Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Blaðsíða 6
Landsbankinn í London varð fyr-
ir barðinu á bíræfnum ræningjum á
mánudaginn þegar glænýjum og fok-
dýrum tölvubúnaði var rænt úr Bow
Bells skrifstofubyggingunni við Bread
Street í London. Starfsemi var ekki
hafin í útibúinu en þar var þó búið að
koma fyrir netbúnaði frá Cisco sem
býður upp á það allra besta og dýrasta
í slíkum vélbúnaði. Samkvæmt heim-
ildum DV hleypur verðmæti þýfis-
ins á tugum milljóna króna. Þjófarn-
ir gerðu sér lítið fyrir og ruddust inn í
hálfklárað útibúið, slógu öryggisvörð
í rot og höfðu tölvurnar á brott með
sér.
Tinna Molphy, fjárfestatengill
Landsbankans, staðfesti að vélbún-
aði hefði verið rænt frá bankanum.
Vélarnar hafi hins vegar ekki ver-
ið uppsettar þannig að engin forrit
eða aðrar upplýsingar voru vistaðar
á þeim. Viðskiptavinir Landsbank-
ans í London þurfa því ekki að óttast
að viðkvæm viðskiptagögn hafi fallið
í hendur rummunganna. Tinna vildi
ekkert gefa upp um fjárhagslegt tjón
Landsbankans og sagði ekki tímabært
að segja meira um málið þar sem það
væri í rannsókn lögreglu í Bretlandi.
Landsbankinn er til húsa í Bea-
ufort House við Botolph Street en
flutningar yfir í Bow Bells bygginguna
stóðu fyrir dyrum. Flutningarnir hafa
tafist nokkuð en Tinna telur ekki að
ránið muni setja sérstakt strik í reikn-
inginn hvað fyrirhugaða flutninga
snertir. „Það hafa þegar orðið tafir af
ýmsum ástæðum en eins og svo oft
vill verða ætla Íslendingar sér of mik-
ið á stuttum tíma. En þetta sérstaka
atvik ætti ekki að tefja fyrir.“
Þegar Tinna var spurð hvort
Landsbankinn hefði haft einhverjar
spurnir af líðan næturvarðarins sem
var sleginn niður ítrekaði hún að mál-
ið væri í rannsókn og hún gæti ekki
tjáð sig frekar.
Landsbankinn og formaður stjórn-
ar hans, Björgólfur Guðmundsson,
komu við sögu í breskum fjölmiðlum
í síðustu viku vegna gjaldþrots XL-
Leisure. Þessi erfiða vika fyrir Lands-
bankann var svo rétt að baki þegar
sú næsta hófst með öðru áfalli þegar
rummungsþjófarnir létu greipar sópa
í Bow Bells húsinu.
Lögreglan í London
staðfestir að hún hafi
innbrotið til rann-
sóknar og hefur
auglýst eftir sjónar-
vottum eða öðrum
þeim sem geti gefið
frekari upplýsingar
um ránið.
Bread Street,
eða Brauðgat-
an,
sem Landsbankinn ætlar að
setjast að við, er fornfræg
og þar hafa viðskipti
verið stunduð árhund-
ruðum saman. Ekki þó
alla tíð með hlutabréf
þar sem gatan dreg-
ur nafn sitt af því að
upp úr 1300 söfnuð-
ust bakarar þar saman
með brauðmarkað eftir
að þeim hafði verið bann-
að að selja afurðir sínar í
heimahúsum. Þá má einn-
ig geta þess að breska skáld-
ið John Milton fæddist í
húsi við Bread Street
árið 1608.
föstudagur 19. september 20086 Fréttir DV
Sandkorn
n Sú lognmolla sem ríkt hefur
í framhaldi af fréttastjóraskipt-
unum hjá bæði Ríkisútvarpinu
og 365 er í raun áhugaverðari
en ef allt hefði um koll keyrt.
Flestum er í fersku minni sú
gagnrýni
sem ráðning
Steingríms
Sævars Ól-
afssonar í
stöðu frétta-
stjóra á Stöð
2 fékk, sér í
lagi vegna
tengingar
hans við Framsókn. Æsingur í
kjölfar hausafoka hefur verið
reglan. Fólk keppist hins vegar
við að lofa Óskar Hrafn Þor-
valdsson sem stjórnanda sam-
einaðrar fréttadeildar og flest-
um finnst eðlilegt að Óðinn
Jónsson hafi tekið við á RÚV.
Því má með sanni segja að
stjórnendur hafi þarna í fyrsta
sinn sannarlega hitt í mark.
n Sameining fréttamiðla 365
vekur þó starfsmönnum Vísis
ákveðnum áhyggjur. Hing-
að til hafa fréttastofa Stöðv-
ar 2 og visir.is verið í beinni
samkeppni en með samvinnu
deildanna þykir sýnt að vefur-
inn getur þurft að sitja á bestu
fréttum sínum yfir daginn
og segja þær á sama tíma og
kvöldfréttirnar. Hingað til hef-
ur Vísir hins vegar verið mun
duglegri við að flytja spenn-
andi fréttir en Stöð 2 dreg-
ið lappirnar. Því er togstreita
þeirra á milli viðbúin en góður
stjórnandi leysir úr því eins og
öðru.
n Eggert Haukdal, fyrrverandi
þingmaður, getur loks andað
léttar eftir að Hæstiréttur sýkn-
aði hann
af ákæru
um að hafa
dregið sér fé
meðan hann
var oddviti
í Vestur-
Landeyja-
hreppi.
Hann hafði
reyndar áður verið dæmdur
sekur í Hæstarétti en fengið
mál sitt endurupptekið. Málið
snýr að greiðslu vegna vega-
gerðar. Bókhald hreppsins
var mjög losaralegt og fannst
Hæstarétti því ekki hægt að
álykta hvort Eggert hefði vitað
af greiðslunni inn á reikning
sinn og hvort hann hefði ætlað
að draga sér fé.
n Kristinn H. Gunnarsson al-
þingismaður er í pólitískum
ólgusjó þessa dagana eins og
stundum áður. Í opnuviðtali
í vikublaðinu Bæjarins besta
á Ísafirði sem kom út í gær
segir hann
að harka-
leg viðhorf
sumra í
forystu
flokksins
gagnvart út-
lendingum
eigi ekkert
erindi inn í
þjóðfélagsumræðuna. „Ég hef
mælt kröftuglega á móti þeim,“
segir Kristinn í viðtalinu. Við-
brögð þessara sömu manna
í forystu flokksins gagnvart
honum láta heldur ekki á sér
standa og spyrja má hvort
Kristinn sé orðinn útlendingur
hjá frjálslyndum?
þórarinn þórarinsson
fréttastjóri skrifar toti@dv.is
sigurjón þ. Árnason bankastjóri
starfsfólk hans í London hafði ekki komið
sér fyrir á nýjum stað þegar þjófar höfðu
á brott rándýran tölvubúnað. Lögregla í
bretlandi leitar þjófanna.
Ekki búið að opna Landsbankinn
var ekki búinn að opna nýja útibúið en
dýr tölvubúnaður var kominn í hús og
féll í hendur ræningjanna.
Rannsókn lögreglu á máli manns
sem er meðal annars grunaður um
að hafa ítrekað fengið ókunnuga
karlmenn til þess að hafa kynferðis-
legt samneyti við sambýliskonu sína,
gegn hennar vilja og stundum fleiri
en einn í einu, er lokið. Þetta heim-
ilisofbeldismál þykir sérlega hrotta-
fengið og konan óttaðist um líf sitt
á meðan á sambandi hennar við
manninn stóð.
„Það sem tekur við núna er að
ríkissaksóknari tekur ákvörðun um
framhaldið og hvort ákært verð-
ur í málinu eður ei,“ segir Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar. Hann á
von á því að ákvörðun ríkissaksókn-
ara verði tekin fljótt þar sem málið er
mjög umfangsmikið og hefur verið
lengi í rannsókn. Rannsóknin teygði
anga sína meðal annars til Noregs og
Danmerkur þar sem fólkið var búsett
á þeim tíma sem hluti hinna meintu
brota áttu sér stað.
Þann 7. ágúst staðfesti Hæstirétt-
ur úrskurð Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að maðurinn skyldi ekki sæta
nálgunarbanni, þvert á kröfur lög-
reglustjórans í Reykjavík. Meint of-
beldisverk mannsins ná yfir þriggja
ára tímabil á meðan hann var í sam-
búð með konunni. Á þeim tíma sak-
ar konan manninn um ítrekað og
sérlega fólskulegt líkamlegt og kyn-
ferðislegt ofbeldi. Sambandi þeirra
lauk í janúar á þessu ári og síðar í
þeim mánuði fékk konan sex mán-
aða nálgunarbann á manninn, enda
óttaðist hún mjög um líf sitt.
Auk ítrekaðra barsmíða og hót-
ana hefur lögregla meðal annars
rannsakað ásakanir konunnar um
að maðurinn hafi frá vorinu 2005 oft
fengið ókunna karlmenn, stundum
í hópi, til að eiga kynferðislegt sam-
neyti við hana. Þá á sambýlismað-
urinn að hafa tekið athæfið upp á
myndband.
Í samtali við dv.is þann 8. ágúst
sagði Hilmar Ingimundarson, verj-
andi mannsins, að hann lýsti sig sak-
lausan af ásökununum og að hann
væri jafnframt vongóður um fram-
haldið.
mikael@dv.is
Hrottafengið heimilisofbeldismál komið til ríkissaksóknara:
þungar sakir ríkissaksóknari mun
ákveða hvort maðurinn verður
ákærður fyrir meint ofbeldisverk.
Barsmíðar og hópnauðganir
Leiðrétting
Röng upphæð birtist í Suðurlands-
blaði DV á fimmtudaginn í umfjöll-
un um erfiðleika lögregluembættis-
ins á Selfossi. Þar var missagt að
bæta yrði við 25 milljónum við fjár-
lög fyrir árið 2009 til að festa í sessi
28 stöður í umdæminu, en hið rétta
er að 35 milljónir vantar upp á.
Þjófarnir gerðu sér lít-
ið fyrir og ruddust inn
í hálfklárað útibúið,
slógu öryggisvörð í rot
og höfðu tölvurnar á
brott með sér.
Ræningjar rotuðu öryggisvörð og rændu vélbúnaði, sem talið er að kosti tugi milljóna, úr
nýju útibúi Landsbankans í London á mánudag. Starfsemi er ekki hafin í húsnæðinu þannig
að aðgangur þjófanna að því virðist hafa verið frekar greiður. Næturvörður í skrifstofu-
byggingunni gat ekki stöðvað ræningjana og lá rotaður eftir viðskipti sín við skúrkana.
Landsbankinn
æ dur