Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2008, Síða 36
föstudagur 19. september 200836 Helgarblað Íslenska þjóðin hefur átt marga frábæra dúetta. Listamenn sem náðu einstaklega vel saman og skemmtu landanum með kemíkinni á milli sín. Allt frá Tvíhöfða til Ástu og Kela í stundinni okkar. DV tók saman lista yfir nokkra af helstu dúettum þjóðarinnar. Farsælustu dúettar þjóðarinnar Baldur og Konni Þegar það voru hátíðarhöld voru baldur og Konni á staðnum. 17. júní, sumardaginn fyrsta og á öðrum viðlíka hátíðum stálu þeir félagar ávallt senunni. Þeir félagar voru funheitir upp úr miðri 19 öld. baldur georgs búktalari mætti með brúðuna sína Konna og þeir skemmtu gestum með bröndurum og glensi. Það var hreinlega ekki haldin útiskemmtun nema félagarnir væru þar. Friðrik Ómar og Regína Ósk friðrik og regína hafa bæði tekið þátt í íslensku undankeppninn fyrir eurovison- keppnina oftar en einu sinni og bæði hafa þau náð þeim árangri að hafa hafnað í öðru sæti. Þau voru því ákveðnari en nokkru sinni þegar þau mættu saman til leiks í síðustu keppni og báru þar að sjálfsögðu sigur úr býtum. Þau komu Íslandi upp úr undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með framlagi sínu, this is my life, eftir að hafa setið þar fast síðustu ár. Þau eru meðlimir Júróbandsins og hafa skemmt saman á böllum úti um allt land með glæsilegri eurovison-tónlist og flottri sviðsframkomu. Bogi og Örvar Þeir bogi og örvar eru eflaust best liðnu rónar þjóðarinnar. Þessir miklu spekingar hafa átt einstaklega eftirminnileg innslög í spaugstofunni í gegnum tíðina en tvíeykið var leikið af þeim erni Árnasyni og randveri Þorlákssyni. bogi og örvar halda til á bekknum við styttuna af Ingólfi arnarsyni á arnarhóli þar sem þeir velta fyrir sér ýmsum aðgerðum og breytingum í þjóðfélaginu og hvaða afleiðingar þær breytingar komi til með að hafa fyrir þá. Þegar þeir svo hafa komist að niðurstöðu raula þeir ýmist: „Nú erum við í góðum málum, lallarallala“ eða „Nú erum við í vondum málum, lallarallala“ allt eftir því hver niðurstaðan er. Simmi og Jói simmi og Jói voru ekki neitt neitt þegar þeir hófu að skemmta íslensku þjóðinni á útvarpsstöðinni mono fyrir tæpum áratug. Þeir urðu „instant hit“ og tveimur árum síðar varð þátturinn 70 mínútur til á myndbandastöðinni popptíví. sá þáttur sló heldur betur í gegn og hafa margir af þekktustu grínleikurum landsins hafið feril sinn einmitt í 70 mínútum. Þeir voru svakalega flippaðir í 70 mínutum, en þegar þeir voru valdir sem kynnar fyrir hinn ofurvinsæla Idol-þátt tónuðu þeir sig aðeins niður. Íslendingar voru samt sem áður alveg jafnhrifnir. Í dag fer lítið fyrir þeim í sjónvarp- inu, en þetta skemmtilega tvíeyki er með vikulegan útvarpsþátt á bylgjunni á laugardagsmorgnum. Sigga Beinteins og Grétar Örvars Leiðir siggu og grétars lágu saman um áramótin 1988 til 1999 þegar sigga gekk til liðs við hljómsveit grétars, stjórnina. stjórnin var gríðarlega vinsæl hljómsveit sem skemmti fyrir troðfullu húsi á Hótel Íslandi hverja einustu helgi. Árið 1990 sigruðu sigga beinteins og grétar í undankeppni eurovision og voru í kjölfarið send til Zagreb í Júgóslavíu þar sem þau slógu svo eftirminnilega í gegn með laginu eitt lag enn. Lagið hafnaði í þriðja til fjórða sæti sem er næstbesti árangur Íslands í eurovision. sigga og grétar eru einn ástsælasti söngvadúett þjóðarinnar fyrr og síðar enda elskuð og dáð af ungum sem öldnum. Egill Ólafs og Ragga Gísla forsprakkar einnar vinsælustu hljómsveitar Íslands fyrr og síðar, stuðmanna. Orkan á milli þeirra hefur alltaf verið mikil og sérstaklega á sviði. Voru frábær saman í myndinni með allt á hreinu sem er vinsælasta kvikmynd Íslands fyrr og síðar. eftir þá mynd héldu margir landsmenn að þau væru par í alvörunni en svo hefur aldrei verið. Capone-bræður andri freyr Viðarsson og búi bendtsen áttu farsælan feril saman í útvarpi. fyrst í þættinum freysa á X-inu 977. Þar var andri í dulargervi hins óendanlega kjaftfora freysa og búi í dulargervi sem hinn snarklikkaði gunni gír. saman vöktu þeir mikla lukku en þrátt fyrir það var útvarpsstöðin lögð niður. Þeir félagar stofnuðu þá sína eigin stöð sem hét radíó reykjavík en henni var lokað skömmu síðar. Þá stofnuðu þeir reykjavík fm sem lifði í dágóða stund en var svo lokað á endanum líka. Þú og ég Þú og ég var án efa heitasta diskósveit landsins og var dýrkuð og dáð af öllum þeim sem hlustuðu á diskótónlist. Það voru engir aðrir en Jóhann Helgason og Helga möller sem skipuðu þessa hressu diskósveit, en þau buðu upp á slagara á borð við don‘t try to fool me og Í reykjavíkurborg. Það var enginn annar en meistari gunnar Þórðarson sem samdi mikið af lögunum fyrir Þú og ég, ekki slæmt það. Á fyrstu plötu Þú og ég mátti finna mörg klassísk lög, á borð við Vegir liggja til allra átta, í diskóbúningi. Tvíhöfði sennilega farsælasti gríndúett Íslands fyrr og síðar. Þeir Jón gnarr og sigurjón Kjartansson hafa verið óaðskiljanlegir í tæpa tvo áratugi. Velgengni þeirra byrjaði í þáttunum dagsljósi sem voru í sama anda og Kastljós. Þar áttu þeir frábæra spretti og gerðu nokkra af sínum bestu sketsum. Í kjölfarið færðist tvíhöfði yfir í útvarp og var um árabil með einn vinsælasta og umtalaðasta útvarpsþátt landsins. Næsti sigur þeirra félaga var í sjónvarpsþáttunum fóstbræðrum sem eru einir vinsælustu gamanþættir Íslands fyrr og síðar. Jóni og sigurjóni hefur báðum vegnað vel í sitt hvoru lagi en komu saman aftur síðasta vetur í þáttunum Laugardags- lögin. Þar áttu þeir þrælgóð innslög og sýndu að þeir hafa engu gleymt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.