Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Page 31
föstudagur 19. desember 2008 31Helgarblað
Frumlegasta jólagjöFin
Bón matgæðings
Stefán Hilmarsson, söngvari
„fyrir um það bil áratug hafði ég verið að skjóta
á konuna fyrir að vera ekki nógu dugleg að
baka brauð. Ástæðan er sú að ég er mikill
matmaður og finnst heimabakað brauð mjög
gott. Hún þaggaði niður í mér með jólagjöfinni
það árið, sem var forláta brauðbakstursvél. Og
ég notaði vélina óspart næstu árin.“
gaF systrum sínum
kynningareintök
Eiríkur Jónsson
„Þegar ég var átta ára kom út bókin Litli læknissonurinn. öllum þótti
bersýnilega vel við hæfi að gefa mér bókina í jólagjöf þar sem pabbi
minn var læknir og afabróðir minn og ömmubróðir líka. Ég fékk
sautján stykki þau jólin. Átti kannski að vera frumlegt en átta ára
dreng þótti það ekki. sjálfur var ég hins vegar vanur að gefa systrum
mínum geisladiska árin sem ég vann í útvarpi. fékk þá alltaf gefins
fjöldann allan af diskum sem merktir voru kynningareintök. að
sjálfsögðu kynnti ég diskana í úvarpinu en pakkaði þeim svo inn og
gaf systrunum. Þær voru aldrei almennilega sáttar við að fá þessi
kynningareintök. Héldu að ég væri svona nískur. mér þótti þetta hins
vegar flottar gjafir; nokkurs konar „collectors item“, stimplað í bak og
fyrir sem kynningareintök. Þær hafa enn orð á þessu og ég held að
mér hafi ekki enn verið fyrirgefið.“
Fékk gjöF Frá vini
mínum „vísa“
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona
„Ég hef svo oft haldið jólin erlendis og þar af leiðandi þurft að vera skipulögð og
snemma í innkaupunum sem hafa ekki verið neitt sérstaklega frumleg fram til
þessa. Hins vegar stendur til að gefa eina grín gjöf þetta árið, bara til að sjá svipinn
á viðkomandi. Það verður skemmtilegt!
Ég á hins vegar ansi skemmtilega og skýra minningu um ein jólin þegar ég var
svolítið yngri og nýkomin með Visakort og farin að bera ábyrgð á mínum málum.
Ég var nýbúin að fá fyrstu reikningana mína og var í hálfgerðu sjokki. mamma tók
sig til og gaf mér litla peningagjöf frá vini mínum „Vísa“ mér til mikillar gleði. Við
höfum grínast mikið með þetta síðan.“
Bónorðið til konunnar
Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingar
„frumlegasta gjöf sem ég hef gefið og jafnframt sú
besta er bónorð mitt til Ágústu, konu minnar. Það
hefur gefist vel. Það eru nákvæmlega tuttugu ár
síðan ég bar það upp á aðfangadagskvöld.
frumlegasta gjöfin er ef ég myndi ekki fá neitt þessi
jólin nema ást og vináttu. Það er eina gjöfin sem ég
óska eftir núna, enda sú dýrmætasa og frumlegasta
um leið. Það er það sem fólk þarf á halda um þessar
mundir.“
gjaFirnar Frá
syninum Bestar
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
„frumlegasta jólagjöf sem ég hef gefið er þegar ég
lét sauma sængurver handa bóndanum með
allskyns skilaboðum sem fengu hjartað til að slá.
Þegar hann skreið upp í á aðfangadagskvöldi
blöstu við honum þessi skilaboð frá mér. mér
fannst þetta skemmtileg gjöf. en annars er
frumlegasta og fallegasta gjöfin sem ég hef fengið
búin til af stráknum mínum í skólanum. Og svo
virðist sem að með hverju árinu sem líður verða
gjafirnar tilfinningalegri. Þessar gjafir koma ekki í
stað eins veraldslegs, allir demantarnir í heiminum
gætu ekki toppað gjafirnar frá syni mínum.“
saumaði jólapúða Fyrir
Börnin
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingkona Sjálfstæðis-
flokks
„Ég er nú ekki mjög frumleg í jólagjöfunum. Ég gef
eiginlega alltaf bækur. en einu sinni var ég
ægilega dugleg og saumaði jólapúða handa
börnunum í fjölskyldunni, einhver tíu, fimmtán
stykki. eftir það hefur það víst verið fastur partur af
jólunum hjá mörgum krakkanna að draga fram
jólapúðann. af þeim gjöfum sem ég hef fengið
man ég ekki eftir neinu sérstaklega frumlegu því
ég bið alltaf um bækur.“
smíðaði skartgrip
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir,
leikkona
„mamma gaf mér frábæra gjöf fyrir
nokkrum árum. Hún bjó til svona litla
öskju og setti alls konar orkusteina í hana
sem pössuðu fyrir mig og mitt stjörnu-
merki. svo fór góður partur af aðfanga-
dagskvöldi í að lesa um þá og spá í fyrir
mig og systur mína. Það var ótrúlega
skemmtileg gjöf.
Það frumlegasta sem ég hef gefið held ég
að séu bara silfurhringar sem ég smíðaði
á silfursmíðanámskeiði og gaf svo
vinkonum mínum og systur minni. Þær
voru rosa ánægðar og alltaf þegar ég sé
þær með hringana verð ég rosalega kát.
Það er náttúrulega besta sönnun fyrir
manni að þær séu ánægðar í alvörunni en
ekki bara vera kurteisar.“
notuð nærFöt og ýsuFlak
Jón Gnarr, leikari
„Þegar ég var að vinna á Kópavogshæli gaf ég öllum
mínum nánustu notuð nærföt sem átti að fara að henda
á hælinu. Þau voru alveg hrein en þau voru svolítið illa
farin. með þessu sló ég tvær flugur í einu, gaf fyndna gjöf
að mínu mati og sparaði pening. Þessu var hins vegar
mjög illa tekið af flestum. Ég gaf líka einu sinni ýsuflak,
gleymdi reyndar að hugsa um lyktina sem því fylgdi
þegar það fór að úldna. sú gjöf olli mikilli óánægju.
sjálfur hef ég nú aldrei fengið neitt sérstaklega frumlegar
jólagjafir. bara þessa leiðinlegu mjúku pakka sem ég
kann reyndar örlítið betur að meta í dag, enda orðinn
þetta þroskaður maður.“
d
d
d
d
d
d
d
d
d
d
d