Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Blaðsíða 20
föstudagur 19. september 200820 Helgarblað DV
Vöruverð og verslunarmáti er nokkuð sem margir spá í þessa
dagana. Sumir láta sig verð engu skipta og kaupa það sem hendi
er næst. Raunin er sú að víða er hægt að spara margar krónur
með því einu að huga að því hvað er dýrt og hvað ekki. Sölumenn
víla oft ekkert fyrir sér og leggja á vöruna það sem þeir komast
upp með. DV tók saman dæmi um verð á vörum og þjónustu sem
kunna að þykja dýrar og kynnir betri kosti.
Dýrkeypt vara
dæmi 1
Dýrt: smurt brauð í
Þórsbakaríi í Ármúla.
Chiabatta-brauð með skinku og grænmeti á 750 krónur.
Sparnaður: 12 tommu
pitsubÁtur Á subway.
smurðar samlokur eru oft dýrar hvert sem maður fer. Þó
hagstæðast sé að smyrja heima hjá sér getur maður
fengið 12 tommu pitsukafbát á subway á 749 krónur.
stærri samloka fyrir sama pening og í bakaríinu.
dæmi 2
Dýrt: Heimsend pitsa frÁ pizza Hut.
Það kostar 4.700 krónur að fá stóra pitsu með tveimur áleggsteg-
undum, skammti af brauðstöngum, sósu og 2 lítrum af gosi
senda heim.
Sparnaður: sparitilboð a HjÁ domino´s
sparitilboð a inniheldur það sama eða stóra pitsu með tveimur
áleggstegundum, skammti af brauðstöngum, sósu og 2 lítrum af
gosi en er á aðeins 2.850 krónur. Hægt að fá næstum tvö fyrir
sama pening og hjá pizza Hut.
dæmi 3
Dýrt: Hringja í 118.
upphafsverðið er dýrt hjá flestum símafyrirtækjum. Hjá tal
er upphafsverðið 76 krónur og mínútuverð 68 krónur. sá
sem hringir úr gsm-símanum sínum, talar í hálfa mínútu
og fær áframsendingu borgar fyrir símtalið 129 krónur.
Sparnaður: ja.is.
Það kostar ekki neitt nema smá aukatíma að slá inn
númerið. Á ferðinni er líka sniðugt að stoppa á næstu
bensínstöð og fá lánaða símaskrá. Það þarf ekki nema
nokkur símtöl í 118 og kostnaðurinn er orðinn mörg
hundruð krónur.
dæmi 4
Dýrt: jarlsberg-ostur í ostaborðinu
í Hagkaupum.
Hinn vinsæli jarlsberg-ostur kostar í
ostaborðinu í Hagkaupum 4.344 kílóið.
Sparnaður: jarlsberg-ostur í
ostabúðinni við skólavörðustíg.
Hægt er að fá hann ódýrari. í ostabúðinni er
kílóverðið 3.570 krónur og 774 krónum
ódýrara. ef keypt væri hálfs kílóa stykki
myndi það kosta 1.785 krónur í stað 2.172
króna í Hagkaupum.
dæmi 5
Dýrt: ferskjur í 10-11.
kílóverðið á ferskjum í 10-11 er 1.499 krónur. ferskja sem
vegur 230 grömm kostar hvorki meira né minna en 345
krónur.
Sparnaður: ferskjur í krónunni.
kílóverðið á ferskjunum í krónunni er 399 krónur sem er
1.100 krónum ódýrara en í 10-11. ferskja sem vegur 230
grömm mundi því kosta 92 krónur. Hægt er að kaupa 3
ferskjur á verði einnar í 10-11.
dæmi 6
Dýrt: ben and jerry´s ís í 10-11.
lítil dós af ísnum, 473 gramma dós, kostar 1.099
krónur í 10-11. nýlega búin að hækka úr 999
krónum.
Sparnaður: ben and jerry´s ís
í Hagkaupum.
ísinn kostar 879 krónur í Hagkaupum og því
hagstæðara að kaupa hann þar. núna um helgina
eru svokallaðir amerískir dagar í Hagkaupum og er
ísinn á 50 prósent afslætti en aðeins yfir helgina.
dæmi 7
Dýrt: sólÞurrkaðir tómatar frÁ saCla sem fÁst í
krónunni.
Hægt er að kaupa þá frá sacla á 692 krónur í krukku sem
vegur 280 grömm.
Sparnaður: sólÞurrkaðir tómatar frÁ ora sem
líka fÁst í krónunni.
Þeir kosta aðeins 299 krónur og vegur krukkan 340 grömm.
tómatarnir bragðast mjög svipað og maður fær meira fyrir
peninginn ef maður kaupir þá frá ora fremur en sacla.
Að eiga og elska heimsins versta hund
-Mjög fyndin ástarjátning
... Í bókinni Marley og ég
er viðfangsefninu lýst af
hlýju ... gamansemi og
ástúð.
New York Times
-Fyndin og hjartnæm saga um
fimmtíu kílóa Labrador sem
var jafn tryggur og elskulegur
og hann var óþekkur.
People
-Hugsanlega hugljúfasta bók
ársins. Sannarlega
hundavinabók ársins.
USA Today
MARLEY OG ÉG er bók sem allir
hundaáhugamenn verða að lesa
- og hinir líka.
Marley og ég
John Grogan
Að eiga og elska
heimsins versta hund
Á metsölulista New York
Times Frum-
útgáfa í
kilju
HÓLAR