Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Blaðsíða 28
föstudagur 19. september 200828 Helgarblað DV
Konan
Er hárið að pirra þig?
ertu á leiðinni í kokkteilboð, partí eða brúðkaup? er hár-
ið ómögulegt og tíminn naumur? Keyptu þér fallega
spöng með blómi, blúndu eða annars konar skrauti.
Úrvalið hefur aldrei verið meira af fallegum spöngum í
búðunum og ekki vitlaust að eiga fleiri en eina til skipt-
anna. taktu hárið aftur í hnút eða fallegt tagl og settu
upp skemmtilega spöng og áhyggjurnar af hárinu eru
úr sögunni.
umsjón: KOLbrÚn pÁLÍna heLgadóttIr kolbrun@dv.is
n húðburstun örvar blóðstreymi til húðarinnar og
fjölgar húðfrumum örar.
n húðburstun hjálpar til við að hreinsa dauðar
húðfrumur og örva sogæðakerfið.
n burstunin hjálpar líkamanum við að losna við
eitur- og úrgangsefni úr líkamanum.
n húðburstun skal gera á þurra húð með þurrum
bursta.
n best er að bursta húðina áður en farið er í sturtu á
morgnana.
n Þegar húðin er burstuð skal alltaf stefna að
hjartanu.
n best er að byrja á fótleggjunum. fyrst upp að
hnjám, bæði að framan, aftan og á hliðum,
nokkrum sinnum á hvert svæði. svo frá hnjám, upp
að mjöðmum. upp rasskinnar og mjaðmir. gott er
svo að taka handleggi frá úlnlið, upp að öxlum og
svo yfir axlirnar. farið varlega í húðburstunina yfir
magann þar sem húðin er viðkvæmari þar. einnig
ættu konur að sleppa því að bursta brjóstin.
n að burstuninni lokinni er bara að skella sér í
sturtu og um að gera að enda hana á kaldri gusu.
Kalda vatnið örvar blóðrásina enn frekar og kemur
hita í kroppinn. einnig er það örugg leið til að byrja
daginn hress og kát.
Burstaðu kroppinn
Kona
viKunnar
Alma Guðmundsdóttir, söng-
kona og blaðamaður.
n hvað borðar þú í morgunmat?
„Ég fæ mér yfirleitt lífrænt
kornfleks með sojamjólk og
þurrkuðum apríkósum.“
n hvar líður þér best?
„heima hjá mér í Kjósinni, hvort
sem það er úti í göngutúr, að elda
og borða góðan mat með
fjölskyldunni eða fyrir framan
kamínuna með góða bók.“
n hvernig heldur þú þér í formi?
„Þegar ég á kort í ræktinni fer ég
reglulega, annars er það skokk
með hundana mína tvo með
þrekæfingum og teygjum eftir á.
annars reyni ég að borða nokkuð
hollan mat svona dagsdaglega, en
leyfi mér ýmislegt um helgar.“
n hvaða snyrtivörur notar þú
dagsdaglega?
„gott litað dagkrem, hyljara,
augnabrúnalit, smá blush og
maskara. svo er það ilmvatn og þá
vel ég yfirleitt lykt eftir skapi og
veðri. Ég er mjög dugleg að prófa
vörur frá mismunandi merkjum og
finnst mjög gaman að uppgötva
nýjar og góðar snyrtivörur.“
n hvar kaupir þú helst föt?
„hérna heima er það helst
topshop, en erlendis versla ég
yfirleitt í h&m, miss selfridge,
urban Outfitters og tek góðan
hring í vintage-búðum.“
n hvað gerir þú þegar þú vilt
dekra við sjálfa þig?
„fer í baðstofuna í Laugum – það
er algjört æði. að borða á góðum
veitingastað og fara í nudd er líka
eitt mesta dekur sem ég veit um.“
n hvert er þitt helsta fegurðarráð
„að hreyfa sig reglulega,
sérstaklega ef maður er í vinnu
sem þreytir mann meira andlega
en líkamlega, og fá góðan
nætursvefn til að vera í jafnvægi.
Það er ótrúlegt hvað lítill svefn
hefur áhrif á afköst og kallar á alls
konar ruslfæði yfir daginn.“
hrönn Friðriksdóttir spámiðill og nám-
skeiðahaldari segir hvern sem er geta
komið á námskeið um andleg mál. Hún
ætlar að hjálpa fólki að efla sjálfstraustið,
hugleiða um lífið og þroskast á námskeið-
um sem hún heldur í vetur.
Spáir í
Spilin
Spáir í spilin
hrönn kennir áhugasömum
að lesa í spilin í vetur.
DV-myndir: Gunni Gunn
„Ég hef alltaf verið skyggn, al-
veg frá fæðingu,“ segir Hrönn Frið-
riksdóttir spámiðill og námskeiða-
haldari.
Hrönn er fædd árið 1957 og fór
nokkuð hefðbundna leið í lífinu
framan af að eigin sögn. „Ég gekk í
húsmæðraskólann, lærði bókhald
og starfaði við það til margra ára.“
Það var svo ekki fyrr en um þrjátíu
og fimm ára aldurinn þegar Hrönn
losnaði úr erfiðu hjónabandi að
hún fór að sinna andlegu málun-
um.
Hrönn hefur verið með nám-
skeið af ýmsum toga síðastliðin
tvö ár og heldur því ótrauð áfram
þennan veturinn. „Ég er ann-
ars vegar með námskeið þar sem
ég kenni fólki að lesa í tarotspilin
sín sem og annars konar spil. Um
er að ræða bæði grunn og fram-
haldsnámskeið. Á þessu námskeiði
skiptir miklu máli að fólk sé svolít-
ið næmt svo að það eigi auveldara
með að tengjast spilunum sínum.“
Hrönn segir áhugann á spilunum
hafa aukist mikið undanfarið.
„Hins vegar er ég með svokall-
að hópastarf eða þróunarhóp öðru
nafni. Í hópastarfinu hittumst við
einu sinni í viku allan veturinn.
Vinnum saman í andlegum málum,
eflum sjálfstraustið, hugleiðum um
lífið og vinnum í að þroska hvert
annað.“ Að sögn Hrannar er
engin kvöð um að fólk
sé næmt eða skyggnt
til þess að taka þátt í
hópastarfinu. „Það
eru allir velkomn-
ir, fram að þessu
hef ég fengið ólíkt
fólk á öllum aldri
á námskeiðin.“
Hrönn ætl-
ar að bjóða upp á
eina nýjung í vetur
en það eru sígauna-
spil. „Ég vinn mikið
með sígaunaspilin og hef
áhuga á að kenna eingöngu á
þau á sérstöku námskeiði fyrir byrj-
endur ef áhugi er fyrir hendi,“ seg-
ir Hrönn. Áhugasamir geta nálgast
frekari upplýsingar á heimasíðu
Hrannar, spamidill.com.
Þegar Hrönn er ekki að halda
námskeið spáir hún í spil og spá-
dómskúluna sína. „Ég spái fyrir
einstaklinga og er hver tími klukku-
stund. Þar notast ég við bæði spil
og kúlu. Þetta er orðin full vinna,“
segir Hrönn sem er í óðaönn að
finna nýtt húsnæði undir starfsemi
sína en til þessa hefur hún starfað
heima. „Þetta er alltaf að vinda upp
á sig, það þýðir ekki fyrir mig að
vera heima lengur og þar af leiðindi
er ég að leita að huggulegu her-
bergi til að leigja.“ Hrönn ítrekar að
hennar hugsjón sé ekki að græða á
þessu. „Ég vil að sjálfsögðu fá borg-
að fyrir vinnuna mína en ég er ekki
í þessu til að græða.“
Aðspurð um fjölskylduhagi seg-
ist Hrönn eiga þrjú uppkomin börn
en slær á létta strengi þess efnis að
nú sé kominn tími á barnabörn.
„Börnin mín eru svo dugleg að
mennta sig að þau hafa ekki tíma til
að gera mig að ömmu strax,“ segir
þessi hressi spámiðill að lokum.
kolbrun@dv.is
Þegar fólk er að vinna að bættri heilsu með hollu mataræði og afeitrun líkamans er mjög gott að þurr-
bursta húðina. Húðburstun örvar sogæðakerfið og styður þannig við afeitrunina. Fyrsta skrefið er að
kaupa sér góðan bursta með náttúrulegum hárum og löngu skafti. Leitið ráðlegginga við val á bursta
og fáið leiðbeiningar um hreinsun hans en það getur verið misjafnt eftir gerð háranna.