkonu
Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari
„Ég hef nú náð að dúndra frá mér fullt af frumlegum
jólagjöfum. Ég hef nokkrum sinnum gengið svo langt í
einhverju fullkomnu stjórnleysi að gefa einhverjum
kærustum í útlöndum flugmiða til Íslands. Þar sem ég er
yngstur af sjö systkinum er oft svolítið mikið vesen að
finna gjafir handa hverjum og einum svo ég finn alltaf
bara eitthvað sniðugt á línuna. ein jólin gaf ég þeim öllum
orkustein sem er bleikur á litinn og er kallaður kærleiks-
steinninn. Ég held að þessi orkusteinn hafi alveg skilað sér
því samskipti okkar systkinanna hafa verið alveg frábær í
mörg ár.
frumlegasta jólagjöf sem ég hef fengið er frá henni
brynhildi vinkonu minni. Hún gaf mér einu sinni forláta,
ekta vúdú-dúkku með pinnum og öllu. Ég á hana ennþá
en hef aldrei notað hana. Það hefur enginn farið það
mikið í taugarnar á mér ennþá að ég hafi þurft að grípa í
brúðuna. svo hefur alltaf glatt mig mikið að fá súper 8mm
vídeóspólur í jólagjöf en ég safna þeim og það er gjöf sem
lýsir mér svo vel.“
d d
d
d
d
dd
d
skyld‘það Vera Vélmenni?
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir söngkona
„Þegar ég var níu ára fékk ég gjöf sem ég hélt að væri
frumlegasta jólagjöfin af þeim öllum en var það svo
ekki. Ég suðaði endalaust í foreldrum mínum þegar
ég var barn um að fá vísbendingar um það hvernig
gjöf þetta væri. eftir nokkrar vísbendingar um að
þetta væri grátt, hreyfði sig og væri jafnstórt og ég
var ég alveg viss um að þetta væri vélmenni. Þegar
ég opnaði pakkann kom hins vegar í ljós að þetta
voru grá skíði en ekki vélmenni.
frumlegasta jólagjöfin sem ég hef gefið verður að
teljast kanína sem ég saumaði handa Árna,
kærastanum mínum. Það hafði einhvernveginn
dagað uppi hjá okkur prjónuð peysa sem ég reyndi
ítrekað að nota en hún var hreinlega of ljót til að
klæðast henni. svo ég saumaði úr henni kanínu með
vígtennur sem er nett hryllingskanína. Hún er í miklu
uppáhaldi hjá Árna og situr uppi á hillu hjá okkur.“
taska úr hjólbarðagúmmíi
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi
„frumlegasta jólagjöfin sem ég hef gefið er gjöf sem
ég bjó til fyrir mömmu. Keypti bók með auðum
blaðsíðum þar sem ég setti mynd af okkur framan á og
á hverja blaðsíðu byrjaði setning sem var: takk fyrir
að...svo komu alls kyns atvik úr æskunni minni. Þessi
jólagjöf kostaði ekki neitt og er enn á besta stað í
stofunni hennar mömmu.
Ég fékk svo einu sinni frá bróður mínum sem býr í New
York hrikalega flotta handtösku sem hann keypti í end-
urvinnslubúð. taskan var sem sagt búin til úr
hjólbarðagúmmíi. Það er nokkuð frumleg gjöf enda
gaman er að spá í hver uppruninn er.“
d
d