Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Side 13
föstudagur 19. september 2008 13Helgarblað „Ég held að tímasetningin sé bara mjög góð. Það eru tækifæri á mark- aðinum út af þessari niðursveiflu, sem verður vonandi bara tímabund- in,“ segir Halldór Óskar Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi, aðspurður hvort forsvars- menn fyrirtækisins séu uggandi yfir því að koma inn á markaðinn í því árferði sem nú er. Að öllu óbreyttu mun Bauhaus opna nýja verslun sína við Lambhagaveg við Úlfarsfell í desember, engin dagsetning hefur þó verið fest í þeim efnum. Bauhaus er þekkt á Evrópumark- aðinum sem lágvöruverðsverslun og Halldór segir að sömu stefnu verði haldið hér á landi. „Það er eitt af því sem kemur í ljós, við verðum náttúr- lega mjög ódýrir, það er markmiðið með Bauhaus að vera með mjög hag- stætt verð. Það verður sama stefna á Íslandi,“ segir Halldór. Mannaráðn- ingar hafa gengið vonum framar að sögn framkvæmdastjórans en ráð- gert er að um 160 til 180 störf verði í boði í versluninni sem er rúmlega 21 þúsund fermetrar, og nú þegar hafi hátt í 1.400 manns sótt um. Orðrómur hefur verið uppi um að Bauhaus hafi hug á að kaupa Húsa- smiðjuna og verða þannig gríðar- lega sterkt á markaðinum, en Hall- dór kemur af fjöllum spurður um þær sögur. „Nú segir þú mér fréttir, ég hef aldrei heyrt þetta áður. Þessar sögur geta verið í öllum regnbogans litum svo sem en Bauhaus rekur sín- ar sjálfstæðu einingar úti í heimi og ég reikna ekki með því að það breyt- ist eitthvað,“ segir Halldór Óskar, en útilokar ekkert. „Það er samt aldrei að vita. Það getur allt gerst í þessum bransa.“ mikael@dv.is Allt getur gerst í byggingarvörubransanum: Bauhaus hvergi Bangið Bauhaus rís Lágt verð er einkennismerki þýska byggingarvörurisans. aðstandendur óttast ekki efnahagsástandið. en þetta er það síðasta sem mað- ur myndi gera,“ sagði þessi 49 ára kona, sem er menntuð ljósmóð- ir, í DV í gær. Hún hældi Vinnu- málastofnun fyrir þau námskeið sem þar er boðið upp á og sagði þá þjónustu mikilvæga til að hjálpa fólki í því erfiða ferli sem fylgir at- vinnuleysi. Ágústína Ingvarsdóttir sálfræð- ingur sagði í samtali við DV í gær að það væri mikið áfall fyrir fólk að missa vinnuna og áhrifin gætu verið lamandi. Þó mætti líta á þær tímabundnu þrengingar sem tæki- færi til að vaxa. Hún áréttaði einn- ig að það væri engin skömm að því að missa vinnuna og það þyrfti ekki að vera neikvætt. „Svo lengi sem þú leyfir því ekki að ná yfirtök- unum hjá þér. Þegar mótstreymi kemur er það tímabundið verkefni til að takast á við,“ sagði Ágústína. Ljósið í myrkri atvinnuLeysisins Verslunareigendum ber skylda til að verðmerkja allar vörur samkvæmt lögum. Þetta á jafnt við inni í verslunum sem í búðargluggum. Verðmerking á að vera vel sýnileg og ekki má fara á milli mála til hvaða vöru hún vísar. Oft getur verið erfitt að átta sig á hagkvæmustu kaupunum þar sem úrval af vörum er mikið og pakkningar misstórar. Til að auðvelda þér að bera saman verð hafa því verið settar reglur sem skylda verslunareigendur til að gefa upp mæli- einingarverð vöru, auk söluverðs. Notaðu rétt þinn. P R [p je e rr ] Neytendastofa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.