Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 4
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Guðni, ertu mikill kaffimaður?
„Nei. ég drekk ekki kaffi.“
Vegna ástandsins sem stafar af verk-
falli lækna liggur Guðni Páll Viktorsson á
kaffistofu hjartadeildar Landspítalans og veit
ekki hvað að honum amar.
SPURNING DAGSINS
HEILBRIGÐISMÁL Síðustu verk-
fallslotu fyrir áramót lauk í gær,
fimmtudag 11. desember, og enn
hefur ekki verið boðað til nýs
fundar.
Ástandið á spítölum landsins
er víða mjög slæmt. Í gær var
nýrnaþegi sem þurfti að vera í
einangrun vegna sýkingarhættu,
lagður inn á baðherbergi deildar
13-E á Landspítalanum við Hring-
braut.
Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri á deild
13-E, segir algengt að baðher-
bergið sé notað fyrir sjúklinga.
„Ef allar aðrar stofur eru upp-
teknar sem við notum í einangr-
un, þá notum við baðherberg-
ið. Við höfum líka þurft að nota
setustofuna og ganginn. Deildin
er nýtt 105%. Það er alltaf fullt í
hverju einasta plássi og það eru
mjög oft sjúklingar á ganginum
en ástandið hefur verið sérlega
erfitt nú í verkfalli lækna. Þetta
getur ekki gengið svona til lengd-
ar,“ segir hún.
Hildur Þóra segir að starfs-
fólk Landspítalans reyni að gera
vistina eins bærilega og mögu-
legt er. „En auðvitað er þetta
óboðlegt, segir hún og lýsir vist-
inni: „Fæturnir eru þar sem kló-
settið er og höfuðið er þar sem
sturtan er.“
Í gær fjallaði Fréttablaðið um
áhrif verkfallsins á hjartadeild
Landspítalans þar sem sjúkling-
ar hafa beðið frá mánudegi eftir
nauðsynlegum rannsóknum og
aðgerðum. Þá var rætt við Guðna
Pál Viktorsson, ungan mann sem
lagður var inn á mánudagskvöld
vegna einkenna frá hjarta en
hefur ekki farið í nauðsynlegar
rannsóknir og veit því ekki enn
hvað amar að honum.
„Það er svívirðilegt, nú er
staðan sú að öryggi sjúklinga er
ekki tryggt,“ segir Ólafur Ólafs-
son, fyrrverandi landlæknir, um
fregnir af ástandinu á spítölum
landsins nú í vikunni.
„Þetta eru ekki bara nauðsyn-
legar rannsóknir sem sjúklingar
bíða eftir, þær eru í mörgum til-
fellum lífsnauðsynlegar,“ ítrekar
Ólafur og nefnir sem dæmi gang-
ráðsísetningar og hjartaþræðing-
ar sem aðgerðir sem geti bjargað
lífi fólks.
Magnús Pétursson ríkissátta-
semjari segir ekki enn komið
fram nýtt efni sem gefi tilefni til
fundar.
„Auðvitað er verið að vinna í
þessu á öllum vígstöðvum. Það
finna allir til skyldunnar að leysa
þessa deilu, en það er efnið sem
ræður því hvort og hvenær er
boðað til fundar.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Nýrnaþegi liggur
inni á baðherbergi
Nýrnaþegi í einangrun var lagður inn á baðherbergi á deild 13-E. Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi landlæknir, segir svívirðilegt að öryggi sjúklinga sé ekki tryggt.
ÓBOÐLEG
SJÚKRAVIST
„Fæturnir
eru þar sem
klósettið er
og höfuðið
er þar sem
sturtan er,“
segir Hildur
Þóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
Það er
svívirðilegt,
nú er staðan
sú að sjúkling-
ar eru í
lífshættu
vegna þess að
ekki hefur verið samið.
Ólafur Ólafsson,
fyrrverandi landlæknir.
Sjúkrastofur á Landspítalanum eru það yfirfullar að
ekki er hægt að rýma deildir til að þrífa þær þegar
skæðir smitsjúkdómar koma upp. Tæpum þremur
vikum eftir að mósasmit kom upp á bráðalegudeild
hefur ekki enn tekist að klára viðeigandi þrif.
Fimm smit hafa komið upp á bráðalegudeildum
Landspítalans á þessu ári. Mósabakterían er skað-
leg þar sem hún er ónæm fyrir sýklalyfjum sem
gerir meðhöndlun erfiða. Þá er hún bráðsmitandi.
Rúmanýting á spítalanum hefur verið um hundrað
prósent á síðasta ári. Staðan er því sú að sjúklingar
liggja inni á deildum þó þar hafi komið upp smit.
„Við höfum ekki haft svigrúm til þess að tæma
deildirnar svo við höfum þurft að þrífa í áföngum,
sem er mjög þungt í vöfum. Þetta er erfitt fyrir sjúk-
lingana og starfsfólkið, líka bara upp á allt verklagið
sem tekur mun lengri tíma,“ sagði Hlíf Steingríms-
dóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs, í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Hlíf segir það áhyggjuefni hvað rúmanýtingin er
mikil og hversu lítið svigrúm gefst til að takast á við
svona uppákomur, sem verða endurtekið.
Að sögn starfsfólks á gangi sem nú er verið að þrífa
í áföngum er álagið mikið. Unnið er við að takmarka
útbreiðslu og uppræta smit. Sótthreinsa þarf gard-
ínur, rúmföt og borðbúnað og öllu því sem ekki er
innsiglað í plast er hent; bleyjum, bókum, blöðum
og svo framvegis. Því er bæði óhentugt og tímafrekt
fyrir starfsemina að geta ekki lokað deildinni og
klárað viðeigandi þrif. - þþo
Ekki hægt að rýma deildir til að þrífa þær
ÞJÓNUSTA Bónus var oftast með
lægsta verðið á ýmsum vöru-
tegundum sem í boði eru fyrir
jólahátíðina, eða í 77 tilvikum af
105. Verðlagseftirlit ASÍ gerði
verðkönnun á jólamatvöru í níu
matvöruverslunum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Oftast var á milli 25 og 50
prósenta verðmunur á hæsta og
lægsta verði. Krónan var ódýrust
í 10 tilvikum. Samkaup-Úrval
bauð upp á hæsta verðið í 32 til-
vikum og Iceland í Engihjalla var
með hæsta verðið í 27 tilvikum.
Mestur verðmunur var á ódýr-
ustu fersku jarðar berjunum en
þau voru dýrust á 3.495 krónur
hjá Hagkaupum en ódýrust á
1.709 kr. hjá Krónunni, verðmun-
urinn er 1.786 kr. eða 105 prósent.
- sa
Verðkönnun ASÍ:
Bónus með
lægsta verðið
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðis-
stofnun Norðurlands (HN) hefur
ráðið þrjá stjórnendur til starfa
við stofnunina. HN tók til starfa
1. október 2014 við sameiningu
heilbrigðisstofnana á Norður-
landi, allt frá Þingeyjarsýslum til
Blönduóss. Guðný Friðriksdóttir
hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri hjúkrunar, Örn Ragnarsson
framkvæmdastjóri lækninga við
stofnunina og Guðmundur Magn-
ússon framkvæmdastjóri fjár-
mála- og stoðþjónustu. - sa
Sameinuð heilbrigðisstofnun:
Þrír stjórnendur
ráðnir til HN
MOSFELLSBÆR Bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar samþykkti fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir árið 2015
á bæjarstjórnarfundi sínum í
gær. Gert er ráð fyrir óbreyttum
leikskólagjöldum á næsta ári og
hækkun á frístundaávísun um 10
prósent.
Gert er ráð fyrir jákvæðri
rekstrarniðurstöðu upp á 35
milljónir króna. Standa á vörð um
grunn- og velferðarþjónustu sem
veitt er af stofnunum bæjarins.
Laun starfsmanna bæjarins
munu hækka á árinu 2015 í kjöl-
far samninga við flesta starfs-
hópa sveitarfélagsins. „Starfsfólk
sveitarfélaga hefur setið eftir í
launahækkunum á síðustu árum
og það er vel að því komið að fá
kjör sín bætt,“ segir Haraldur
Sverrisson bæjarstjóri. - sa
Fjárhagsáætlun samþykkt:
Leikskólagjöld
haldast óbreytt
KÍNA Ansi óvenjulegt jólatré er að finna í verslunarmiðstöðinni Shen-
yang í Kína. Tréð er þrettán metra hátt og skreytt með tíu þúsund eld-
rauðum rósum. Það var evrópskur listamaður sem skreytti tréð og
hann er sagður hafa verið tíu sólarhringa að vinna verkið. - vh
Óvenjulegar jólaskreytingar í verslunarmiðstöð í Kína:
Tíu þúsund rósir prýða jólatréð
ELDRAUTT
Tréð er skreytt
með eldrauðum
rósum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
VIÐSKIPTI Þúsundir viðskiptavina
Íbúðalánasjóðs geta ekki greitt upp
lán sín eða endurfjármagnað þau
vegna uppgreiðslugjalds sem sjóð-
urinn gerir kröfu um og hleypur á
milljónum króna. Rætt hefur verið
um að bankarnir taki yfir lánasafn
sjóðsins. Alls eru 138 milljarðar
af útlánasafni Íbúðalánasjóðs með
uppgreiðslugjaldi og því er ljóst að
þúsundir viðskiptavina sjóðsins eru
með slík lán.
Fréttastofan hefur undir höndum
tölvupóstsamskipti viðskiptavinar
Íbúðalánasjóðs
v ið forstjóra
sjóðsins en þessi
viðskiptavinur er
fastur, getur ekki
endurfjármagn-
að lán sitt eða
stækkað við sig
þar sem Íbúða-
lánasjóður gerir
kröfu um hátt í
5 milljóna króna uppgreiðslugjald
á láninu, sem er næstum allt eigið
fé hans í íbúðinni. Umræddur við-
skiptavinur segir að sér líði eins og
í skuldafangelsi með þetta hang-
andi yfir sér.
Í tölvupóstum sem Sigurður Er-
lingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs,
sendi manninum segir að undir-
búningsvinna vegna þessa vanda
sé komin á bið. Úr póstum hans má
lesa að tillögur verkefnastjórnar
um framtíðarskipan húsnæðismála
sem starfaði á vettvangi félags-
málaráðuneytisins hafi ekki komið
með neinar lausnir á uppgreiðslu-
gjaldsvandanum. - þþ
Alls eru 138 milljarðar af útlánum Íbúðalánasjóðs með uppgreiðslugjaldi:
Fastir inni með lán sín hjá ÍLS
SIGURÐUR
ERLINGSSON