Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 46
8 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson bjó til
þetta girnilega humarsalat í þættinum
Eldhúsið hans Eyþórs í gærkvöldi. Rétturinn
er tilvalinn um hátíðarnar.
● 50 g majónes
● 50 g sýrður rjómi
● 500 g humar í skel, um
200 g pillaður humar
● 1 grænt epli, skrælt
og skorið í litla kubba
● Safi úr ½ sítrónu
● ½ hvítlauksrif, fínt
rifið
● 1 msk. skorið dill
ólífuolía til
steikingar
● Sjávarsalt
● Hvítur pipar úr
kvörn.
Steikið humarinn upp úr ólífu-
olíunni og kryddið með saltinu
og piparnum. Kælið humarinn.
Blandið saman majónesinu,
sítrónusafanum og hvítlauknum.
Smakkið blönduna til með saltinu.
Skerið humarinn niður í bita og bætið
út í blönduna með eplunum og dillinu.
Smakkið til með salti og pipar eftir smekk.
Grillaður smáaspas
● 16 stk. smáaspas
● 4 msk. ólífuolía
● Sjávarsalt
● Svartur pipar úr kvörn
Setjið aspasinn í eldfast mót,
hellið ólífuolíunni yfir hann
og veltið honum vel upp
úr olíunni. Setjið asp-
asinn á heita grill-
pönnu og grill-
ið í tvær mínútur á
hvorri hlið. Krydd-
ið með sjávarsalti
og svörtum pipar
úr kvörn.
● Smjördeigs
botn
● 1 plata Myllu-
smjördeig
● Hvítlauksolía
● Sjávarsalt
Hitið ofninn upp í 220
gráður. Skerið plötuna í fjóra
bita. Penslið smjördeigið með hvít-
lauksolíu báðum megin. Setjið á bökun-
arplötu með smjörpappír í botninum og svo aðra plötu
yfir. Bakið í 10-15 mínútur.
HUMARSALAT Á SMJÖRDEIGS-
BOTNI MEÐ GRILLUÐUM
ASPAS OG SÍTRÓNU
Lífið fékk Sigurlaugu
Dröfn Bjarnadóttur, eða
Sillu eins og hún er köll-
uð, til þess að koma með
hugmyndir að fallegri
jólaförðun. Silla lærði
förðun árið 2010 og
hefur meðal annars
farið á framhaldsnám-
skeið í Los Angeles en
þar sérhæfði hún sig
í beauty-förðun. Í dag
er hún annar eigandi
og kennari í Reykja-
vík Makeup School
sem var opnaður fyrr
á þessu ári en skólinn
hefur fengið frábær-
ar viðtökur og öll nám-
skeið fyllast fljótt.
„Mér finnst alltaf
flott að gera smá extra
glamúr í hátíðarförð-
un, jólaförðun fyrir mér
er mikið highligt, san-
seraðir augnskuggar, eye-
dust, rauðar varir eða varir
í dökkum litum. Mér finnst
það alltaf voða sparilegt. Það
sem er í algjöru uppáhaldi
hjá mér núna eru augnskugg-
ar í rústrauðum/burgundy tónum,
finnst ótrúlega fallegt að nota þá
með í skyggingar og blanda þeim upp
á augnbeinið,“ segir Silla.
Ég notaði fljótandi farða frá Makeup
Store sem heitir liquid foundation. Flott
er að bera farðann á með svampi, til dæmis
frá Real Techniques, eða beauty blender. Gæta
þarf þess að svampurinn þarf að vera rakur þegar
hann er notaður. Ég nota alltaf bursta fyrst og síðan
svamp yfir til að fullkomna áferðina.
Yfir set ég svo alltaf wonder powder frá Makeup
Store í öllum mínum förðunum en það gefur svo fal-
legan ljóma. Kinnaliturinn er frá sömu verslun og
heitir rosso verona. Til þess að lýsa upp andlitið og
móta notaði ég svo highligt-stifti frá NARS sem heit-
ir Orgasm, reflex cover frá Makeup Store undir augun
og matt sólarpúður.
Ég notaði augnskugga frá L’oreal sem heitir sahara
treasure beint á augnlokið og smá sparkle-eyedust
yfir frá Makeup, síðan skyggði ég með þremur litum
frá Makeup Store en þeir heita rosso asiago, louder og
spirit. Þetta eru nýir litir frá þeim, ekkert smá flott-
ir. Mér finnst alltaf fallegt að setja felu-eyeliner í efri
vatnslínu til þess að þétta augnhárin og skerpa á lín-
unni. Til þess að toppa svo augnförðunina og glam-
úrlúkkið notaði ég ný augnahár frá Tanya Burr sem
heita girls night out. Augabrúnirnar gerði ég svo
með Anastasia Beverly Hills Dipbrow í lit sem heit-
ir chocolate.
Eitt ráð til þess að fá varalitinn til að haldast á sem
lengst er að byrja á því að móta varirnar og setja vara-
blýantinn yfir allar varirnar. Síðan setja varalitinn
yfir, þá helst hann betur á og gefur meiri þekju.
Hárið gerði ég svo með HH Simonsen-járni sem
heitir ROD 4 en það er eitt af mínum uppáhalds frá
þeim, þetta er breitt keilujárn sem gerir frekar stóra
liði. Sjúklega flott, dálítið svona Beyoncé-hár. Svo not-
aði ég texturising volume spray frá label.m í rótina en
það gefur þvílíkt gott hald og lyftingu.
FALLEG HÁTÍÐARFÖRÐUN
GLAMÚR UM JÓLIN
Silla, eigandi Reykjavik Makeup School, sýnir réttu handtökin
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
blaðamaður
Sigurlaug Dröfn
„Mér finnst alltaf flott að
gera smá extra glamúr í
hátíðarförðunum.“
VETRARDAGAR
20% afsláttur af öllum fatnaði
Ný sending af
vörum frá Basler!
Peysur, jakkar og vinsælu
viskose buxurnar
komnar aftur.
Jólin komin í Parísartízkuna.
Verið velkomin.
Parísartízkan býður upp á
vandaðan tísku- og skófatnað
frá Þýskalandi og Ítalíu í
stærðum 36-50. Áhersla
er lögð á gæði og góða
persónulega þjónustu
Skipholti 29b • S. 551 0770
FYRIR
DÖMU
R
OG HER
RA
Verð:24
.000.-
Jólagjöfin í ár!
Vinsælu kuldaskórnir
með mannbroddunum
Fylgist með okkur á
Heilsuvísir