Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Síða 37
föstudagur 19. desember 2008 37Helgarblað
Hann bað mig fara heim og jafna
mig á þessu og koma svo aftur í skól-
ann eftir einn eða tvo daga. Og það
gerði ég en einsog nærri má geta varð
þetta ekki til að bæta samkomulag
mitt og kennarans. Þetta hafði hins
vegar engin eftirmál í för með sér
fyrir kennarann enda hefur hann ef-
laust lýst atburðum öðruvísi en ég.
[...]
Allt kemur fyrir ekki
Enn fékk Ásta slæmar fréttir að lokinni
lyfjameðferðinni. Sneiðmyndir sýndu
að meinvörpin í lifrinni héldu áfram
að vaxa en sem betur fer var ekki að
sjá að krabbinn væri búinn að dreifa
sér víðar.
Nú þurfti enn að endurmeta stöð-
una; Ásta var búin að prófa öll ný
krabbameinslyf sem þá voru á mark-
aðnum hér á landi og því blasti ekki
annað við en að taka upp meðferð
með gamalreyndum lyfjum. Ástu leist
ekkert of vel á það og batt nú enn meiri
vonir við meðferð í New York; það var
í rauninni síðasta hálmstrá hennar í
þessari langdregnu baráttu.
Og í byrjun apríl bárust þær gleði-
fréttir að læknarnir í New York hefðu
samþykkt að taka Ástu til meðferð-
ar um miðjan mánuðinn. Diddi kær-
asti hennar ætlaði með henni vestur
um haf ásamt Daða bróður hennar
sem ætlaði bæði að vera henni styrk-
ur og stuðningur, en ekki síður að vera
nokkurs konar túlkur fyrir hana; lækn-
isfræðimenntun hans gerði honum
kleift að útskýra fyrir Ástu meðferðina
sem hún átti að gangast undir.
Þetta voru góðar fréttir sem sann-
arlega voru ekki á hverju strái þessa
dagana því um líkt leyti fór Ásta í aðra
sneiðmyndatöku sem sýndi að stærsta
meinvarpið á lifrinni hafði stækkað
um tæpan sentimetra á einni viku. Það
var því ekki eftir neinu að bíða nema
læknunum í New York.
Trúlofun í New York
En enn varð nokkur bið á að Ásta kæm-
ist vestur um haf; bæði fékk hún al-
varlega sýkingu í gallblöðru, sem hélt
henni inni á sjúkrahúsi í rúma viku, og
auk þess gekk illa að fá endanleg svör
frá læknunum í New York um það hve-
nær þeir vildu fá Ástu þangað.
Loks bárust svör og ákveðið var
að Ásta færi út 6. maí. En sökum þess
hversu gallblöðrusýkingin hafði tekið á
líkama Ástu ofan á annað álag, var tal-
ið ólíklegt að Ásta færi í beina meðferð
til að byrja með þegar út kæmi; ákvörð-
un um það yrði tekin í ljósi þeirra nið-
urstaðna sem ýtarlegar rannsóknir og
myndatökur sýndu.
Ferðin út gekk vel og daginn eftir
fór Ásta á Sloan Kettering Center þar
sem teknar voru af henni blóðprufur
og hún fór í nákvæma myndskönnun
á kviðarholi og lungum. Daði var með
henni gegnum allt ferlið og var það
ekki lítill stuðningur fyrir Ástu að hafa
hann þarna hjá sér.
Síðan tók við tveggja daga erfið bið
eftir niðurstöðum en tímann nýtti Ásta
meðal annars til að trúlofast Didda
sínum og settu þau upp hringana á
hinu fræga Rainbow Room veitinga-
húsi sem er á 86. hæð í Rockefeller
Center byggingunni.
Og þar uppi með útsýni yfir allan
neðri hluta Manhattan og út til hafs,
áttu þau stórkostlega gleðistund mitt í
allri óvissunni um framtíðina.
Dómurinn fellur
Óhætt er að segja að niðurstöðurn-
ar frá Sloan Kettering Center hafi ver-
ið hrikalegt áfall, þó svo að vitað væri
að brugðið gæti til beggja vona. Mynd-
irnar leiddu í ljós að meinvörpin á lifr-
inni voru mun útbreiddari en áður var
talið; 60 prósent lifrarinnar voru und-
irlögð og það sem verra var; krabbinn
var búinn að dreifa sér víðar um líkam-
ann.
Og dómur læknanna var harður og
miskunnarlaus; þeir gætu ekkert fyrir
Ástu gert, hvorki með lyfjagjöf eða að-
gerð; sjúkdómur hennar væri ólækn-
andi. Og þeir sögðu henni hreinskiln-
islega að hún ætti bara nokkra mánuði
eftir ólifaða í mesta lagi.
Það þarf ekki að lýsa því hversu
erfitt var að taka við þessum fréttum.
Og vonbrigði Ástu og okkar allra voru
hræðilega sár. En svo ótrúlegt sem það
nú var, að þá var Ásta sest við að blogga
um leið og hún kom heim til Íslands
aftur, yfirveguð og ákveðin sem fyrr í
að sigrast á meininu. Hún var ekki að
fara að kveðja þetta líf. Hún hélt dauða-
haldi í þá trú að hún ætti enn von.
Engu að síður horfði hún raunsæ-
um augum á hlutina og sýndi það sál-
arþrek að setjast niður með börnun-
um sínum til að undirbúa þau undir
það versta.
Heilsa Ástu var nokkuð góð fyrstu
dagana eftir að hún kom heim frá New
York en síðan hrakaði henni; lifrin fór
að gefa sig vegna meinvarpanna og
23. maí var ákveðið í samráði við hana
sjálfa að leggja hana inn á Líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Þar fékk hún og við aðstandend-
ur hennar bestu umönnun og viðmót
sem völ er á og á ég ekki nógu sterk orð
til að tjá aðdáun mína og þakklæti til
þessa frábæra fólks sem þarna starfar.
Sama er að segja um starfsfólk krabba-
meinsdeildar Landsspítalans, deild
11E þar sem Ásta hafði verið af og til
allt frá því krabbameinið uppgötvað-
ist.
Ásta tók þessum örlögum sínum
af stakri hugprýði og andlega baráttu-
þrekið var óbilað. Smám saman dró þó
af henni og þann 30. maí kvaddi hetjan
okkar hún Ásta Lovísa.
Nýr tilgangur
Sérkennilegt atvik átti sér stað um það
bil sem Ásta andaðist. Þannig var að
ég hafði rekist á hljómdiskinn Móðir
og barn eftir Friðrik Karlsson á Líknar-
deildinni, en hljómflutningstæki voru
í öllum herbergjum til að stytta sjúk-
lingum stundirnar.
Þetta eru tveir diskar; á öðrum
þeirra þrjú verk eftir Friðrik og hafði
ég mikið dálæti á einu þeirra, sem er
þriðja verkið á disknum og heitir Nýr
tilgangur. Hafði ég leikið það nokkr-
um sinnum fyrir Ástu og svo vildi til að
diskurinn var í hljómtækjunum þegar
hún lést, en þá var slökkt á tækjunum
að því að við best vissum.
En á sama augnabliki og Ásta dró
andann í hinsta sinn fór geislaspilar-
inn af stað og um herbergið ómuðu
tónar lagsins Nýr tilgangur. Enga skýr-
ingu fundum við á því að tækið fór
skyndilega í gang en ég er sannfærður
um að þetta voru síðustu skilaboð Ástu
til okkar. Nýr tilgangur.
[...]
Ásta Lovísa dóttir Vilhjálms sem
lést eftir hetjulega baráttu við
krabbamein og þúsundir manna
fylgdust með á bloggsíðu Ástu.
Óvenjulegur viðskiptavinur
Það eru ekki bara tvífætlingar
sem notið hafa góðs af þjónustu
Villa rakara í gegnum tíðina.
Allt á sAmA verði og í fyrrA
og ekki krónu meir.
BergkristAll
BæjArlind 16, 201 kópAvogur, sími 456-1113
www.BergkristAll.is
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Eirhöfði 13 og 18 l Sími: 455-2000
Opnunartími frá kl 08:00 til kl 17:00
ÖRYGGI OG TÆKNI
Öryggiskerfi, reykskynjarar, slökkvitæki.
Málum olíumálverk eftir ljósmyndum
Barnamyndir
Andlitsmyndir
Dýramyndir
Fjölskyldumyndir
Brúðkaupsmyndir
Landslagsmyndir
og hvað sem er annað...
www.portret.is
Sími: 899 0274Mjög góð verð og stuttur afgreiðslutími
Olíumálverk
Ljósmynd
BÚÐU TIL ÞITT
EIGIÐ JÓLAKORT Á
www.prentlausnir.is
99 KRÓNUR
KORTIÐ FRAM AÐ JÓLUM
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson