Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Qupperneq 34
föstudagur 19. september 200833 Helgarblað DV „Mér finnst ég yngri en nokkru sinni,“ segir Heiðar Jónsson sem nýlega fagnaði sextugsafmæli sínu spurður um tilfinninguna. Þrátt fyr- ir að vera ungur í anda hefur líkam- inn ekki fylgt með, að sögn Heiðars. „Ég er að taka mig á, ég er farinn að stunda líkamsrækt og vinna í bættu mataræði, svo vinn ég auðvitað myrkranna á milli en vinnan drepur engan. Mér líður ekki deginum eldri en fertugum.“ Heiðar segir ástæðu átaksins vera þá að hann hafi verið farinn að finna fyrir stirðleika, auka- kílóum og fleiri einkennum þess að aldurinn væri að færast yfir. „Ef ég kæmist upp með að vera spikfeitur myndi ég gera það og borða súkkulaði í öll mál. En auka- kílóunum fylgir vanlíðan. Þetta snýst um að hafa heilsuna í lagi.“ Heiðar taldi versnandi ástand sitt hluta af hækkandi aldri og taldi varla taka því að gera eitthvað í málinu. „Ég hef grun um að það sé allt of mik- ið af fólki þarna úti sem er búið að gefast upp og telji sér trú um að það taki því ekki að fara að hugsa bet- ur um sig komið á þennan aldur. Ég vil bara benda þessu fólki á að það hefur rangt fyrir sér. Ég er búinn að uppgvöta það núna.“ Íslenskt lauslæti Heiðar Jónsson, sem er þjóðinni kunnur sem Heiðar snyrtir, er fædd- ur á fæðingarheimili fyrir ógiftar mæður árið 1948 í Reykjavík sem síðar brann til kaldra kola. Móðir Heiðars lést aðeins tuttugu og fjög- urra ára að aldri, eftir harða baráttu við þunglyndi. Hún skildi eftir sig þrjú börn. „Ég á engar minningar um mömmu,“ segir Heiðar sem ólst upp á prestsetri á Snæfellsnesi. „Ég var fæddur í svo mikilli synd að ég var gefinn á prestsetur. Mamma mín kom sem vinnukona að Krossum í Staðarsveit með lítinn dreng með- ferðis en áður hafði faðir hennar starfað sem vinnumaður á þessum sama bæ. Fljótlega varð hún ólétt að mér eftir strákinn á bænum sem var mjög ungur að árum. Þegar mamma lést tók amma mín, sem var ótrúleg kona, málin í sínar hendur og gaf mig presthjónum á Staðarstað á Snæfellsnesi, þau vildu heldur litla drenginn en þann stærri. Sjálf ætt- leiddi hún hálfbróður minn sem var tveggja ára.“ Hálfbróðir Heiðars er því í senn föðurbróðir hans þar sem hann er nú sonur ömmu hans og föðurbróðir hálfsystkina hans í föðurætt. „Sumir vilja kalla þetta íslenskt lauslæti,“ segir Heiðar og skellir upp úr. Raunverulegur faðir Heiðars kynntist síðar annarri konu og eign- uðust þau sjö börn saman. Þau voru í góðu sambandi við presthjón- in sem fyrir áttu fjögur börn og var Heiðar meðvitaður um stöðu mála allt frá unga aldri. Hann er því gjald- gengur í tveimur yndislegum fjöl- skyldum að eigin sögn og á stóran hóp góðra systkina. Skýr markmið Fimm ára gamall segist Heiðar hafa orðið fyrir áhrifum tísku, fram- andi menningar og fegurðar þegar fóstursystir hans sem starfaði sem flugfreyja lenti á túninu við bæ- inn. „Hún var stórglæsileg, í flug- freyjubúningi, tólf sentímetra háum hælum og með framandi yfirbragð þegar hún lenti á túninu heima. Hún var heillandi og falleg kona og flugstjórarnir kepptust um að fá að fljúga með hana heim í sveitina. Ég stóð í gúmmískóm með hor í nös agndofa yfir þessari fegurð. Þarna vissi ég að ég vildi halda á svipaðar brautir í lífinu.“ Uppeldissystur Heiðars voru all- ar miklar fegurðardísir. Sjálfur byrj- aði Heiðar að sitja fyrir sem ungl- ingur og aðeins tvítugur að aldri, þá orðinn förðunarmeistari að mennt og fyrirsæta hér á landi, hélt hann á erlenda grund til að freista gæfunn- ar. Fljótlega eftir að hann fór að reyna fyrir sér erlendis segist hann hafa gert sér grein fyrir hve miklir heimsborgarar foreldrar hans væru. „Ég fann fljótt fyrir því hve vel upp alinn ég var og hversu vel ég var að mér í borðsiðum en það þótti ekk- ert sjálfsagt á þessum árum. Ég var alinn upp á dæmigerðu íslensku sveitaheimili af afar siðprúðum for- eldrum. Eina vinnan sem mamma vann áður en hún gerðist prestsfrú var það sem þá hét „lagskona“. Hún var sem sagt persónulegur einka- ritari eiginkonu Jóns Þorlákssonar sem var sendiherra Íslands á Eng- landi og síðar forsætisráðherra. Mamma var gáfuð glæsikona,“ segir Heiðar og andlit hans ljómar. „Pabbi lærði til prests í Lundi í Sví- þjóð, sömuleiðis í Lübeck í Þýska- landi og er því óhætt að segja að al- þjóðlegir vindar hafi leikið um þetta prestsetur. Vel sigld voru þau einn- ig,“ segir Heiðar sem virðist hafa gaman af því að rifja upp gamla tíma. Heiðar verður auðmjúkur þeg- ar hann lýsir fósturforeldrum sínum og rifjar upp æskuna. „Ég á þeim allt að þakka. Þau studdu mig í öllu sem ég tók mér fyrir hendur.“ Umvafinn glæsilegum konum Fljótlega var Heiðar orðin ein vinsælasta karlfyrirsæta landsins og óhætt að segja að þekking hans á snyrtivörum og förðun hafi ekki orðið til þess að draga úr vinsæld- um hans á meðal íslenskra kvenna. Með hverju árinu safnaði Heiðar í reynslubankann í heimi fagurfræð- innar og frægðarinnar og áður en hann vissi var hann orðinn einn þekktasti fagurkeri þjóðarinnar og ráðgjafi í þeim efnum. Hann hefur kennt íslenskum konum framkomu, förðun, borðsiði og fleiri góða siði síðustu áratugina. Verið viðloðandi hverja fegurðarsamkeppnina á fæt- ur annarri og miðlað reynslu sinni til verðandi fegurðardrottninga sem og dæmt um fegurð þeirra. Aðspurður hvernig tilfinning það sé að hafa verið umkringdur glæsi- legum konum allt sitt líf segir hann: „Ég þekki lítið annað. Ég er alinn upp af glæsilegum konum, syst- ur mínar voru fegurðardrottningar, mínar nánustu vinkonur eru falleg- ustu konur þjóðarinnar, svo eyddi ég stórum hluta lífs míns með gull- fallegri konu.“ „Það sem maður missir á svona tím- um, hvort sem það eru vinir, tilfinn- ingar eða peningar, kemur það í öðru og betra formi til baka.“ Óhræddur „Ég er óhræddur og hef alla tíð dembt mér út í hlutina.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.