Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2008, Side 53
ið eystra aflaði sér lífsviðurværis með loðfeldasölu og ránsferðum inn í lönd Rússa enn austar. Þetta fólk var kristið en að hætti austrómversku kirkjunnar. Krossferð gegn kristnum Rússum Gregoríus páfi IX sat á páfastóli á ár- unum 1227-41 og var ekki sérlega vel að sér í landafræði Evrópu. Hann taldi skinnsalana mótfallna kristni og hvatti til krossferða gegn þessum „trúvillingum og villimönnum“. Á 12. öld voru páfar mjög upp- teknir af útbreiðslu kristninnar í norðausturátt. Rússland varð sér- lega eftirsóknarverður vígvöllur hei- lags stríðs, því þótt menn væru þar kristnir voru þeir ekki rétt kristn- ir. Sérlegur sendimaður páfa við Eystrasalt, Vilhjálmur frá Modena, fyrirskipaði krossferð til Novgor- od eða Hómgarðs 1240. Hólmgarð- ur var verslunarmiðstöð og byggði auðlegð sína á loðfeldasölu, feldirnir komu úr skógum Norður-Rússlands. Bærinn var vel staðsettur hernaðar- lega séð, um 25 km suðaustur af nú- verandi Sankti Pétursborg. Fljótin tengdu Hólmgarð Eystrasalti, Býs- ans, Mið-Asíu og núverandi Evrópu- hluta Rússlands. Svíar, Norðmenn og Þjóðverjar höfðu lengi verið í viðskiptum við þetta klofningsfólk kristninnar, eins og það var kallað, en oft hafði líka komið til átaka. Í Hólmgarðsannál segir helst af þátttöku Svía í krossferðinni en skipafloti þeirra sigldi að Nevufljóti. Um borð voru einnig Norðmenn og Finnar. Til stóð að taka Aldeigjuborg eða Staraja Ladoga og síðan Hólmgarð og öll lönd umhverfis hann. Alex- ander fursti (1220-63) leiddi kraft- mikla vörn Rússa með slíkum ágæt- um að fjöldi árásarmanna féll og krossfarasveitin mátti hörfa. Krist- in skyldurækni hafði vissulega hvatt þessa menn áfram en þó miklu frem- ur þorsti í lönd, auð og völd. Að fengnum sigrinum hlaut Alex- ander fursti viðurnefnið Nevský (frá Nevu). Hann tók þátt í annarri úr- slitaorrustu 5. apríl 1242. Á ísilögðu Peipusvatninu laust hersveitum Hólmgerðinga og Þýsku reglunnar saman. Í einni heimild segir að „heyra mátti þegar sverð klufu hjálma“. Rússarnir vörðust innrásarliðinu hetjulega. föstudagur 19. desember 2008 53Helgarblað og réðust gegn konungi og mönnum hans. Eiríkur helgi neyddist til að láta af friðarboðun og grípa til sverðsins til að ná valdi á Finnum. Fornar sagnir segja Eirík síðan hafa siglt heim til Svíþjóðar frá alk- ristnu Finnlandi. Ekki leið á löngu þangað til nýskírður Finni hjó Hinrik biskup í spað. Þetta verður að telja helberan krossfaraáróður því hvergi er að finna heimildir um þennan at- burð. En Eiríkur konungur og Hin- rik biskup eru verndardýrlingar Sví- þjóðar og Finnlands. Finnland kristnað Finnland var að lokum kristnað en enginn veit hvernig. Árið 1209 skrif- aði Innocentíus páfi III Andrési, erkibiskupi í Lundi, bréf og þakkaði honum helst þær fréttir „að land eitt nefnt Finnland [...] hefur verið kristn- að með aðstoð göfugra manna“. Páfinn á sjálfsagt við ránsferðir Dana til landsins árin 1191 og 1192 eða jafnvel aðrar ferðir sem fylgdu í kjölfarið. Páfinn samþykkti að erki- biskupinn skipaði leikmann bisk- up í Finnlandi. Vissulega var það ekki í samræmi við stefnu kirkjunn- ar en enginn annar fékkst til verks- ins. Staðan var bókstaflega talin lífs- hættuleg. Meiri líkur eru á að önnur og þriðja krossferð til Finnlands hafi raunverulega verið farnar. Frá þeim er greint í Eiríksannál en hann var ritaður á árunum 1322-1332. Finn- ar voru nú kristnir og urðu krossfar- ar að halda lengra í austur í leit að heiðnum mönnum. Finnar lifðu á landbúnaði en fólk- Skelfdu alla við eyStraSalt C M Y CM MY CY CMY K verð: kr. 1.000.- fyrir fullorðna og kr. 400 fyrir börn sagan öll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.