Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 44
6 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
Bryndís Hákonardóttir segir augun vera glugga
að innra ástandi líkamans.
V
iðskiptafræðingurinn Bryndís Hákonardótt-
ir venti kvæði sínu í kross fyrir tæplega tíu
árum þegar hún flutti með eiginmanni sínum
og þremur börnum til Danmerkur. Við kom-
una þangað ákvað hún að skipta algerlega
um starfsvettvang og hóf nám í næringarþerapíu við
Center for Ernæring og Terapi í Kaupmannahöfn.
„Ástæðan fyrir því að ég ákvað að breyta um stefnu
í lífinu var aðallega sú að eftir að ég eignaðist mitt
fyrsta barn þá byrjaði ég að fá ofnæmi. Fyrst voru það
ákveðin frjókorn sem ég hafði ofnæmi fyrir, en svo
fór ég að fá ofnæmi fyrir hinum ýmsu matvörum og
þá helst flestum ávöxtum og hnetum en einnig dýrum.
Ég hafði lengi haft mikinn áhuga á mataræði og verið
svolítið að kafa í þau fræði sjálf. Auk þess sem ég
stundaði námi í CET tók ég líffærafræði, lífeðlisfræði
og meinafræði hjá Skolen for Alternativ Terapi,“ segir
Bryndís.
Lausnina að finna í mataræðinu
Að námi loknu starfaði Bryndís sem næringarþerap-
isti hjá fyrirtækinu ITK2 í Kaupmannahöfn þar sem
hún hjálpaði veiku fólki að komast aftur út á vinnu-
markaðinn og í dag á hún og rekur sitt eigið fyrir-
tæki, Your Body Knows. „Eftir að hafa unnið hjá
ITK2 í þrjú ár ákvað ég að stofna mitt eigið fyrirtæki
og býð þar upp á næringarráðgjöf, fyrirlestra, de-
tox-námskeið, lithimnulestur og fleira því tengt, bæði
hér í Danmörku og á Íslandi.“ Hún segir marga kljást
við misalvarlega lífsstílssjúkdóma í dag og magn-
ið af næringarsnauðum mat í boði of mikið. „Ég
tel mataræðið vera mun einfaldara en við
þorum að trúa. Í stað þess að telja hitaein-
ingar eða vera að spá í prótein-, fitu- eða
kolvetnahlutfall fæðunnar, munu allir
njóta góðs af því að borða meira af
náttúrulegri, safaríkri og lífrænni
fæðu. Það er svo margt sem hefur
neikvæð áhrif á líf okkar í dag;
við borðum meira af skyndibit-
um og unnum næringarlaus-
um matvörum en við höfum
nokkurn tíma gert, drekk-
um meira af gosdrykkjum,
áfengum drykkjum og borð-
um meira sælgæti. Svo eru
verslanir á hverju horni í
dag og margar hverjar opnar
allan sólarhringinn. Við lifum
mjög hreyfingarsnauðu, en þó
hröðu og oft stressuðu lífi, með
of litlum svefni og erum oft og
tíðum með daglegar áhyggjur
og samviskubit sem hafa áhrif á
okkur. Allt þetta hefur mikil áhrif
á heilsuna og getur verið orsök þess
að margir þjást af ýmsum lífsstíls-
sjúkdómum,“ segir Bryndís og bætir
við að oft sé ekkert gert í málunum fyrr
en vandamálið er orðið alvarlegt og þá þarf
oft að gera miklar breytingar á lífsstílnum
sem krefjast mikils aga og það gæti tekið líkam-
ann langan tíma að finna jafnvægið að nýju.
Augun gluggar að innra ástandi
Fyrir mörgum árum fór Bryndís í krossbandaað-
gerð en náði sér aldrei að fullu og leitaði sér því hjálp-
ar hjá óhefðbundnum lækni sem systir hennar benti á.
„Hann byrjaði á því að kíkja í augun á mér og sagði:
„Uss, þessi aðgerð á hnénu á þér er mjög illa gerð, en
ég get hjálpað þér.“ Það að hann hafi séð vandamálið í
augunum og virkilega hjálpað mér, vakti áhuga minn
á þessum fræðum.“ Fljótlega eftir þessa heimsókn
skellti Bryndís sér í nám í lithimnufræðum í Englandi
og það var þá sem að hún fór að skilja betur sitt innra
ástand. „Ég hélt alltaf að ég væri í ágætis málum þar
sem ég taldi mig lifa nokkuð heilbrigðu lífi, en það var
ekki alveg það sem augun endurspegluðu. Eftir að ég
lærði þessi fræði og breytti lífsstílnum, fór ég að finna
mikinn mun á öllu ofnæmi sem ég var með. Ég gat
ekki einu sinni skorið epli ofan í börnin mín hér áður
fyrr, án þess að fá bólgin augu. Í dag borða ég epli og
MARGIR ÞJÁST AF
ÝMSUM LÍFSSTÍLS-
SJÚKDÓMUM
Bryndís Hákonardóttir menntaði sig í viðskiptum en eftir að hafa opnað
augun fyrir mikilvægi góðrar heilsu ákvað hún að breyta til. Hún fluttist
með fjölskyldunni til Danmerkur til þess að læra næringarþerapíu
oft mörg á dag án þess að finna fyrir votti af ofnæmi,“
segir hún og bætir við að námið hafi hjálpað henni að
skilja betur hvernig líkaminn starfar og hvaða áhrif
fæðan og andlegt áreiti hefur á okkur.
Með lithimnugreiningu er mynstrið í lithimnu ein-
staklingsins greint en himnan er eins og fingrafarið
okkar, eins ólíkt og við erum mörg.
„Það má segja að augun séu gluggar að innra
ástandi líkamans. Miðtaugakerfi líkamans er tengt
öllum líffærum, líkamskerfum og öðrum svæðum í
líkamanum og sjóntaug augans er tengd miðtauga-
kerfinu og tekur við upplýsingum um stöðu líkam-
ans.“ Bryndís segir greininguna þó ekki sjúkdóms-
greiningu í sjálfu sér heldur sýni hún ástand líffæra
og líkamskerfa, uppsöfnun úrgangsefna, bólgumynd-
anir og upptöku næringarefna svo dæmi séu tekin.
„Lithimnulesturinn hefur oft hjálpað mér að sjá rót
vandans og þannig gefið mér færi á að gefa skjólstæð-
ingum mínum mjög hnitmiðaðar ráðleggingar til að
bæta eigin heilsu,“ segir Bryndís og bætir við að skjól-
stæðingurinn fái betri skilning á ástandinu og það
hjálpi honum að takast á við það af meiri alvöru því
heilsuna þurfi að skoða út frá mörgum sjónarhornum.
HOLLAR OG GÓÐAR
BANANAPÖNNUKÖKUR
(12-15 PÖNNUKÖKUR)
3 bananar, vel stappaðir
3 egg, hrærð saman í djúpri skál
1 tsk. kanill
örlítið salt (má sleppa)
Stöppuðu banönunum, kanilnum, og saltinu er
hrært saman við eggin og þá er deigið tilbúið.
Notið smjör eða kókosolíu á pönnuna, setjið tvær
matskeiðar af blöndunni í hverja pönnuköku og
steikið á pönnu á báðum hliðum þar til þær eru
orðnar fallega gylltar. Það getur verið smá galdur
að snúa þeim við, en þið komist fljótt upp á lagið
með það. Pönnukökurnar eru æðislegar einar sér
en líka með smjöri, ávöxtum eða smá hlynsírópi.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins
„Ég hélt alltaf að ég væri í ágætis
málum þar sem ég taldi mig lifa
heilbrigðu lífi, en það var ekki það
sem augun endurspegluðu.“
100% hreinar
Eggjahvítur
Fjölvítamín frá náttúrunnar hendi
Án allra aukaefna!
Gerilsneyddu eggjahvíturnar
eru frábær valkostur í jólabaksturinn.
Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbúeggjum.
Ís
le
ns
k framleiðsla
Heilsuvísir