Fréttablaðið - 12.12.2014, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 12. desember 2014 | SKOÐUN | 27
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Mig langar til að gefa ríkis-
stjórninni „high five“. Aldrei
þessu vant gerði hún eitthvað
sem olli litlum sem engum
usla, eitthvað sem keppir ekki
við afturendann á Kim Kar-
dashian um að leggja internetið
á hliðina.
Fáir æstu sig yfir skipun
Ólafar Nordal sem innanríkis-
ráðherra í síðustu viku. Allir
virtust frekar sáttir ef undan
eru skilin einstaka harma-
kvein gamalla flokksjálka sem
héldu að lýðræðið virkaði eins
og röðin á Bæjarins bestu, ef
maður stæði nógu lengi í henni
hlotnaðist manni að endingu
ein með öllu. Öllum að óvörum
barst hins vegar kaldur efa-
semdastrekkingur úr óvænt-
ustu átt.
Brjóstaskoran á Clinton
Fjöldi langþreyttra karlmanna
mun andvarpa af armæðu ofan
í morgunkaffið sitt yfir eftir-
farandi yfirlýsingu: Það er ekki
tekið út með sældinni að vera
kona í stjórnmálum. Byrja þess-
ar kerlingar að væla. En þetta
er einfaldlega staðreynd. Fjöldi
rannsókna sýnir að konur eiga
erfiðara uppdráttar í stjórnmál-
um en karlar.
Í kjölfar forsetakosninganna
í Bandaríkjunum árið 2008
var gerð rannsókn við Johns
Hopkins-háskólann á umfjöll-
un um frambjóðendur til þessa
æðsta embættis þar í landi frá
því fyrsta konan gaf kost á
sér í stöðuna árið 1872. Sam-
kvæmt rannsókninni er ekki
aðeins fjallað að jafnaði tvisv-
ar sinnum meira um karlfram-
bjóðendur en kvenframbjóð-
endur í fjölmiðlum heldur er sú
umfjöllun sem kvenframbjóð-
endur fá oftar gagnrýnin og
háðsleg en í tilfellum karlanna.
Konurnar eru sagðar óprakt-
ískur kostur, jafnvel vanhæf-
ar. Þrisvar sinnum meira pláss
fer í að lýsa fjölskylduhögum
þeirra og útliti. Algengara er
að dregnar séu upp af þeim
staðal ímyndir og þær sagðar
þjást af skapsveiflum. Meiri
líkur eru á að aldur þeirra sé
tilgreindur en starfstitli þeirra
sleppt. Aðeins 16% umfjöllun-
arinnar um konur tengjast mál-
efnum sem þær standa fyrir
miðað við 27% umfjöllunarinn-
ar um karlmenn. Það sem er
mest sláandi er að lítil breyt-
ing hefur orðið á málum síðan
1872.
Hillary Clinton sem nú er
sögð íhuga framboð til for-
seta Bandaríkjanna öðru sinni
hefur ekki farið varhluta af
þessu heilkenni. Er hún kljáðist
við Barack Obama um að verða
forsetaframbjóðandi demó-
krata í kosningunum 2008 birti
hið virta dagblað Washington
Post ýtarlega grein um brjósta-
skoruna á henni sem hafði
sést glitta í við störf hennar
sem öldungadeildarþingmað-
ur. Einn vinsælasti útvarps-
maður Bandaríkjanna spurði
landa sína að því hvort þeir
vildu í alvörunni þurfa að horfa
upp á konu eldast fyrir augum
þeirra. Og nú hafa fjölmiðlar
þar vestra neglt ástæðuna fyrir
því af hverju Hillary Clinton
ætti ekki að sækjast eftir því
að verða forseti árið 2016.
Chelsea Clinton, dóttir þeirra
Hillary og Bills Clinton, hafði
ekki fyrr tilkynnt um að hún og
maður hennar ættu von á barni
í apríl síðastliðnum en fýluleg-
um fyrirsögnum aftan úr forn-
eskju rigndi yfir 21. öldina.
Amma! Hvernig getur amma
verið forseti? Hún á að vera að
sinna barnabarninu. Enginn
virtist þó velta fyrir sér hvort
Jeb Bush, líklegur forsetafram-
bjóðandi repúblikana, hefði
tíma til að sinna forsetaemb-
ættinu þótt hann væri afi.
Hvernig gengur heyskapurinn?
„Hafðir þú engar áhyggjur af
því að þú hefðir ekki nægt þrek
í starfið?“ spurði blaðamaður
Morgunblaðsins Ólöfu Nordal
eftir að hún tók við lyklavöld-
um í innanríkisráðuneytinu en
Ólöf sigraðist nýverið á illvíg-
um veikindum. „Ég hefði, eins
og ég sagði, aldrei fallist á að
gera þetta, ef ég héldi ekki að ég
réði við verkefnið,“ svarar Ólöf.
Næsta spurning blaðamanns er
eins og löðrungur alla leið frá
myrkustu miðöldum. „Eigin-
maður þinn, Tómas Már Sigurðs-
son, einn af æðstu stjórnendum
Alcoa, er væntanlega á þönum
um allan heim, starfs síns vegna.
Þið eigið fjögur börn, fædd á
árunum 1991 til 2004. Hvernig
í ósköpunum ætlið þið að púsla
þessu öllu saman, eftir að þú ert
orðin innanríkisráðherra?“
Halló. Eru þetta Hádegismó-
ar? Sautjánhundruð og súrkál
hringdi og vildi fá spurninguna
sína til baka.
Spurning blaðamanns er
álíka mikið í takt við tímana og
hefði hann spurt Ólöfu hvernig
heyskapurinn gengi. Nú, ertu
ekki í heyskap? Ó, en hvern-
ig fóðrar þú þá skepnurnar?
Engar skepnur? Hvaðan kemur
þá mjólkin og kjötið? Bónus?
Hvað er það? En þú hlýtur að
vera farin að undirbúa að taka
slátrið.
Blaðamönnum er auðvitað
frjálst að spyrja viðmælendur
sína að hverju sem þeir telja
mikilvægt eða veki áhuga les-
enda. Sannleikurinn er hins
vegar sá að karlmaður hefði
aldrei verið spurður sömu
spurningar.
Um leið og ég gef ríkisstjórn-
inni umrætt „high five“ langar
mig til að leggja fyrir karl-
mennina í henni spurninguna
sem allir telja sig vita svarið
við: Hvernig gengur að vera
bæði ráðherra og pabbi? Geng-
ur það ekki bara fínt?
Okkur hin vil ég spyrja: Væri
því eitthvað öðruvísi farið ef
væru þeir konur?
Byrja þessar kerlingar að væla
Allir virtust frekar sáttir ef
undan eru skilin einstaka
harmakvein gamalla flokks-
jálka sem héldu að lýðræðið
virkaði eins og röðin á
Bæjarins bestu, ef maður
stæði nógu lengi í henni
hlotnaðist manni að end-
ingu ein með öllu. Öllum
að óvörum barst hins vegar
kaldur efasemdastrekkingur
úr óvæntustu átt.
Nú eru jólasveinar farn-
ir að koma til byggða
með ýmislegt spennandi
í skóinn fyrir börnin. Við
Íslendingar látum okkur
ekki nægja einn jólasvein
– eins og flestar þjóðir
gera – heldur 13 sem koma
einn af öðrum. Það hljóta
að fylgja þessu gjafa-
stússi mikil útgjöld á jóla-
sveinaheimilinu. Það virð-
ist einnig hafa orðið mikil
gjafabóla hjá jólasveinum
undanfarin ár eða áratugi,
þar sem hér á árum áður
voru gjafir mun minni.
Þá fengu krakkar gjarnan
ávöxt og kannski örlítið sælgæti
um helgar. Svo virðast jólasveinar
líka mismuna börnum frekar nú en
áður fyrr, þar sem sum barnanna
fá mjög dýrar og stórar gjafir, sem
komast jafnvel ekki í neina skó, á
meðan önnur fá litlar gjafir. Kæru
jólasveinar, ég hef áður skrifað
ykkur bréf og bent ykkur á að sam-
kvæmt barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna má ekki mismuna börn-
um vegna stöðu þeirra eða foreldra
þeirra. Mig langar að benda ykkur
á að það væri kannski skynsam-
legt að koma á samvinnu við for-
eldrafélög í leikskólum og grunn-
skólum um að setja einhver viðmið
um gjafir frá ykkur, því börn tala
saman og bera sig saman.
Samt er það svo að dýrmæt-
ustu gjafirnar fara ekki í skó. Þær
eru endingargóðar og einstaklega
umhverfisvænar. Þær enda ekki í
ruslinu eftir jólin, þær þarf ekki
einu sinni að endurvinna. Þær
munu endast börnunum alla ævi
og vaxa og dafna hjá barninu með
tímanum. Þessar gjafir stuðla að
auknum þroska og bættri sjálfs-
mynd barnanna. Þetta eru dýrmæt
þroska leikföng, en kosta samt sára-
lítið sem ekkert. Ég veit, kæru jóla-
sveinar, að það er erfitt fyrir ykkur
að gefa börnunum þessar gjafir
sjálfir, en þið getið ef til vill gert
samning við foreldra barnanna.
Stærstu og bestu gjafirnar
Stærstu og bestu gjafirnar sem
börnin fá er tími með foreldrum
sínum og fjölskyldu, umhyggja,
gleði, umburðarlyndi, samvera
og samtal, vinátta, virðing, hrós,
bros, faðmlag, uppörvun,
stuðningur, kærleikur, að
spila saman, lesa saman,
baka saman, horfa á jóla-
mynd saman, taka til
saman (og taka kannski
aðeins minna til), bjóða
vinum heim og svo mætti
lengi telja. Þessar gjafir fást
ekki fyrir peninga en eru afar
endingar góðar og mikilvægt inn-
legg í andlega velferð barnanna
til framtíðar. Þessar gjafir byggja
upp sjálfsmynd og sterkan einstak-
ling. Með því að gefa þessar dýr-
mætu gjafir er þar að auki verið
að tryggja að börn njóti þeirra
réttinda sem þau eiga samkvæmt
Barnasáttmálanum. Samkvæmt
honum eiga börn rétt á umhyggju
og vernd, að njóta leiðsagnar og
stuðnings foreldra sinna og að
umgangast þá báða. Þau eiga rétt á
að lifa og þroskast, líkamlega, and-
lega og félagslega. Til þess þurfa
þau ekki síst að hafa tækifæri til
að byggja upp sterka sjálfsmynd,
njóta samveru og hvatningar. Þau
þurfa líka að læra að meta það
sem þau eiga og fá. Börn eiga hins
vegar ekki rétt á að öðlast allt það
sem hugurinn girnist og að allar
þeirra óskir séu uppfylltar. Slíkt
getur flokkast sem ofdekur og í
raun er ofdekur ein birtingarmynd
vanrækslu, sem enginn vill gerast
sekur um.
Kæru jólasveinar. Þið megið
líka hugsa til barna sem lenda í
einelti og styðja verkefni sem miða
að því að koma í veg fyrir einelti.
Með því að fara inn á jolapeysan.is
getið þið styrkt Vináttu, forvarn-
arverkefni Barnaheilla – Save the
Children á Íslandi gegn einelti í
leikskólum, en þangað má gjarn-
an rekja rætur eineltis.
Við hjá Barnaheillum óskum
ykkur að lokum gleðilegra jóla,
með von um að hátíðin muni færa
ykkur gleði, frið og samveru.
Orðsending
til jólasveina
SAMFÉLAG
Margrét Júlía
Rafnsdóttir
verkefnastjóri
innlendra verkefna
hjá Barnaheillum–
Save the Children á
Íslandi
Falleg bók sem á að vera til á hverju heimili
Sími 512 7575 Borgartúni 23 105 Reykjavík heimur@heimur.is www.heimur.is
llar helstu þjóðsögurnar úr safni Jóns
Árnasonar er nú loks fáanlegar í fallegri
bók. Söguhetjurnar mæta ljóslifandi til leiks
á teikningum Freydísar Kristjánsdóttur.
Sæmundur fróði, Búkolla, Bakkabræður,
djákninn á Myrká, Gilitrutt, Galdra-Loftur
og aðrir gamlir kunningjar bíða þess að
kynnast nýrri kynslóð.
➜ Kæru jólasveinar.
Þið megið líka hugsa
til barna sem lenda í
einelti og styðja verk-
efni sem miða að því
að koma í veg fyrir
einelti.