Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 8
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
MENNTUN Páll Winkel fangelsis-
málastjóri telur rétt að Fangelsis-
málastofnun sjái um námsráðgjöf
fyrir fanga í stað þess að hún sé á
borði Fjölbrautaskóla Suðurlands.
„Það er fullkomlega eðlilegt að
þetta sé inni á borði Fangelsis-
málastofnunar sem sér um starf-
semi allra fangelsa í landinu, sem
eru sex. Það er ekki bara eitt fang-
elsi. Við myndum gera okkur grein
fyrir því og myndum ekki skera
niður stöðu námsráðgjafa úr 100
prósentum í 50 prósent,“ segir Páll
Winkel spurður um málið.
Fjárskortur hefur valdið því
að staða námsráðgjafa fanga var
í haust skorin niður úr 100 pró-
sent starfsgildi í 50 prósent. Guð-
rún Kristjánsdóttir, aðferðafræði-
kennari við Háskóla Íslands, sagði
við Fréttablaðið fyrr í desember að
þetta hefði mikil áhrif á nám fang-
anna. Síðan greindi Fréttablaðið
frá því að Helga Lind Hjartardótt-
ir, námsráðgjafi við Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga, veitti föngum á
Kvíabryggju ráðgjöf í frítíma. „Ég
kem við hjá þeim á leiðinni heim
eftir vinnu,“ sagði Helga Lind við
Fréttablaðið.
Páll Winkel segir að áður en
staða námsráðgjafa hjá Fjölbrauta-
skóla Suðurlands var skorin niður
hafi hún gefið föngum mikið.
„Þetta er eitt það mikilvægasta
sem til er þegar verið er að tala
um að reyna að undirbúa fanga
undir það að fara út í samfélagið
aftur. Það er menntun og nám, í
hvaða formi sem það er,“ segir
hann. „Ég held að það séu allir
sammála um það, hvort sem það
eru starfsmenn í fangelsiskerfinu
eða fangar, að það þarf að tryggja
að lágmarki 100 prósent stöðu í
þetta verkefni,“ segir Páll.
Staða námsráðgjafa var rædd á
fundi allsherjar- og menntamála-
nefndar Alþingis í gær. Unnur Brá
Konráðsdóttir, formaður nefndar-
innar, segir að þingið hafi í gegn-
um tíðina samþykkt fjárveitingar
til að manna stöðuna.
„Svo er samningur við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands um að
sinna þessu verkefni og þess vegna
tel ég að það sé alveg ljóst að þessu
á að sinna af hálfu skólans,“ segir
Unnur Brá. Hún segir mikilvæg-
ast að innanríkisráðuneytið og
menntamálaráðuneytið fari saman
yfir það hvernig þessi þjónusta
verði tryggð til framtíðar. „En ég
er ekki fylgjandi því að taka þessa
fjármuni af fjölbrautaskólanum og
flytja þá til Fangelsismálastofnun-
ar, vegna þess að ég tel mikilvægt
að nota þá reynslu sem er komin á
hjá Fjölbrautaskóla Suðurlands og
nota þá beintengingu sem er komin
við menntakerfið,“ segir Unnur
Brá. jonhakon@frettabladid.is
Ráðgjafinn verði hjá
Fangelsismálastofnun
Forstjóri Fangelsismálastofnunar vill að námsráðgjafi starfi hjá stofnuninni og
sinni öllum sex fangelsunum á landinu. Tryggja þarf fjármagn fyrir þjónustunni.
„Þetta er ekki alveg einfalt. Það sem ég
óttast og gæti gerst er að þessi náms-
ráðgjafi gæti orðið fastur á skrifstofu í
Fangelsismálastofnun,“ segir Olga Lísa
Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, spurð að því hvað
henni finnist um það að námsráðgjafi
fanga yrði starfsmaður Fangelsismála-
stofnunar. „Það sem er lykilatriði er
samtal milli námsráðgjafa og nemenda.
Það er ekki hægt að afgreiða það nema
í beinu sambandi þessara aðila á milli. Ég óttast það
pínulítið að þetta yrði bara skrifstofustarf sem nýttist
föngunum lítið,“ segir Olga Lísa. Hins vegar yrði
starfsmaðurinn þá meira inni í öllu ákvarðanaferli
hjá stofnuninni. Til dæmis varðandi innritun þegar
fanginn kæmi inn. Ráðgjafinn tæki þá þátt í að finna
pláss fyrir fangann sem hentaði honum.
Olga Lísa segir að kostnaðurinn vegna þess náms
sem Fjölbrautaskólinn Suðurlands býður hafi hækkað,
vegna þess að föngum í námi hafi fjölgað mikið,
vegna þess að kennarar þurfi að keyra á milli staða
og bensín hafi hækkað í fyrra og vegna annarra
aðstæðna. Fjárveiting fyrir þeirri þjónustu sem var í
boði dugi ekki til og því hafi verið ákveðið að skera
niður stöðu námsráðgjafa.
Olga Lísa segir að þótt námsráðgjafinn færi til
Fangelsismálastofnunar mætti skólinn ekkert fjár-
magn missa. Krafan um verknám sé sífellt að aukast
og verknámið sé dýrara.
Námsráðgjafinn geti talað við fangana
LITLA-HRAUN Páll Winkel fangelsismálastjóri segir menntun mikilvæga fyrir betrun fanga. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
UNNUR BRÁ
KONRÁÐSDÓTTIR
PÁLL
WINKEL
OLGA LÍSA
GARÐARSDÓTTIR
1. Hversu mörgum sýrlenskum fl ótta-
mönnum bjargaði áhöfn varðskipsins
Týs?
2. Hversu margir ferkílómetrar hafa
verið ræstir fram hér á landi?
3. Hvar spilar körfuboltakonan Hel-
ena Sverrisdóttir?
VEISTU SVARIÐ
1. 408 manns
2. 3.900 ferkílómetrar
3. Polkowice í Póllandi
EFNAHAGSMÁL Greiningardeild-
ir allra þriggja viðskiptabank-
anna og IFS greiningar telja að
tólf mánaða verðbólga fari undir
neðri þolmörk Seðlabankans í
desember. Hagstofa Íslands birt-
ir verðbólgutölur 19. desember.
Gangi þetta eftir mun Seðla-
bankinn þurfa að birta greinar-
gerð um ástæður fyrir lítilli verð-
bólgu og úrbætur í þeim efnum.
Verðbólgumarkmið Seðlabankans
er 2,5 prósent og eru þolmörkin
1,5 prósent. Samkvæmt mælingu
Hagstofunnar var verðbólgan eitt
prósent í nóvember.
Greining Íslandsbanka spáir
því að vísitala neysluverðs hækki
um 0,3 prósent í desembermán-
uði frá mánuðinum á undan. Tólf
mánaða verðbólga hjaðni úr 1,0
prósenti í 0,8 prósent.
IFS greining, greiningardeild
Arion banka og hagfræðideild
Landsbankans spá því hins vegar
allar að neysluverðsvísitalan í
desember hækki um 0,2 prósent
og tólf mánaða verðbólga fari
niður í 0,7 prósent. Samkvæmt
þeirri spá yrði ársverðbólgan sú
lægsta í um tvo áratugi eða síðan
í desember árið 1994.
Bráðabirgðaspá hagfræðideild-
ar Landsbankans gerir ráð fyrir
0,3 prósenta lækkun neysluverðs-
vísitölu í janúar, 0,2 prósenta
hækkun febrúar og 0,2 prósenta
hækkun í mars á næsta ári.
Gangi spáin eftir verður tólf
mánaða verðbólgan 0,6 prósent
í mars.
- jhh
Fari verðbólgan undir þolmörk mun Seðlabankinn birta greinargerð um ástæður þess og úrbætur:
Spá því að verðbólgan fari undir þolmörk
Í SEÐLABANKANUM Þeir Már Guð-
mundsson og Arnór Sighvatsson þurfa
að gera grein fyrir afstöðu Seðlabank-
ans ef verðbólgan fer undir eitt prósent.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VEISTU SVARIÐ?