Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 14
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
í síðasta mánuði hafi hins vegar
allir bankarnir nýtt tækifærið til
að auka enn mun á útláns- og inn-
lánsvöxtum.
VR setur spurningarmerki við
forsendur bankanna þegar ákveð-
ið var að auka vaxtamuninn. „Það
er erfitt að sjá að það hafi verið
í þágu okkar viðskiptavinanna.
Fyrirheit um aukinn kaupmátt
launafólks verða að engu þegar
bankarnir geta með einu penna-
striki tekið ávinning vaxtalækk-
ana til sín á þennan hátt,“ skrifar
formaður VR.
olikr@frettabladid.is
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3
ellingsen.is
Munið
gjafabréfi
n!
DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR
Blátt og rautt, stærðir 10–16
7.990 KR.
Jólagjöfin fæst
í Ellingsen
DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR
Blátt og rautt, stærðir 10–16
7.990 KR.
DEVOLD POLAR BABY
Blátt og bleikt, stærðir 74–98
13.990 KR.
Hlýjar
jólagjafir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
4
1
5
9
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Nú er vetur!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
S805-2Y 110cm
ál snjóskófla
1.990
S805-10D 135cm
ál snjóskófla
2.495
S805-4L 170CM
ál snjóskafa
1.990
Rúðuskafa
190
Hálkusalt 5 kg
590
Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar
745
VIÐSKIPTI Munur á innláns- og
útlánsvöxtum stóru viðskipta-
bankanna þriggja hefur aukist
um leið og stýrivextir Seðlabank-
ans hafa lækkað. Á þetta er bent í
fréttabréfi VR. Stýrivextir Seðla-
bankans voru lækkaðir um 0,25
prósentustig 5. nóvember síðast-
liðinn. Núna á miðvikudaginn var
svo kynnt önnur vaxtalækkun, að
þessu sinni um 0,5 prósentustig.
„Stóru við-
skiptabank-
arnir þrír hafa
nú allir lækk-
að vexti sína í
kjölfar ákvörð-
unar Seðla-
bankans um að
lækka stýrivexti
í byrjun nóvem-
ber. Það er gott
og blessað,“ skrifar Ólafía B. Rafns-
dóttir, formaður VR í fréttabréfinu.
„En bankarnir gripu hins vegar
tækifærið og juku vaxtamuninn
– innlán skila nú minni ávinningi
og útlán lækka ekki eins mikið og
efni standa til. Afleiðingarnar eru
þær að heimilin í landinu verða af
hundruðum milljóna króna.“
Í fréttabréfinu er sagt
að vænta megi breyt-
inga á vaxtatöflum
viðskiptabankanna
í kjölfar breytinga
á stýrivöxtum, sem
í nóvemberbyrjun
höfðu verið óbreyttir
í tvö ár. Það hafi geng-
ið eftir með því að bæði
innláns- og útlánsvextir allra stóru
bankanna þriggja hafi lækkað
þegar líða tók á mánuðinn.
„Það vekur hins vegar óneitan-
lega athygli að innláns- og útláns-
vextir tóku ekki sömu breytingum.
Þannig lækkuðu innlánsvextir um
0,3 prósentustig hjá Arion banka
en útlánsvextir aðeins um 0,2 pró-
sentustig. Hið sama er uppi á ten-
ingnum hjá Landsbankanum, þar
lækkuðu innlánsvextir um 0,25
prósentustig en útlánsvextir aðeins
um 0,15 prósentustig. Íslandsbanki
lækkaði vexti á innlánum sínum
um 0,3 prósentustig og útlánsvexti
um 0,25 prósentustig.“
Ólafía segir hagfræðing VR hafa
reiknað út áhrifin af breytingun-
um. „Tekjur bankanna aukast um
tæplega milljarð króna vegna þess-
ara breytinga, gróflega áætlað,“
segir hún og bendir um leið á að
samkvæmt áætlun Seðlabankans
sé um þriðjungur inn- og útlána
bankanna til heimilanna í landinu.
Um leið er í fréttabréfinu bent
á að vextir bankanna hafi tekið
breytingum þótt stýrivextir Seðla-
bankans hafi haldist óbreyttir.
„Vaxtamunur Arion banka
hefur til að mynda
aukist um 0,20
prósent bara á
árinu 2014, hjá
Landsbankan-
um og Íslands-
banka hefur
hann aukist um
0,15 prósent.“ Við
lækkun stýrivaxta
ÓLAFÍA B.
RAFNSDÓTTIR
VAXTAÁKVÖRÐUNARFUNDUR Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og
Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynna vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í
Seðlabankanum á miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Aukinn vaxtamunur eykur
tekjur bankanna um milljarð
Þegar Seðlabanki Íslands hóf lækkun stýrivaxta í síðasta mánuði breyttu viðskiptabankarnir þrír vaxtatöflum
sínum þannig að munur jókst á vöxtum inn- og útlána. Taka til sín hluta ávinnings vaxtalækkana, segir VR.
Banki Breyting
Arion banki +0,10%
Landsbankinn +0,10%
Íslandsbanki +0,05%
Heimild: Fréttabréf VR
VAXTAMUNUR
ORKUMÁL Stefnt er að því að taka nýjan
heitavatnstank á Akranesi í notkun á næstu
vikum. Ástæða byggingar tanksins er að
heitavatnslögn frá Deildartunguhver er
komin til ára sinna og bilar reglulega.
Síðast bilaði aðveituæðin í kjölfar vinnu
við að tengja nýja heitavatnstankinn inn á
veitukerfi bæjarins í byrjun desember. „Eftir
fyrri tengivinnuna komu upp tvær mjög
bagalegar bilanir með harkalegum afleið-
ingum fyrir íbúa í bænum. Það var heita-
vatnslaust í allt að sólarhring,“ segir Eiríkur
Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu
Reykjavíkur.
Heitavatnstankurinn sem tekinn verður í
notkun er 6.200 rúmmetrar að stærð en fyrir
er heitavatnstankur í bænum sem tekur 2.000
rúmmetra af heitu vatni. „Nýi tankurinn
gefur okkur aukið svigrúm til viðgerða. Frá
því að heita vatnið endist í fjóra klukkutíma
og upp í fjórtán klukkutíma við eðlilega notk-
un,“ segir Eiríkur.
Langan tíma mun taka að koma aðveitu-
æðinni frá Deildartunguhver í lag að sögn
Eiríks. „Við erum að endurnýja lögnina smátt
og smátt. Þetta er lengsta hitaveitulögn á
landinu og það mun taka áratug að endurnýja
hana alla,“ segir Eiríkur. - ih
Brugðist við tíðum bilunum í heitavatnslögn frá Deildartunguhver sem komin er til ára sinna:
Nýr vatnstankur senn í notkun á Akranesi
VATNSTANKAR Nýi heitavatnstankurinn á að auka
svigrúm fyrir starfsmenn Orkuveitunnar til að bregð-
ast við bilunum. MYND/EIRÍKUR HJÁLMARSSON
HEILBRIGÐISMÁL Rauði krossinn á
Íslandi fagnaði níutíu ára afmæli
sínu á miðvikudaginn. Af því til-
efni afhenti Fastus ehf. Rauða
krossinum sjö nýja sjúkrabíla
sem verða teknir í notkun á næstu
vikum. Fastus flutti bílana inn til
landsins.
Sjúkrabílarnir sjö eru af gerð-
inni Mercedes Benz Sprint er og
voru sérstaklega innréttaðir sem
sjúkrabílar af fyrirtækinu BAUS
AT í Póllandi.
Öll aðstaða inni í bílunum er
þannig úr garði gerð að sjúkra-
flutningamenn geta athafnað sig og
sinnt sjúklingum með sem bestum
hætti.
Meðal þeirra sem voru viðstadd-
ir afhendinguna voru Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, pólski
sendiherrann Lech Mast alerz, Her-
mann Ottósson, framkvæmdastjóri
Rauða krossins, Sveinn Krist-
insson, stjórnarformaður Rauða
krossins, Robert Krolikowski frá
BAUS AT og Bergþóra Þorkelsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Fastus. - ih
Rauði krossinn á Íslandi hélt upp á 90 ára afmæli:
Fengu nýja sjúkrabíla
NÝIR BÍLAR
Sjúkrabílarnir
sjö verða teknir í
notkun á næstu
vikum.
MYND/RAUÐI KROSSINN